Vörður


Vörður - 10.01.1925, Síða 2

Vörður - 10.01.1925, Síða 2
2 V ö R Ð U R ♦oooooooooooooooooooooo* §o V Ö R Ð O R kemur út g O á laugardögum Q O Ritstj ó rinn: q g Kristján Albertson Túngötu 18. g O Hittist í síma 551 O § frá kl. r/»—2’/» daglega. o %Afgreiðslan: § g Laufásveg 25. — Opin g O 5-7 síðdegis. Sími 1432. O 8 Verð: 8 g I. árg. 5 kr. — frá upphafi g Q til ársloka 1923. O 8 II. árg. 8 kr. — yflr árið 1924. 8 g Gjalddagi 1. júlí. g ♦OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOQ* leiðslunnar var jafnaðarlega hlut- fallslega lægra en verð á þeirri aðkeyptri vöru, er útgerðin þarfn- aðist. Afleiðingar fylgdu orsök, og skal því eigi leynt að yfir- leilt voru útgerðarmenn orðnir mjög skuldugir. Nú hefir að nýju birt í lofti. Árið 1924 er eitt hið happasæl- asta i sögu islensku útgerðar- innar, og þó minnisstæðast fyrir það, að þeim gaf sem þurfti. Hátt verðlag á fiski, og afli í besta lagi, eru sterkar stoðir. Pó verður enn naumlega sagt að útgerðin standi með blóma, en hitt er fullvíst, að nú stendur hún föstum fótum á heilbrigðum grundvelli. Hagnaður ársins hefir að visu hjá flestum gengið til greiðslu gamalla skulda, en skuldir útgerðarfjelaganna mega líka nú orðið yfirleitt teljast vel tryggðar og fyllilega öruggar. Ársafli togaranna mun vera um 28 miljóna króna virði. Er það meir en tvöfalt igildi afla sömu skipa áriö 1923. Þess ber þó að gæta, að allur tilkostn- aður hefir verið miklu meiri í ár, en það veldur, að saltfisk- veiðar hafa verið stundaðar meir en helmingi lengur en venja er til, en kostnaður við saltfisk- veiðar er tvöfaldur á við kostn- aðinn af isfiskveiðum. Enn er þess að geta, að útgerðartími skipanna á árinu er lengri en venja er til, svo verulegu munar. Til tíðinda má það teljast, að á þessu ári hefir verið sótt á fiskimið fyrir Vesturlandi, er áður voru lítt kunn. Hefir þar reynst gnægð fiskjar. Að vísu mest upsi, en þó hefir þótt hag- ur að sækja þangað. Petta hefir valdið stórfeldri breytingu á allri tilhögun útgerðarinnar, svo að í ár hafa ísfiskveiðar nær fallið niður, en áðar verið stundaðar 6 — 8 mánuði ársins. Að svo stöddu skal engu um það spáð, hvort sótt verður á þessi hin nýju miðin framvegis, en á það tvent skal bent, að nokkur hætta mun stafa frá ís- hindrun, og að tvisýnn hagur er að slíkri útgerð ef verðlag á fiski lækkar, t. d. svo að jafn- gildi verðlaginu 1923. Hilt væri æskilegt að miðin reyndust til frambúðar, því það er hvort- tveggja, að útgerðin hefir fulla þörf vissari tekjustofns en ís- fiskveiðar hafa reynst, og hitt, að hin nýja tilhögun veiðanna hefir stóraukið atvinnu i land- inu, einmitt um það leyti árs þegar áður hefir verið minst að gera. Um horfurnar á næstunni er það helst að segja, að líkur eru til að verðlag á fiski verði gott eða sæmilegt framan af næsta ári, því fiskbirgðar eru litlar og munu til þurðar gengnar er nýja framleiðslan kemur á neytslu- staðinn. Um hitt skyldi enginn spá, hvað við tekur er á líður, og alt fyllist af nýju fiskfram- leiðslunni. Mun þá' að sjálfsögðu mestu um ráða magn fiskfram- leiðslunnar í heiminum, og verð- lag annara nauðsynja, þeirra er helst eru notaðar þar sem fiskj- ar er neytt. Kaupgeta neytenda, söluaðferð framleiðenda og margt fleira hefur þó auðvitað marg- vísleg áhrif á verðlag fiskjarins. Undanfarin ár hefur fiskmark- aðurinn stækkað og nýjir mark- aðir fengist einkum fyrir óverk- aðan fisk. Bætir það að sjálfsögðu framtfðarhorfurnar. En þegar þess er gætt, að verðlag afurð- anna er nú á hæstu tindum, kaupgjald A'innulýðs hækkað en að ísl. króna jafnframt fer jafnt og þjett hækkandi, þá skulu þeir ekki sakfeldir er brýna varkárni fyrir mönnum. Hinu má þó ekki gleyma, að hamra skal járnið meðan heitt er og auka flotann meðan vel árar. Sjö ný skip hafa bæst við ísl. togara-flotann á árinu. Má af því nokkuð marka hverjar vonir menn gera sjer um framtíðina. En í útgerð verður einmitt svo mikið að byggjast á voninni, því fyrirfram getur enginn sagt um afkomuna. Áhættan er á alla vegu. Aflaleysi, lágt verðlag, bilanir og óhöpp og margir fleiri »óvinir sitja á fletjum fyrir«. Pó getur vel verið að bjartsýni sje útgerðarmanninum betri vöggugjöf en skygni á þessa óvini, og víst er um það, að fyrir hagsmuni heildarinnar er hinn fyrri hæfileikinn farsælli. »Sjaldan liggjandi úlfur lær of getur, nje sofandi maður sigur«, og af tvennu illu eru einstöku víxlspor betri en stöðug kyr- staða. íslenska togaraútgerðin á sjer óvini, og því miður meðal leið- toga þjóðarinnar. Hinir eru þó margfalt fleiri, sem óska alls hins besta útgeiðinni til handa. Pað er skiljanlegt aö menn geti greint á um ýmislegt er snertir tilhöguu útgerðarinnar, en um hitt verður ekki deilt, að at- vinnurekstur þessi hefir þegar verið þjóð vorri slík blessun, að allir sannir íslendingar hljóta að viðurkenna og virða. Mundi nægja að benda á það eitt, að enn í dag værutn vjer íslend- ingar ekki sjálfstætt konungsriki, ef enginn væri íslenski togarinn til. Er þetta auðsannað ef nokk- ur vefengir, og ætti það eitt að vera útgerðinni sverð og skjöld- ur. Margt er þó fleira, er gleður hvern góðan íslending. Skal hjer fátt eilt nefnt, en þó það fyrst, að undantekning má það heita að Ægir nái nokkurri fórn úr þeim hóp, er feng sækja í hans skaut á togurunum. En ekki færri en 220 mannslíf hafa týnst síðustu 3 árin, þeirra er sjó stunda á seglskipum og vjel- bátum. Pað er annað, að síðan vjer fengum togarana, eru ísl. fiski- mennirnir víðfrægir orðnir, og þykir nú ekki orka tvímælis, að þeir sjeu heimsins ágætustu fiskimenn. Pá er það enu, að isl. fáni blaktir við hún á þeim fiski- skipum er fegurst þykja og best búin í breskum höfnum. Mætti það vera gleðiefni fátækri þjóð lítt þektri. En loks er þess að geta, þeirra vegna er fyrir lífsskoðun, mis- skilning eða öfund, bera kala til útgerðarinnar, að svo sem nú er háttað högum vorum, eru togararnir þó að minsta kosti »malum necessarium«, því sein- teknar yrðu 8 miljónir árlega til handa ríkissjóði frá landbún- aðinum og smábátaútgerðinni. Ólafur Thors. ®ýár við liiröina. Þegar konungshjónin á nýársdag höfðu veitt áheyrn ráðherrunum, þing- forsetunum og hæstarjettardóm- urunum, var Chargé d’Affaires íslands í Kaupmannahöfn veitt sjerstök áheyrn, og að henni lokinni yfirmönnum her- flota- og borgaralegra mála, og var Chargé d’Affaires íslands eiunig viðstaddur þá. Konungur bjelt þar ræðu undir borðum og þakkaði fyrir Sina hönd og drotningarinnar móttökurnar er þau hefðu fengið á ferðum sín- um og fyrir það traust, er þjóð- irnar ávalt sýndu honum. Kon- ungur lauk máli sínu með far- sældaróskum um framtíð Dan- merkur og íslands. Hljóðfæra- sveit lífvarðarins Ijek því næst danska og íslenska þjóðsöngs- lagið. Brjef til Jónasar Jónssonar frá Hriílu. Framhald. Þá segir þú, að jeg riti lítið »um upphafsmann samvinnunn- ar Robert Owen«, og jeg hafi hlaupið yfir blóma æfi hans í »New Lonav«. Eftir að hafa sjeð þessi ummæli þín, fletti jeg upp bók þinni »Komandi ár« , og byrjaði að lesa á bls. 151. Og er jeg hafði lokið lestrinum, varð jeg engu fróðari eftir en áður. Sá að þjer hafði mjög yfirsjest um mörg atriti, er skifta máli og viðkoma R. O. Skal jeg ekki að sinni bera fræðslu þína saman við fræðslu þá, er breskir samvinnumenn hafa lát- ið í tje um R. O. t. d. Leonard S. Wolf og Catherini Webb og þá einnig ýmsir samvinnumenn á Norðurlöndum, sem meira og mipna hafa frælt lesendur sína um starfsemi hans. Skal jeg ekki að þessu sinni fara út í þann samanburö, því vera má að þú gefir frekari tilefni til þess síðar. Satt að segja á jeg erfitt með að skilja það, hvaða ástæðu þú j hefir fyrir því, að rjúka upp með illindum og ofstopa út af því, er jeg hefi sagt hjer að lút- andi, því jeg vil að sinni ekki feta í þín spor og álíta að þú sjert eitthvað »ruglaður« orðinu. Pörf bók. Jón Rorláksson: Lággengið. Rvk. Bókaverslun Pór. B. Porláks- sonar 1924. Fátt er það, sem jafnmikið hefir verið rætt og ritað um, undanfarin ár eins og »gengið«. Þetta fyrirbrigði, sem aldrei heyrðist nefnt nema meðal kaup- sýslumanna og fræðimanna, hef- ir alt í einu stigið framúrfræði- bókunum beint út á meðal al- mennings og hvatt sjer hljóðs. Auðvitað hefir þetta sama orðið fyr, þegar líkt rót hefir komið á peningamál heimsins, og á venjulegum tímum eiga gengis- breytingar sjer stað. En þær eru þá svo litlar að almenningur verður þeirra ekki var. En þó að mikið hafi verið um þetta mál rætt, þá má víst óhætt segja, að málið hafi verið fremur óljóst fyrir flestum. »Slag- orð« og hálfvit hafa klingt hæst, en sjálfan kjarna málsins hafa fæstir gripið. Pólitík ráðiðmeiru en skilningur. Pað hefir verið einblínt meira á ýms sjúkdóms- einkenni en á sjúkdóminn sjálf- an, og margir hafa ekki greint •á milli þessa tvenns. Og þetta hefir engan veginn verið hjer á landi eingöngu, heldur miklu viðar. 1 þessu máli, þar sem skilnings er um fram alt þörf, hefir því ódæma kröftum verið eylt í fum og fálm. Og þegar þetta fálm hefir mistekist, hefir það helst orðið úrræða, að skamma stjórnir þær og aðra, sem höfðu þetta með höndum, fyrir slælega framgöngu. Pað er því sjerstaklega þarft verk að varpa björtu Ijósi á þetta mál. Og nú hefir fjármála- ráðherrann, Jón Porláksson, skil- ið stöðu sína svo vel, að hann hefir gengið út í það stórræði. að rannsaka þetta mál frá rót- um, og er ávöxtur þessara rann- sókna bók sú, sem hjer er get- ið um, og hann kallar »Lág- gengið«. Er í henni snildarlega skorið gegnum alt masið og moldviðrið, því, »enginn frýr þjer vits«, enginn efast um skarpleika höfundarins og á- hlaupa dugnað þegar hann geng- ur að verki. Öldum saman hafa menn unnið að því, að finna og full- komna þau lögmál, sem við- skiftalífið lýtur og er það mik- ið verk að kynna sjer, þó ekki sje nema það helsta á þvísviði, og um margt er enn þá deilt. En J. P. hefir, að því er virð- ist, haft ágætt lag á því, að draga í þessari litlu bók fram einmitt það, sem máli skiftir, en láta það lítilsverða verða út- undan, og hitta í þessu villu- gjarna völundarhúsi þær leiðir, sem liggja að útgöngudyrum. Og annað hefir honum tekist, sem mjög liggur misjafnlega fyr- ir mönnum þótt lærðir sjeu og skarpir: að hagnýta kenningarn- ar, leiða þær út í veruleikann, etja þeim beint á þau raunveru- legu fyrirbrigði og láta þær á þann hátt sanna mátt sinn og sannleiksgildi. En sjerstaklega hljótum við hjer að taka eftir því, er hann leggur mælikvarða þann, sem fundinn er, á okkar eigin viðskifti á undanförnuin árum og sýnir hvernigþað, sem mörgum var áður ráðgáta að meir eða minna leyti, var í raun og veru ekkert annað en eðli- leg keðja orsaka og afleiðinga. Efni bókariunar er mjög sam- an þjappað og varla í henni ó- þarfa orð, ef skiljanlegt á að verða. Pað er því ekki hlaupið að því, að skýra frá innihaldi hennar. Pó langar mig til þess að reyna að gefa hjer ofurlitla hugmynd um undirstöðuatriði bókarinnar, og lögmál þau, sem höf. setur fram í fyrstu köflum hennar. En sjálfir verða menn að lesa bókina ef þeir vilja kynnast því vel. Fyrsti kafli bókarinnar er um fjánnuni og peninga. Fjármunir nefnast allir þeir hlutir, sem liafa verðmæti í sjer fólgið, svo sem eru jarðir, mannvirki, bú- fje, skip og alt slíkt. I annan stað eru peningarnir. Peir eru ekki fjármunir í sjálfu sjer, þótt þeir geti verið það, ef þeir eru úr efni, sem er verðmætt án til- lits til þess hvort það er mótað í peninga eða ekki, t. d. gulli eða silfri. En peningarnir eru mœlikvardi sá, sem handhæg- ast er að nota og oftast er not- aður, og þeir eru gjaldmidill, þ, e. þeir eru notaðir til þess aö vera miðill milli þeirra, sem selja og kaupa þá, af því að bein vöruskifti eru óþægileg og oft ómöguleg. Ef jeg hefi aflað fjármuna læt jeg þá fyrir pen- inga, og nota þá svo aftur fyrir þá fjármuni, sem jeg þarf að afla mjer. Pegar peningar eru hafðir að verðmælikvarða, þá er verðlag sú peningaupphæð, sem borga þarf fyrir ákveðna fjármuni á hverjum tíma. Og lögmálið fyr- ir verðlaginu er það, að verff- lagið ákvarðast af hlutfallinu milli fjármunamagnsins (vöru- magnsins) annarsvegar og pen- ingamagnsins hins vegar. Ef vörumagnið vex í hlutfalli við peningamagnið þá lækkar vöru- verðið. Ef peningamagnið vex aftur á móti í hlutfalli við vöru- magnið, lækka peningarnir, þ. e. vöruverðið hækkar. Petta er ó- skeikul regla. Nú aukast peningar t. d. með þeim hætti að seðlar í umferð aukast, en fjármunaeignin stend- ur í stað, og lækkar þá gildi peninganna, þ. e. vöruverðhækk- ar. Hefir þá verið allmikið um það deilt, hvort seðlamergðin sje orsök verðhækkunarinnar. Halda því ýmsir fram, en aðrir segja aftur á móti að seðlamergð- in sje ávalt sjálf ákveðin af vöruverðlaginu, og sje hún því afleiðing verðhækkunarinnar, en ekki orsök hennar. Höf. heldur því nú fram (og fylgir í því prófessor Cassel í Stokkhólmi) að hvorugt þetta sje rjett. Hvorugt sje orsök hins, heldur sje hvorttveggja, seðla- mergðin og vöruverðshækkunin afleiðingar þriðja fyrirbrigðisins, sem höf. kallar falska kaup- getn. Hvaö er nú fölsk kaupgeta ? Eðlileg kaupgeta skapast við það, að fjármunir eru seldir. Bóndi eða sjómaður selur af- urðir sínar og eignast við það kaupgetu. Hann getur notað hana strax (tekið út vörur) geymt hana (tekið peninga, sem eru geymd kaupgeta) eða látið geyma hana (átt inni hjá kaup- manni, lagt í banka eða spari- i / i

x

Vörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.