Framtíðin - 17.11.1923, Síða 1
Fjárhagsáæílun
Siglufjarðar
1924.
Fjárhagsáætlun kaupstaðarins er
nú nýlega afgreidd af bæjarstjórn-
inni. Frumvarp fjárhagsnefndar var
saniþykt óbreytt að mestu, og
fremur fáar breytingartillögur komu
frani. —
Aukaútsvörin.
Aukaútsvörin, sem niðurjöfnunar-
nefndin bráðlega fer að jafna bróð-
urlega niður á borgarana, verða
100 þúsund krónur. Fjárhagsnefnd-
in var sammála uni, að hafa út-
svörin svona há, og á bæjarstjórn-
arfundunuin, er áætlunin var til
umræðu á, heyrðist engin rödd um,
að þau væru of há, eða nokkur
ástæða til að lækka þau. í fyrra
var aðeins 58 þús. jafnað niður,
og verða útsvörin því 42 þúsund
krónum hærri í ár. þetta kann að
virðast stórt stökk, en peninga
þarf til framkvæmda og í mörg
horn er að líta.
Siglufjörður er ungur kaupstað-
ur, ekki fullra 5 ára enn, og vantar
því margt hjer, sem aðrir kaupstaðir
hafa og þykir sjálfsagt að hafa.
Á þessum 5 árum, síðan bærinn
fjekk kaupstaðarrjettindi, hefur þeg-
ar margt verið gert, svo sem íagð-
ar nýjar götur, keypt söltunarpláss,
hryggjur bygðar og íshús bygt.
Þótt íshúsið sje hlutafjelag að nafn-
inu til, má þakka bæjarstjórninni að
öllu leyti að það er upp komið.
Þetta eru helstu framfarir undan-
farandi ára, og væru þær vafalaust
enn meiri ef ekki dýrtíð og verð-
fall á ísienskum afurðum, sjerstak-
lega síldinni, hefðu hamlað. Þess-
um framförum vill bæjarstjórnin
halda áfram og fremur auka hrað-
an en draga úr, og þess vegna
leyfir hún sjer að seilast svona
langt niður í vasa borgaranna í ár,
og vafalaust, gerir hún það með
góðri samvisku, því alkunnugt er,
að, í sumar hefur útgerðin borið
sig mörgum sinnum betur en í
fyrra, ekki vegna þess að síldarafl-
inn hafi ekki verið góður bæði ár-
in, heldur vegna hins, að í fyrra
var verðið afar lágt á saltsíldinni,
og fór lækkandi eftir því sem á
veturinn lelð, en í ár hefur síldar-
verðið verið hátt og farið stöðugt
hækkandi. Er því ekki ólíklegt, að
100 þús. króna útsvör í ár sje til-
tölulega lægra en 58 þús. í fyrra.
Framkvæmdir á næsta ári.
Þegar gjaldaliðir fjárhagsáætlun-
arinnar eru athugaðir, rekur maður
strax augun í það, hvað mikillri
tipphæð er varið til að efla þrifn-
aðarástandið í bænnm. — Má þar
’nefna:
1. Lokun Álalæks.
Á bæjarstjórnarfundi, er haldinu
var í byrjun októbersmánaðar, til-
kynti form. heilbrigðisnefndar, að
nefndinni hefði borist beiðni frá
Maíthíasi Hallgrímssyni um að
mega leiða ræsi frá vatnssalerni út
í lækinn, og veitti nefndin þetta
leyfi. Heilbrigðisnefndin er hæsti-
rjettur í öllum heilbrigðismálum,
og gat bæjarstjórnin því ekki breytt
þessum gerðum nefndarinnar þótt
hún hefði kosið það. Hjer var því
ekki nema um tvent að ræða, ann-
aðhvort að loka læknum eða láta
hann vera sem opið sorp- og sal-
ernisræsi fyrir öll hús fyrir ofart
lækinn, við Lækjargötu, við Grund-
argötu, við efri hluta Eyrargötu og
við efri hluta Aðalgötu. Pegar bú-
ið er að ieyfa einum borgara að
mega nota lækinn til slíkra hluta,
þá er ekki hægt að neita öðrum
um það, — Að hafa lækinn sein
opið sorp- og saurræsi, er ekki að
eins ljótt og særandi fyrir augað,
sjerstaklega þegar svo vill til, að
lækurinn rennur gegnum þveran
bæinn, heldur stafar af því svo
mikil sýkingarhætta, að segja mætti,
að háttvirt heilbrigðisnefnd og bæj-
arstjórn væru búin að setja þarna
upp ræktunarstöð fyrir bakteríur.
Taugaveikisbakterian myndi sjer-
staklega þrífast vel og dafnast í
þessari ræktunarstöð, jafnt vetur
sem sumar, þar sem hún þolir
frost og klaka, og berst nær ein-
göngu frá sjúklingnum með þvagi
og saur. Og eins og kunnugt er,
er hjer taugaveikis-*BaziIlentráger«*
og má því altaf búast við að veikin
gjósi upp, — þess vegna er það
’) Heilbrigð manneskja, er gengnr með
lifandi bakteríur í sjer, er sýkja aðra.
beinlínis s k y 1 d a bæjarstjórnar-
innar, að gera alt sem í hennar
vaidi stendur, til að minka sýking-
arhættuna, og til að hefta útbreið-
slu veikinnar, ef hún skyldi koma
upp í bænum. Þetta hvortveggja
gerir bæjarstjórnin með því að loka
læknum, þar sem þrifnaðarástand
bæjarins batnar stórum við það.
Heilbrigðisskýrslur alstaðar frá
sýna, að óþrifnaður í bæjarfjelög-
um og sýkingarhætta af taugaveiki
haldast í hendur. Á þeim stöðuin
þar sem þrifnaður er á lágu stigi,
eins og t. d. í sumum ríkjunum í
Suður-Ameríku, er taugaveikin tíð-
ur gestur, aftur á rnóti þar sem
þrifnaður er góður, kemur tauga-
veiki tiltölulega sjaldan fyrir.
Pað, hvort taugaveiki kemur oft
eða sjaldan fyrir, nota heilbrigðis-
fræðingamir sem mælikvaðia fyrir
þrifnaðar- og mentunarslig land-
anna.
Bæjarstjórnin hafði í sjálfu sjer
ekkert um að velja.
Pessi samþykt heilbrigðis-
nefndarinnar var sama og-
skipun frá nefndinni um að
loka læknum. Og óneitanlega
hefði verið rjettara', að nefndin sjálf
hefði samtímis komið með tillög-
una um lokunina. En þar sem eng-
engin slík tillaga var í fundargerð-
inni, kom H. Thorarensen læknir
með tillögu um að læknum skytdi
lokað, og var hún samþykt með
öllum atkvæðum, — Á fjárhags-
áætlun eru veittar 10 þúsund krón-
ur til þessa þarfaverks, og verður
sú upphæð vafalaust nægileg. —
2. Holræsakerfi.
Annar aðalliðurinn til að efla
þrifnaðarástand bæjarins er, að veita
á 28 þúsund krónur til að leggja
holræsakerfi. Lokun Álalæks er
fyrsti liðurinn í þessu kerfi. Fjár-
hagsnefnd lagði til, að þegar á
næsta ári yrðu lögð holræsi í Aðalg.,
Eyrarg., Vetrarbraut, Norðurg. og
álma frá Grundargötu í Álalæk.
Með þessu nióti geta næstum öll
hús á eyrinni fengið frárensli.
Flóvent kom með þá breytingar-
tillögu, að á næsta ári yrðu holræsi
aðeins lögð í Aðalgötu. Fjárhags-
nefnd vildi ekki fallast á, að binda
sig við eina götu, áleit að verkið
yrði tiltölulega ódýrara að taka fleiri
götur í einu, og þörfin væri svo
mikil, að ekki væri þess vegna
ástæða til að smáskamta það nið-
ur Hún tilkynti, að álit verkfræð-
inganna yrði leitað, og taldi sjálf-
sagt, að fara eftir þeirra tillögum,
hvort sem þær kæmu í bága við
tillögur nefndarinnar eða ekki. Fló-
vent gerði sig ánægðan með þetta
og tók tillögu sína aftur.
Benedikt Jónsson verkfræðin^ur,
gerði teikningu að holræsakerfi
fyrir kaupstaðinn fyrir nokkrum ár-
um. Þessar teikningar hefur Jón
Porláksson verkfr. athugað og gert
kostnaðaráætlun. Samt sem áður
er það ætlun bæjarstjórnarinnar að
leita frekari upplýsinga hjá verk-
fræðingum, sem eru sjerfræðingar
á þessu sviði, — áður en verkið
er hafið. —
»Framtíðin« hefur áður minst á
hve þörfin fyrir holræsi er mikil,
og hvaða gleðidagur muni upp
renna fyrir húsmæðurnar þegar þær
ekki þurfa að láta bera skólpið út
í fötum og hella því svo að segja
við húsdyrnar. —
Á fjárhagsáætluninni eru veittar
8 þúsund krónur til holræsagerðar,
en auk þess er gert ráð fyrir, að
tekið verði alt að 20 þús. króna
lán til að framkvæma verkið.
Framh.
Erl. símfrjettir.
s
Bylting / Bayern.
Föstudaginn 9. nóv. gerðu Fas-
cistar tilraun til að koma einræðis-
stjórn á í Bayern. IDeir er fyrir því
stóðu voru fascistaforinginn Hitler,
Ludendorf hershöfðingi og von
Cahr forsætisráðherra. Náðu bylt-
ingarmenn yfirráðum í Miinchen,
og var von Char útnefndur stjórn-
arformaður, en Ludendorf hermála-
ráðherra. Alríkisstjórnin sendi her-
lið til borgarinnar, sveik þá von
Cahr þá Ludendorf og Hitler í
trygðum, þóttist hvergi vera við
byltinguna riðinn og ljet taka Lud-
endorf höndutn, en Hitler tókst að
flýja en náðist þó síðar. Ludendorf
-var þó látinn laus eftir að hafa
gefið drengskaparorð um, að gera
ekki byltingartilraun að nýju.
Þýsku stjórninni hefur tekist að