Vörður - 28.07.1925, Síða 4
4
V Ö R Ð U R
Þar eð vjer teljum líklegt, aö
Skagfirðingar, sem búsettir eru
nú utan hjeraðsins, og ef til vill
fleiri, muni einnig vilja heiðra
minningu hins látna sæmdar-
manns með því, að leggja ein-
hvern skerf í þennan sjóð, leyf-
um vjer oss að láta þess getið,
að hr. bankastjóri Eggert Claes-
sen í Reykjavik, hefir góðfús-
lega tekið að sjer að veita mót-
töku væntanlegu samskotafje
hjer syðra til sjóðsins.
Vjer búumst við að sjóðurinn
verði stofnaður á 75 ára afmæli
Ólafs sál. Briems, 28. janúar
næstkomandi, og verði ávaxtað-
ur í Söfnunarsjóði íslands.
p.t. Reykjnvík, 12. júnf 1925.
Sigfús Jónsson. Jón Konráðsson.
Arnór Árnason. A. Kristjánsson.
Herm. Jónsson.
Önnur blöð eru góðfúslega
beðin að birta þetta.
Jón Þorláksson. Siðasta tbl.
Lögrjettu birtir frásögn af Svéins-
staðafundinum 22. f. m. eftir ó-
nafngreindan, sýnilega athugulan
og greindan mann, sem stendur
utan flokka. Sýnir hann sjer-
staklega framkomu Jónasar jrá
Hriflu, Jóns Porlákssonar og
Trgggva Pórhallssonar, talar hlý-
lega í garð þeirra allra, en þó
er auðfundið, að mest hefir hon-
um þótt til um fjármálaráðherr-
ann. Farast honum svo orð
um hann:
»Pá talaði Jón Þorláksson fjár-
málaráðherra. Jón er fríður
maður sýnum og svipmikill, og
þó auðsjeð, að hann er nú kom-
inn af æskuskeiði. Alt yfirbragð
hans, málrómur og hreyfingar
bera vott um andlegt þrek og
viljafestu. í*að er sennilegt að
smávöxnu mennirnir þarna á
fundinum hafi með sjerstakri
gleði horft á hann í ræðustóln-
um. Þar kom það svo berlega
f Ijós, hvernig lítill maður getur
orðið stór, ef guði hefir þóknast
að gefa honum sitt hvað, sem
meira er um vert en stór lík-
ami. Jón talaði eingöngu um
málefnin, ekki orð í þá átt að
álasa mönnum. Mælskur maður
er Jón að vísu en ekki í venju-
legum skilningi. Hreyfingar hans
eru snöggar og ákveðnar, mál-
rómurinn fastur, setningar eins
og sundurkliptar, en stuttar,
skýrar, rökrjettar og falla saman
i óslitna röð. Manni dettur í
hug byggingameistarinn, sem
leggur hina höfgu steina hlið
við hlið, svo hvergi kemst hnifur
á milli og — maður efast ekki
um, að úr verði bygging, sem
lengi stendur. Þrátt fyrir það
gaman, sem almenningur hefir
af deilum og orðahnippingum,
má fullyrða, að þorra manna
hafi þótt mest til koma að hlýða
á Jón, og mest borið úr býtum
af hans fundi. Úti í mannþröng-
inni var oft auðheyrt, að sitt
sýndist hverjum. »Heyr«, sagði
einn, »á endemi«, bætti annar
við. Retta voru smágos úr gýgum
flokkanna, En þegar Jón f*or-
láksson tók til máls, hjelt al-
varan innreið sína á fundinn og
menn hlustuðu og þögðu«.
Pýska 8kemtiferðaskipið »Mún-
chen« kom hingað til bæjarins
á þriðjudagskvöld og stóð við
næstu tvo daga. Er það hið
fyrsta skemtiferðaskip sem hing-
að kemur frá þýskalandi síðan
1914. Farþegar voru 320.
Bækur Sögufjelagsins eru ný-
komnar út: 1. Skólameistarasög-
ur 1. hefti. 2. Blanda 2. hefti
III. bindis. 3. Pjóðsögur Jóns
Árnasonar 1. hefti I. bindis. —
Það er vel að fjelagið hefir nú
sjeð sjer fært að ráðast í nýja
útgáfu af þjóðsögunum. Verður
þessi útgáfa því sem næst ná-
kvæm eftirmynd gömlu útgáf-
unnar. — Ársgjaldið til Sögu-
fjelagsins er 8 kr. Bókavörður
fjelagsins Helgi Árnason, Safna-
húsinu, veitir nýjum fjelögum
upptöku.
Dóra og Haraldur Sigurðsson
komu frá útlöndum í fyrri viku
og skemtu bæjarbúum hvort
sitt kvöldið með list sinni. Dáð-
ust menn jafnt að hinni fögru,
hreimljúfu rödd frúarinnar, sem
að hinum fágaða og snjalla leik
Haralds. Þau hjónin dvelja nú
austur í Kaldaðarnesi, en munu
bráðlega hverfa aftur til útlanda.
Nýja ullarverksmiðju er Bogi
Pórðarson jrá Lágafelli að láta
reisa hjer í bæ og er byggingin
nær fullgerð. Ætlar hann aðal-
lega að hafa þar kembingar-
vjelar, og á verksmiðjan að geta
skilað 800 pundum af lopum á
dag. Vjelarnar eiga að ganga
fyrir rafmagni.
Nýl sundskálinn í örfirisey
verður vígður 2. ágúst. Hafa
íþróttamenn hjer í bæ unnið
ókeypis að byggingu skálans á
í sumar.
Lögjafnaöarnefndin heldur fund
um þessar mundir í Khöfn.
Einar Arnórsson og Jóhannes
R e i ð t ý g i
margar gerðir, þar á meðal Imatikar svo traustir, að
tekin er ÍO ára ábyrgð á virkjunum.
Spaðalmakkar, aljárnaðir.
Ilandvagnar, liestvagnar, abtýgi, listivagna-
afetýgi. — Alt af bestu gerö.
Allskonar ólar og lausir hlutir til söðla- og aktýgjasmíða
er ávalt fyrirliggjandi. — Beisli, töskur, svipur, keyri,
ístöð, bakpokar, veski, klifjatöskur, beislistengur margar
tegundir o. fl., o. fl.
Ennfremur tjöld, vagna- og fiskyfirbreiðslur og efni í
þessa hluti.
Landsins stærsta og fullkomnasta fyrirtæki f þessari
grein. — Sívaxandi viðskifti sanna að hvergi er betra að
gera sín viðskifti en i »Sleipni«.
Aðgeröir fljótt og vel af lienði leystar,
Vörur sendar gegn eftirkröfn hvert á land sem er.
Símnefni »SLEIPNIR« — Sími 646.
Laugaveg 74. — Reykjavík.
%
F’yrirlig'g-jan.di miklar birgöir afs
Tatnsleiöslurörum, Skolprörum, Miðstööv-
artækjum, allskonar Fittings, HLrönum o.
s. frv., I41oset, Þvottaskalar, Vaskar, lSaö-
ker o. s. frv., Pumpur, Póstar, Vatnshrútar,
Ofnar & JEldavólar, Pvottapottar, örautar-
pottar, og allskonar lílGGISGARSTEVPI.
VÖRIJR.
CmÓIÍ og veggflísar.
Isleifur Jónsson,
Langaveg 14. Reykjavík.
Símnefni: ísleifnr. — Sími 1280.
♦oooooooooooooooooooooos
S V ÖRÐUR kemur út ^
O á laugardögum O
Ritstj ó rinn: §
Kristján Albertson Túngötu 18. j§
S i m a r :
1452, 551, 364.
Afgreiðslan:
Laufásveg 25. — Opin
5—7 síðdegis. Sími 1432
2 V e rð: 8 kr. árg.
g Gjalddagi 1. júlí}
O v,
♦ooooooooooooooooooooooe
ekki getað siglt. Meðal þeirra
mála, sem nefndin mun ræða
og reyna að komast að samn-
ingum um, er heimflutningur
ísl. skjala úr söfnum í Khöfn,
þeirra er vjer höfum rjett á að
tá aftur. Þar á meðal eru öll
þau skjöl, er Árni Magnússon
hafði fengið að láni hjeðau til
þess að afrita, en aldrei skilað
aftur, svo að þau bæltust við
safn hans. Hannes Porsteinsson
skjalavörður er í Khöfn og mun
aðstoða nefudina í flutningi
þessara mála.
Frá Akureyri er símað 22. þ.
m.: Um hádegi syrti skyndilega
í lofti og skall yfir feikna óveður
með hellidembu af hagli. Eftir
hálftíma var haglskúrinn liöin
hjá og varð bjart af sólu og
blíðuveöur. —
21. þ. m. drukknaði í Pverá Jó-
hann bóndi Helgason á Syðra-
Laugalandi. Var hann á reið
yfir ána ásamt fleiru fólki. Hnaut
hesturinn og fjell Jóhann af
honum. Samferðafólkið sá hon-
um ekki skjóta upp aftur. Talið
er líklegt, að Jóhann hafi fallið
á höfuðið á stein og rotast.
Líkið er ófundið. Jóhann var
einn af efnuðustu bændum
Eyjafjarðar.
Flugvjelar til landhelgisgæslu.
Tilraunir þær, sem gerðar voru
í siðastl. mánuði, á fiskimiðun-
um undan Skagen, leiddu það í
ljós, að vafalaust verði mikill
styrkur að notkun flugvjela við
landhelgisgæslu. Flugvjelin get-
ur ,farið á skömmum tíma yfir
stórt svæði og vart hugsanlegt,
að skip að landhelgisveiðum, er
flugvjelarmenn koma auga á,
sleppi undan. Búast má við, að
þelta verði framvegis einhver
þýðingarmesti þáttur landhelgis-
gæslunnar.
Jóhannesson sækja fundinn hjeð- ingurinn, Bjarni frá Vogi, hefir
an að heiman, en þriðji íslend- legið veikur undanfarið og því
Prentsmiðjan Gutenberg.
"V etrarbraut.
Síðastliðið sumar birtust öðru hvoru, hjer
1 blaðinu, greinar með nafninu »Stjörnu-
ríkið« og voru pær um sólkerfi vort.
Eigi var greinum pessum lokið og staf-
aði pað af ýmsum önnum.
Jeg hefi orðið pess vís, að ýmsir hafa
lesið greinar pessar með athygli, og hefi
jeg fengið tilmæli um að halda peim áfram.
Er gott til pess að vita og vil jeg nú leitast
við að auka uokkru við.
íslensk alpýða hneigist að pvi, sem há-
leitt er og fjarlægt. Stjörnufræðin innifelur
hvortveggja. Hún er alla tíð hafin langt yfir
smámuni daglegs lífs, og hún kannar sí og
æ ókunna stigu og leiðir ný og ný undur i
ljós.
Sextánda og seytjánda öld átti marga á-
gæta stjörnuspekinga. Rá lifðu peir: Koper-
nikus, Galilei, Kepler og Newton. Pessir
menn fundu lögmálin fyrir göngu himin-
hnattanna.
Pvinæst varð hlje á mikilvægum upp-
götvunum, uns Herschel kemur til sögunnar
frá 1738—1822. Hann gerði einskonar dýptar-
mælingar í hafi himinsins. Hann beindi
sjónpipu sinni, sem var 18 fet á lengd, á
1088 staði víðsvegar i rúminu og taldi pað,
sem Ijósmál sjónpípunnar náði yfir, i pví
skyni að geta síðan áætlað tölu stjarnanna
og lögun og eðli alheims vors.
Aö honum liðnum verður enn langt hlje
á mikilvægum uppgötvunum, pó nokkuð
bæltist við. Líkast er pví sem heilar aldir
purfi til pess að átta sig á afrekum mestu
manna mannkynsins.
En nú er ennpá ný öld stórfeldra stjarn-
fræðilegra uppgötvana runnin upp í heim-
inum. Stjörnuturn hefir verið reistur á
Wilsonsfjalii í Ameríku. Par eru margs
kyns verkfæri, sem engan eiga sinn líka.
Par starfa margir ágætir menn og paðan
koma með ári hverju hinar furðulegustu
nýjungar, sem gagntaka hugi hugsandi
manna.
Nú er ætlun min líkt og í hinum fyrri
greinum, að rita fyrst stutt yfirlit um hvað-
eina, vegna peirra, sem enga hafa undir-
stöðu, og Iýsa síðan fáeinum nýjum upp-
götvunum og nýjum hugsunum peirra manna,
sem rannsaka himindjúpin pg stjörnurnar.
Ásgeir Magnússon.
Jafnvægi heims.
Aðdráttaraíl og
geislaspyrna.
Andntæður.
23. Alt er breytingum háð, en þó virð-
ist heimurinn órjúfandi jafnvægi. Á ein-
um stað er upplausn og dauði. Á öðr-
um stað sameining og líf. Svo er það á
jörðu vorri og svo er það um heim
allan. Alstaðar eru öfl að verkt, sem
byggj3 og sameina. Önnur rjúfa og
sundra. '
Sólkerfin eru sifelt á valdi tveggja
mikilla magna. Annað heitir aðdráttar-
afl en hitt geislaspyrna. Algerðar and-
stæður virðast þetta vera. Annað safnar
efnum heimsins, svo að efni bætist á
efni ofan. Hitt dreyfir þeim út um rúm-
ið. Stundum ört, stundum hægt og
veitir ýmsum betur. Efnismekkir sól-
kerfanna berst líkt og síur frá afli,
út úr þokuríkjum alheimsins. Þá er alt
í ólgandi uppnámi. En sköpunarmögn
heimsins eru samtvinnuð efniviðum hans.
Samstarf þeirra breytir óskapnað í ein-
ingu. Hringrásir hefjast og jafnvægi
næst. Sólkerfi er til orðið ■ bústaður lif-
andi lífs með andstæðum og jafnvægi
sín í millum. Framh.