Framtíðin - 11.03.1923, Blaðsíða 2

Framtíðin - 11.03.1923, Blaðsíða 2
2 FRAMTÍÐIN vor. Á síðasla sumri var safnað hlutafé til þess, og var þátttaka mjög almenn. Stærsti hluthafinn er sjálfur kaupstaðurinn, hann á meira en tvo þriðju af hlutafénu. F*að eru allir Siglfii ðingar sain- mála um það, að hér sé rnikil þörf á íshúsi. Rað er enginn vafi á því að mótorbátarnir geta haldið áfram veiðum lengur fram eftir haustinu, ef beituna ekki vantar, því reynsla undaníarna ára hefur sýnt að næg- ur fiskur er hér fyrir utan alt fram að nýjári. En að þessu hefur öll lóðaveiði stöðvast í septemberiok sökiim beituskorís. Pað má því búast við og vona að þetía íshús verði mikil lyl'tistöng fyrir bæiun. Rví í stað þess að vera í landi, og hafa lítið eða ekkert að gera, geta sjómennirnir haldið áfram veiðun- um, jjegar gæftir eru, a!t fram að nýjári. Löngu fyrir jól í vetur var stofn- fundtir félagsins haldinn, og var þar samþykt að hefjast handa strax til þess að hægt yrði að setja ís í húsið á þessum vetri. Sömuleiðis var þar samþykt að kaupa stein- tóft af hafnarsjóði og byggja ofan á hana. En hvað hefur verið gert? jú, strax í vetur fer formaður félagsins Helgi Hafliðason á stúf- ana og ræður fjölda smiða, lætur hann þá lofa því að vinna fyrir litlu kaupi og lofar aftur á móti að þeir skuli hafa atvinnu í allan vet- ur. Nú er komið fram í iniðjan mars, það sem gert hefur verið er lítið annað en að steypa ofan á tóftarbrotið. Og þessir vesalings smiðir, sem höfðu loforð formanns- ins íyrir atvinnu allan veturinn, eru síðan fyrir jól búnir að vinna fyrir 25—50 kr. hver. Manni liggur næst að halda, að það hljóti að veia einhveijar veigamikiar ásíæður fyrir því, að þessu velferðamáli Siglu- fjarðar skuli ekkert miða áfram. En svo er ekki. Gangur málsins er sá, að fyrst auglýsir stjórnin efíir til- boðum og bíður lengi eftir þeim. Regar tilboðin loksins koma, finn- ur form. það upp að sjálfsagt sé að halna þeim öllum, sljórnin geti sjálf keypt efnið beina leið og fé- lagið þannig grætt þær fáu krónur, sem annars færu í vasa milliliðsins. Pað versta var að blessuðum for- manni skyidi ekki detta þetta fyr í hug, en betra er seint en aldrei hefúr hann hugsað, og nú fer stjórnin aftur á stað og sendir til- boðin beina leið til verslunarhúsa í Noregi. Enn liður langur tími og ekkert tilboð kernur. Á endanuin kemur tilboð frá tyeimur og er gengið að því lægra, En sá agnúi var á að greiða átti vöruna fyrir- fram og norskir peningar eugir til. 1 stað þess símleiðis að kaupa pen- ingana strax í bönkunum, lætur form. það dragast þar til hann kemur sjálfur suóur. Auðvitað var þá »Sirius« farinn frá Noregi fyrir nokkru, og afleiðingin af öllum þessum hringlanda lians er sú, að ekkert er hægt að vinna við íshús- ið sökum þess að efnið vantar, að fyrirsjáanlegt er, að ekki verður hægt að koma neirium ís í húsið á þessum vetri, nema þá að vetur- inn verði svo góður við Helga Haíliðason að dvelja lijá okkur langt fram á sumar, og að efnið verður talsvert dýrara, en ef geng- ið heíði verið strax að lægsta til- boðinu, sökum þess hve gengi norskti krónunnar hefur hækkað. H. H. hefur alveg gleymt því að timínn er peningar, og framkoma hans í þessu íshúsmáli hefur ver- ið sú, að spara eyririnn og fleygja krónunni. Siglfirðingar hefðu mátt búast við að H. H. hefði staðið betur í formannsstöðu sinni en hann hefur geit, sérstaklega þegar á það er litið að lianii tekur á m.óti stöð- tinni í fullri óþökk alira fé- lagsmairha nema tveggja. Pað voru lilutir bæjarins sem komu H. H. í formannsstöðuna en ekki bæjarmanna. Og þar sem H. H. hafði ekki meiri sómatilfinningu fyrir sjálfum sér en það, að geta tekið við formannsstöðunni undir svona kringumstæðúm, þá hefði hanh átt að sýna hvað iiaiin gæti. En livað er .eg að segja: Hanu hefur sýnt hvað liann getur og þetta er árangurinn að sama og ekkert hefur verið liægt að viniia „FRAMT!ÐIN“ kennir út tvisvar á ínámiði í mánuðunuin okt.—júní, og fjóruni sinnuin á inánuði í niánuðunum júlí—sept. Að ipiusta kosti koina út 30. tölublöð á ári. Árgangurinn kostar 3 krónur. Afgreiðslumaður blaðsins er kaupm. Andrés Hafliðason og sé auglýsingum skilaðtil hans cða á prentsmiðjuna. Blað- ið kemur ú: á sunndagsmorgna. að íshúsbyggingunni enn sem komið er. — Erl. síoifréttir. Frakkar útfæra hernaðarsvæðið í Rulir, liafa tekið stöðvar Banda- ríkjahersins í Mandheim, Karlsruhe og Reinscheidí. Ennfr. liafa þeir tekið járnbrautarstöðina Essen, járn- brautaferðir því stöðvaðar. Siglingarráð Bandaríkjanna hefur lagt til að stjórnarskipin, er bygð voru á óíriðarárunum, verði seld eða rifin. ítölsk og frönsk blöð ræða vin- gjarnlega um samvinnu og banda- lag milli Frakka og ítala. Amerikumeenn mótmæla þjóðar- samtökum á tneginlandi Evrópu gegn Bretuin. Lundúnarblaðið Daily Cronicle ræðst á Bonar Law fyrir tilslökun- arsemi við Fiakka, sem halda 13 miljörðutn marka þar á rneðal 6 er voru ætlaðir Bretuni. Rað er að dragast til sátta milli Frakka og Rússa. Norska sljórnin féll 2. mars á Portúgalssamningunum. Halvorsen formaður hægri manna hefur mynd- að nýja stjórn með afnám banns- ins efst á stefnuskrá sinni. Tyrkir samþykkja friðarboðin frá Lusanne, og enski flotiiin kvaddur heim frá Smyrna. Ófriðarhætta eystra úti. Siglufjorður. Þorrablót hélt Verkaniannafétag Siglu- fjarðar láugardaginn 17. febr. Félagsnienn höfðu boðið fjölda gesta. Flóvent Jó-

x

Framtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framtíðin
https://timarit.is/publication/372

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.