Vörður


Vörður - 01.08.1925, Síða 1

Vörður - 01.08.1925, Síða 1
Grefinn lit af Miðstjórn í haldsflokksins. III. ár. Reykjavík 1. ágúst 1925. 32. blað. Samábyrgðin. Síðasta þing. Fyrir nokkru reit jeggrein í Vörð með þessari yfirskrift og sýndi þar fram á, að meiri hluti þeirra manna, sem sátu aðalfund Samb. isl. samvinnufjelaga í júnímán- uði þ. á., hlytu að líta svo á, að hin ótakmarkaða samábyrgð ætti að hverfa úr sögunni. Þetta bygði jeg á ályktun fundarins um, að ekki væii enn kominn timi til þess að takmarka á- byrgðina. Síðan sýndi jeg fram á, að þessi ábyrgð væri óþörf frá hvaða sjónarmiði, sem á hana væri litið, og ljet í ljósi, að æskilegt væri, að takmörkun ábyrgðarinnar yrði framkvæmd sem fyrst. í næsta blaði, sem út kom af Tímanum, er svo þessi grein mín tekin til athugunar, ef at- hugun skyldi kalla. Höf. Tíma- greinarinnar reynir þó alls ekki að bagga við því, sem var að- alatriðið í grein minni, að meiri hluti fundarmanna hljóti að líta svo á, að hin ótakmarkaða á- byrgð eigi að hverfa. Jeg slæ þessu því föstu á ný, og af þessu leiðir það, að ekki getur orðið langt þangað til þessi takmörk- un kemst í framkvæmd, fyrst meiri hluti sambandsfundar er þessu fylgjandi. þettaer vitaskuld mergur málsins, en skiljanlegt er, að hinum æstu fylgismönn- um hinnar ótakmörkuðu ábyrgð- ar falli þungt að vera komnir í minni hluta með þessa uppá- haldsskoðun sina, en til þess verður ekkert tillit tekið, því að lokum verður jafnan hið rjetta ofaná. Í>ví er haldið fram í svargrein Tímans, að ábyrgðarfyrirkomu- lagið í samvinnufjelögunum sje hið sama nú og það hafi verið, áður en Jónas frá Hriflu tók að fást við samvinnumál hjer á landi. En þelta er ekki rjett. Áður var það svo, að hvert fje- lag ábyrgist að eins sínar skuld- ir, en nú ábyrgjast öll fjelögin skuldir hvers annars við Sam- bandið og þar með allar skuld- ir Sambandsins. Af þessu leiðir, að hver bóndi, sem er í kaupfje- lagi, ábyrgðist ekki einungissínar eigin skuldir og síns fjelags, held- ur einnig allar skuldir við Sam- bandið, þótt stofnaðar sjeu af mönnum, sem þeir alls ekki hafa heyrt nje sjeð. í’etta fyrirkomu- lag er óhæft og óþarft og verð- ur að hverfa. Þess var getið í grein minni og það er viðurkent i Tíman- um, að tillagan um takmörkun ábyrgðarinnar væri kominn frá Kaupfjel. Skagfirðinga. En þótt greinarhöf. Tímans játi þetta, ber hann sjer samt á brjóst og segir, að það sjeu aðeins fjand- menn samvinnustefnunnar, sem sjeu andvígir hinni ótakmörk- uðu ábyrgð og geri það til þess að sundra samvinnumönnum. Eru þá meðlimir Kaupfjel. Skagfirðinga fjandmenn sam- vinnunnar? Vinna þeir að því að sundra sínum eigin fjelags- skap? Hver mundi trúa því, en frá þeim er tillagan sprottin og henni er svo vel tekið, að meiri hluti fundarmanna aðalfundar Sambandsins aðhyllist hugsun hennar, þótt ekki þyki fært að framkvæma hana strax, senni- lega vegDa þess að mjög fá eða engin kaupfjelög eru skuldlaus við Sambandið, nema Kaupfjel. Skagfirðinga. Eru þá allir þessir menn á aðalfundi að vinna á móti samvinnufjelagsskapnum? Nei, vissulega ekki. Hjer skiftir ekki máli og um það er ekki að ræða, hvað kaupmennirnir álíta, eða hvað einhver blöð á- líta, heldur hvað samvinnu- mennirnir sjálfir álita og þeir hafa nú kveðið upp þann dóm, að samábyrgðin, eins og hún er, eigi að hverfa. Að hlanda kaup- mönnum hjer inn í, eins og Timinn gerir, er aðeins til að leiða athygli frá aðalatriðinu. Kaupmenn skifta sjer ekkert af þessu máli, því að það er best fyrir þá að samábyrgðin haldist, því hún hindrar vöxt og við- gang kaupfjelagsskaparins. Það skiftir ekki heldur neinu máli, þótt einhver maður hafi einhvern tíma misskilið hvað samábyrgð þýddi. Flestum er nú orðið alveg Ijóst hvað hún þýðir. Og það er undarlegt, að greinarhiöfundur Tímans skuli kvarta um það, að aldrei hafi verið sýnt fram á, að samábyrgð- in væri hættuleg. Hefir ekki Sambandið gefið eftir Kaupfjel. Reykvíkinga 30000 kr.? Verða ekki fjelög þau, sem eru í Sam- bandinu, að taka þátt í þeim halla? Og fleiri dæmi mætti telja. En það þarf ekki til þess að skýra málið, það er full- skýrt áður. í lok greinarinnar í Tíman- um er spurt um, hvað átt sje við, er sagt er í grein minni, að hættulegt sje að draga lengi að takmarka samábyrgðina og þess getið til, að átt sje við, að Sambandið geti ekki staðið í skilum. En við það var ekki átt, heldur það, að svo gæti farið, að kaupfjelögin, sem ekki vilja vera í hinni víðtæku sam- ábyrgð, segi sig úr Sambandinu, og þar sem þetta gætu aðeins betur stæðu fjelögin, væri þetta hnekkir fyrir Sambandið, sem vel er hægt að komast hjá, ef ekki er barið höfði við steininn. G. Það er gömul venja, að segja að hverju þingi afloknu, að þetta hafi verið eitthvert það atkvæðaminsta og ómerkilegasta þing. Ganga skraffinnar oglausa- gosar best fram í þeim sögu- burði. Andstæðingarnúverandi stjórn- ar hafa, auk þess að tolla í þessari tisku, aðra veigameiri ástæðu til þess að prjedika þennan boðskap á fundum og i blöðum. þeir hafa sem sje lýst því yfir, að stjórnin og flokkur henn- ar hafi haft töglin og hagldirn- ar á þinginu, og hún beri því ábyrgð á gerðum þess. Er þá ekki von, eftir slíka yfirlýsingu, að fögur sje frásögnin af afrek- um þingsins. Reyndar segja þeir nú annað veifið, að stjórnin hafi verið og sjefylgislaus, sitji í »sjálfstrausti« og annað þessháttar, en það gera þeir nú bara samræmisins vegna. íhaldsflokkurinn hefir nú aldr- ei reynt að gera meira úr þingafli sínu, en á allra vitorði er. Hann hefir það fylgi, sem allir vita, en það verður ekki sagt um hrærigrautinn, sem á hann herjar (sbr. vantraustið). En þótt íhaldsfl. hafi enganveg- inn þann þingstyrk, sem æski- legt væri, þá hefir honum samt lukkast að koma svo mörgu góðu og þarflegu gegnum þetta þing að erfitt mun hverjum manni að telja það »ómerkilegt«. Málefnin mótast vitanlega af áslandinu. Nú eru ekki hinir glæsilegu tímar og rólegu, þeg- ar hægt er að snúa sjer að »andlegu« málunum af alhug. Prátt fyrir góðæri nú siðast, mótast alt af viðreisnarstarfinu eftir undanfarandi kreppu- og vandræðatíma. Fyrst og fremst þarf að líta eftir sjálfum máttarviðum ríkis- byggingarinnar, höfuð-atvinnu- vegunum. — Síðasta þing gerði það svo að lengi mun uppi vera. Landbúnaðurinn fjekk lang- merkilegustu lánsstofnunina, sem hann nokkru sinni hefir fengið, og í raun rjettri þá lánsstofnun, sem rikið íslenska hefir sett á stofn með stærstum tillögum, Ræktunarsjóðinn. Mun hann í góðum höndum verða til ómet- anlegs gagns. Má af þessu glögt sjá, hver hæfa er í þeim ábnrði Tímamanna, að íhaldsflokkur- inn standi móti hagsmunamál- um bænda, eða sje áhugalaus um þau. Sjávarsíðan fjekk ákvörðunina og lögin um það, að Landhelg- issjóður skuli taka til starfa. — Er það víst allra manna mál, að landhelgisvarnirnar verði þá fyrst í fullu lagi, er vjer getum sjálfir unnið þar aðalstarfið. — Látlaust hefir það verið borið fram af andstæðingum íhalds- flokksins, að stór-útgerðarmenn væru andvígir bættum land- helgisvörnum, vegna þess að þeir vildu geta fiskað i þvi skjóli sjálfir, og að íhaldsflokkurinn stæði þar auðvitað sem skjöld- ur fyrir þeim. Sjest nú hæfan í þeim getsökum öllum saman. Hér hafa þeir þá tvö rógs- málin að geifla á fyrst um sinn og glej'pa síðan. Um þriðja atvinnuveginn, verslunina, voru og sett af þingi þessu mikil lög og merkileg, sem fela í sjer margar umbæt- ur frá því sem áður var. Ált er þetta íhaldsflokksins verk eftir því sem þeir segja sjálfir andstæðingarnir. — Hann ber ábyrgðina á gerðum þings- i'ns. Þá hjelt síðasta þing áfram því viðreisnarstarfi á fjárhag ríkissjóðs, sem næsta þing á undan hóf. Var svo til stilt, að víst mætti telja, að tekjur fengj- ust nægar fyrir útgjöldum, ef ekkert óvænt ber að höndum. Framsókn dansaði þar nauðug með af kjósendahræöslu. En að henni var það óljúft má sjá af því, að hvað eftir annað leituðu leiðtogar hennar að einhverri smugu til þess að troða sjer inn í og eyðileggja starfið. Hvað eftir annað voru þeir með yfir- lýsingar um það, að nú færi þeir hreint að hætla allri sam- vinnu við stjórnina(Il) um það að bjarga fjárhagnum. En aldrei fundu þeir þá smugu, að þeir treystust til þess að leynast þar fyrir kjósendunum, og kusu því heldur að dragnast með. íhaldsflokkurinn ber ábyrgð- ina, segja þeir. Hann á líka heiðurinn. Eitt mál tókst þeim þó að vefja svo, að ekki varð afgreitt, og það var ráðstöfun seðlaút- gáfurjettarins. — Verður gaman fyrir kjósendur þegar Alþingis- tíðindin koma að kynna sjer frammistöðu Framsóknarinnar og einkum þeirra Jónasar og Ingvars í efri deild í þessu máli. Gekk málæöi þeirra mest út á það, að hrekja það, sem þeir höfðu sagt á næsta þingi á und- an, en gera það þó svo, að þeir gætu aftur á næsta þingi snúið við enn. Náttúrlega eru þeirlipr- ir menn báðir, en þó mátti nú ekki tæpara sianda, að ekki færi fyrir þeim eins og skáldið sagði um manninn, sem datt o’n í kjaftinn á sjálfum sjer. Þó að þingið sje ómerkilegt talið af andstæðingunum, vegna þess að íhaldsfl. á heiðurinn af þvi, þá er nú samt erfitt að telja upp i stuttri blaðagrein þau nytjamál, sem það fjekk afgreitt. Hinu erfiða endurreisnarstarfi á fjárhag ríkissjóðs var reynt að sameina ýmiskonar nauð- synlegar framkvæmdir og fram- faramál. Þetta þing á byrjunina að Landspítalanum og Heilsu- hæli Norðurlands, og er það hvor- ugt ómerkilegt. Það veitti stór- fje til þess að bæta úr húsnæð- isskortinum á geðveikrahælinu o. fl. Það sinti fyrst því máli, sem með tíð og tima verður líklega með mestu málum þjóð- arinnar, sem er víðboðið. Það bætti, eins og bætt varð, úr af- glöpum Tíma-ráðherrans, er skemdi svo fiskveiðalöggjöfina, að vel heföi mátt horfa til bráð- asta voða allri þjóðinni o. fl. o. fl. íhaldsflokkurinn ber ábyrgð- ina, segja þeir. Hann mun víst ekkert undan henni skorast og ekkert fyrirverða sig fyrir þetta þing og störf þess. En eitt gerðu þeir þó, Tíma- menn: Þeir hjeldu þann aumlegasta eldhúsdag yfir stjórninni, sem á Alþingi íslendinga hefir heyrst eða sjest. Sá er þeirra helsti hróður á þessu þingi. M. Tíidq 09 AlþýðuMaOið. Þegar Jónas frá Hriflu er heima eru Tíminn og Alþýðubl. sátt, en á sumrin þegar Jónas er erlendis — hann fer eins og kunnugt er utan nær á hverju sumri að sið vellauðugra bur- geisa — þá slettist á vinskap- inn á yfirborðinu, en Jónas lag- ar svo misfellurnar þegar hann kemur heim. Það er staðhæft, að hann hafi árið 1916 (sama árið og hann stofnaði Fram- sóknarflokkinn) verið fulltrúi á stofnfundi Alþýðusambands ís- lands, svo að hann hefir rjett til að skjótast yfir landamærin. í þetta skifti bregður ekki út af venjunni. Þessi blöð eru sem stendur saupsátt út af verkfalli, sem Tíminn segir, að íhalds- menn hafi gert á Hvammstanga, og út af því, að Tíminn segir, að í Framsóknarflokknum sjeu engir sócíalistar, enda sjeu engir fjær sócíalistum en bændur. — Alþ.bl. er að vonum óánægt yfir þessu og þykir nú svo bregðast krosstrje sem önnur trje. Segir, sem mikið er satt í, að í raun og veru sje ekki nema um tvo flokka að ræöa i umheiminum, sócíalista og andstæðinga þeirra (vinstri- og hægriflokkana). — Eftir að hafa sýnt fram á hvernig samvinnan er milli flokkanna erlendis, segir Alþýðublaðið: Líkt er og verður hjer. »Fram- sóknar«-menn hafa tekið sam- viunustefnuna að láni hjá jafn- aðarmönuum og gert hana að stjórnmáli eins og jafnaðarmenn í Rússlandi. Framsóknarmenn hafa talið sig fylgjandi bótum á kjörum alþýðu, og þá hljóta þeir

x

Vörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.