Vörður


Vörður - 26.07.1924, Page 2

Vörður - 26.07.1924, Page 2
2 V Ö R Ð U R danskrar kr. hefir haldist miklu lengur en eðlilegt var vegna inn- anlands kaupmáttar hvors gjald- eyris fyrir sig. 1917 er kaup- máttur ísl. kr. orðinn miklu minni en .danskrar og enn stór- feldari verður mismunurinn ár- in þar á eftir. En jafnvel þótt gert sje ráð fyrir, að mismun- urinn á kaupmætti hvors gjald- eyris fyrir sig hafi f raun og veru eigi verið svo mikill, sem þessar tölur sýna, þá er þó ber- sýnilegt, að með jafngenginu er ísl. kr. haldið uppi á óeðlilegan hátt, og hefir það greitt fyrir auknum vöruinnflutningi, en hamlað framleiðslunni og þá um leið vöruútflutningi. Frá 1. oktbr. 1922 til 30. júní 1923 voru forvextir bankans 6°/o. 1. júlf voru forvextirnir hækk- aðir upp í 7°/o og hjeldust þeir forvexiir óbreyttir árið út. Tekjur bankans síðastliðið ár hafa alls numið kr. 2493998,23 (að frádregnum kr. 145025,80 er fluttar voru frá fyrra ári), og eru þær nær jafnar tekjunum 1922, er námu kr. 2510579,21. Innborgaðir vextir hafa numið á árinu kr. 1187278,33 (1922: kr. 1060994,90) og forvextir af víxlum og ávísunum kr. 971181,- 10 (1922: kr. 1059798,70. Ágóði af rekstri útbúanna nam kr. 45086,19 (1922: 85090,58) og ýmsar tekjur námu kr. 137416,- 84, en tilsvarandi tekjur 1922 voru kr. 202936,79. Þegar dregið er frá tekjunum greiddir vextir og kostnaður við rekstur bank- ans, alls kr. 2078813,41, verður afgangs af tekjunum kr. 415184,- 82. Verðbrjef hafa verið lækkuð í verði um kr. 21354,00, afskrif- að tap bankans sjálfs á víxlum og lánum kr. 33338,10 og úti- búsins á ísafirði kr. 659437,51. Gengistap hefir orðið kr. 812150,- 90 og þar af stafa kr. 351210,- 38 frá hluta bankans í breska láninu 1921. Er lánsupphæöin nú £ 87802 : 11 : 11 færð í reikningi bankans með gengi kr. 30,00. Loks eru lögákveðin gjöld kr. 15000,00 og alls nema gjöldin kr. 3620143,92. Rýrist því vara- sjóður um kr. 981119,89. Viðskifti BandaríkjannaogJapan, Fyrir nokkrum mánuðum sið- an, eins og getið hefir verið um hjer í blaðinu, samþykti þing Bandarikjanna að banna allan innfiutning Japana til Banda- ríkjanna. Vakti þetta hina mestu gremju í Japan og var almenn viðleitni hafin í þá átt, að hætta öllum viðskiftum við Bandarikjamenn og hafa margir spáð því að þetta mundi auðveldlega geta orðið að ófriðarefni millum þess- ara stórvelda áður en mjög langt um liði. En það sýnist vera hægara sagt en gert fyrir þessar tvær þjóðir að hætta viðskiftunum hvorar við aðra því að þau hafa alt til þessa verið geysi- mikil eins og sjá má af eftir- farandi. Ameríka er langsamlega stærsti viðskiftavinur Japans og af öll- um útflutningi þess fara 45°/o til Ameríku. Næst í röðinni er Kina með 24%, þá Indland með 6%, Frakkland með 5% og England með að eins 3°/o. Af öllum útflutningi Japans nemur hrásilkið 41% og fara 90% af því til Ameríku, te flytja þeir einnig mikið út og fara sömuleiðis 90°/o af því til Ame- rikumanna. Alls námu þær vörur sem Ameríka keypti af Japan 1922 366 milj. yen (1 yen=kr.l.86) Á hina hliðina mun innflutn- ingur Japana frá Ameríku 31% af öllum innflutningi þess og er það tvöfalt meira en innflutn- ingur frá nokkru öðru landi. Indland er það næsta með 14% stóra Bretland með 13%, Kína með 10%, Rússland með 8%, Þýskaland, með 6°/o og önnur lönd samanlögð með 18%. Af óunnri bómull fluttu Jap- anar inn frá Ameríku 40%,vjel- um og vjelahlutum 41%, trmbri 60%, ýmiskonar járni 60°/o, ammonieum sulfati 95% og byggingarefnum 80%. Námu þessar vörur 1922 202 miljónir yena og við það bættust ýmsar aðrar vörur, bifreiðar pappír o. fl. sem námu 96 milj. yena. Sumar at þessum vörum eru ó- fáanlegar svo nokkru nemi nema frá Ameríku. Af þessu yfirliti sjest það glögglega hversu föstum við- skiftaböndum þessi tvö lönd eru tengd og mundi það valda afskaplegri röskun og tjóni ef slilnaði upp úr viðskiftunum. Einkum mundi þó tjón Jap- ana verða tilfinnanlegt, þar eð Ameríka tekur á móti næstum helmingi af öllum útflutningi þeirra. Ameríkumönnum mundi hins vegar verða mun minna tjón af vin- og viðskiftaslitun- um, því að eins 6% af öllum útflutningi þeirra fer til Japans, enda er það að eins fimtistærsti viöskiftavinur Atneríku. Skipar . Stóra Bretland þar öndvegið, en næst koma Canada Þýskaland og Frakkland.' Er vonandi að hinn mikli hagnaður, sem ríki þessi hafa af viðskiftum sínum hvort við annað, varni þvi að til ófriðar dragi enda þótt geigvænlega líti út sem stendur. Brjef úr Skagafirði 29. júní 1924. »Vörður« sælll Af því að jeg tel, að þú sjert sjerstaklega blað Skagfirðinga, þó þú sjert blað alls landsins og allra stjelta, af þvi að þú lætur alla njóta sannmælis og ræðir um landsins gagn og nauð- synjar frá almennu sjónarmiði, þá finst mjer vel við eiga, að vjer Skagfirðingar sendum þjer öðru hvoru línu, svo að þú getir fært öðrum lesendum þínar sann- ar fregnir um það sem við ber hjerna hjá okkur, sem búum hjer norður frá í fásinninu, en byggjum þó eitt hið fegursta og gagnauðgasta hjerað landsins. — Annars dylst mjer það ekki að það er einn af göllunum á nútíðarmenningunni, — sem síst ber vott um framfarir þrátt fyrir alla alþýðumentunina — hversu almenningur tekur litinn þátt í blaðamenskunni, hversu alþýðumenn eru sparir á það, að láta til sín heyra í blöðun- um. Það er öðru vísi en áður var á dögum gömlu blaðanna »Þjóðólfs« og »Norðurfara«; þar voru »aðsendu« greinarnar oft og tíðum aðalkjarninn; það hvíldi þá ekki einvörðungu á herðum ritstjóranna, að veita blöðum sínum anda og Jíf, því að sjálfboðaliðarnir lögðu fram krafta sina til þess að hjálpa þeim. Þeir skildu það gömlu mennirnir, að það er ofætlun einum manni, ritstjóranum, hver sem hann er, að halda uppi umræðum af heilbrigðu viti um öll -dægurmál þjóðarinnar, og að ræða þau svo að kalla við sjálfan sig eða þá við aðra rit- stjóra, andstæðinga síua, sem ekki gera sjer far um að skýra rnálin, heldur flækja þau og rugla skilning lesendanna með útúrsnúningum og blekkingum. — Vjer alþýðumenn ættum því í þessu sem fleiru, að taka oss gömlu mennina til fyrirmyndar með það, að leggja sem oftast orð í belg í umræðunum um almenn mál; þau mundu frem- ur græða en tapa á því, því að betur sjá augu en auga, og þó að vjer yfir höfuð að tala ekki höfum yfir að ráða þekkingar- forða á móts við hina lærðu og velmentu ritstjóra vora, þá ætt- um vjer þó á sumum sviðum, að geta jafnast við þá að reynslu og þekkingu eða fremur, og þar gætu tillögur vorar komið að góðu haldi. — En — annars kemur það nú ekki beinlínis tii af góðu, að jeg tek nú þessa rögg á mig, að skrifa þjer þennan pistil í dag á Pjetursmessu og Páls, á sunnu- daginn í 11. viku sumars, á frá- færnahelginni gömlu þegar allir voru önnum kafnir við fráfær- urnar svo að enginn gat að heiman komist og messufall var nálega óumflýjanlegt i öllum sveitakirkjum landsins. — Nú eru það ekki fráfærurnar, sem halda mönnum heima í dag, því að þær eru alment niðurfallnar eins og margar aðrar góðar og hollar venjur, en það er annað, sem heldur okkur heima og í húsum inni þennan blessaðan sunnudag, það er norðan húð- arillviður, reglulegt haustveður, og nú að liðnu nóni alsnjóa niður í sjó, svo að kýr eru bundnar á básum inni þvi að þær eru óuýtar að krafsa. Eld- ishestar standa og við stall hjá góðum húsbændum, en hjá þeim lakari hlaupa þeir sjálfir i hús, standa þar skjálfandi og biða þess að kastað sje i þá tuggu, svo að þeir geti tekið úr sjer hrollinn. — Það er þetta hunda- veður, sem veldur því, að jeg tók mjer nú penna i hönd til að skrifa þjer, og tala jeg þá fyrst um veðrið. — Það er nú bráðum komið heilt ár, sem við böfum átt við hina verstu ótið að búa, því að um miðjan júlfmán. i fyrra- sumar hófust stórrigningar, ros- ar og illveður, sem ollu þvi að töðu hróktust alment og urðu viða nálega ónýtar til fóðurs. Um engjasláttinn voru þerri- flæsur með köflum, svo að út- hey nýttust skár enda var kuldinn þá svo mikill, að hey skemdist ekki til muna þó það lægi lengi blautt, en úrfellin hjeldust stöðugt með 1—3 daga uppstyttu, og snjóaöi þá stöð- ugt í fjöll og oft ofan í bygð. Fyrir höfuðdag lagði svo mik- inn snjó í fjöll og niður í búfjár- haga, að alveg tók fyrir haga Stjörnuríkið, Sólkerfið S61 og stjörnur. 7. Á fyrri öldum hugðu menn að jörðin stæði föstum fótum í rúminu á einn eða annan hátt. Þá hugðu menn að sól tungl og stjörnur lytu henni og væru til eingöngu hennar vegna. Aukin þekking varð til þess að kippa fótunum undan jörðinni. Smátt og smátt sann- aðist að hún svifi í lausu lofti og ætli 7 systur — reikistjörnurnar — sem lytu sömu lögum. Þá var fullsköpuð hugmyndin um sólkerfið. En hugðu menn líka sólkerfið einstætt i heimin- um. Það átti engan sinn líka. En nú er einnig sú skoðun fyrir löngu oltin um koll. Nú hyggja menn að til sjeu miljónir sólkerfa og sumir telja 14 fjölda þeirra óendanlegan í óendanlegu rúminu. Heimurinn er sífelt að vaxa í hugum manna, bæði út á við og inn á við. Sólin er eini hnötturinn í sólkerfinu, sem lýsir af eigin ramleik svo teljandi sje. Hinir endurkasta ljósi sólarinnar og sjást af þeim ástæðum, en þó eigi langt að. Telst mönnum svo til, að frá næslu stjörnu utan sólkerfis vors mundi sólin líta út sem smá stjarna af 5. stærðar- flokki og naumast sýnileg berum aug- um. Áður en komið er af þeirri leið út í rúmið er bæði jörðin og aðrir hnettir innan vjebanda sólkerfisins löngu horfnir. Sólin ein getur kastað geislum sinum yfir hin miklu djúp, alla leið til fjarlægra stjarna. En um leið er liún orðin ein á meðal hinna mörgu stjarna, sem skína á næturhimninum. Á sól og stjörnum virðist því enginn eðlismunur. Sólin er stjarna. Eða stjörnurnar eru sólir. Öll þekking styður þá staðhæfingu. Stjörnur þessar nefna sumir fasta- stjörnur en aðrir sólstjörnur. Hvorki 15 millibilum.1) Það álíta menn lfka stafa eru þær fastar nje kyrrar. Enginn hlut- ur í rúminu hefir fastan samastað. Sjálfar sólirnar eru á fleygiferð í geim- inum með öllu sinu fylgiliði. Er lítið gætir þessa vegna fjarlægðanna. En þvf útlit liiminsins næstum óbreytt öld eftir öld. Alt sýnist í föstuin skorðum. Sömuleiðis er full ástæða til þess að ætla að umhverfis sólir þessar sveimi dimmir hnettir eða jarðir. Miklu er það sennilegra en hitt, að reikistjörnur sjeu hvergi til nema í kringum oss, og til eru atvik sem færa sterkar líkur fyrir tilveru þeirra: Nokkrar sólstjörnur renna öldóttar línur í rúminu og aðrar renua línur, sem Iíkjast teygðum gormi. Þess- ar háttbundnu sveiflur álíta menn að stafi af aðdráttaraíli mjög stórra reiki- stjarna sem halda sig í námunda við þær. Einnig vita menn um stjörnur, sem deyfast og skýrast með alveg vissuin ‘) Blik stjarnanna á pó eigi neitt skilt við petta, pað stafar af Ijósbroti i andrúmslofti jarðar. 16 frá dimmutn hnöttum sem gengi fyrir þær og myrkvi að einhverju leyti. Auk alls þessa virðist myndun einnar sólar hljóta að hafa í för með sjer myndun fleiri eða færri reikistjarna. Einangruu. 8. Fátt hefir stjörnufræðingum reynst jafn örðugt viðfangs og það að mæla fjarlægðir út til sólstjarnanna. Þó hefir tekist að mæla fáeinar slikar vegalengdir sæmilega nákvæmt. Hafa þær mælingar leitt í ljós að sólkerfin aðskilur svo mikið djúp að allar fjarlægðir innan vjebanda þessa sólkerfís eru mjög svo litlar í samanburði við þær. Hraöi Ijósins er þá venjulega tekinn fyrir mælikvarða.1) En Ijósgeislinn fer á einni sek. 300 000 km. og 8 mín. og J) Fjarlægðir út i rúminu milli stjarnanna eru venjulega mældar í Jjósárum. En ljósár er sú vegalengd, sem ljósgeislinn berst yfir á einu árí. Sú leið er: 300.000 km. . 60 . 60 . 24 . 365-/4 = 9 467 280 000 000 km. eða nál, 10 bilj. km. Pað er eitt ljósár. I

x

Vörður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.