Vörður


Vörður - 12.09.1925, Page 1

Vörður - 12.09.1925, Page 1
Útgefandi: IMLiÖstjór*!! íhaldsflokksius. III. ár. Reykjavfk I 2. sept. 1925. 38. blað. Gengið 1 nágrannalöndnnnin. Til þess að gera sjer rjetta grein fyrir geDgisbreytingum ís- lensku krónunnar nú undanfar- ið, verða menn að líta á þær við hliðina á samtíma gengis- breytingum nágrannalandanna, einkum Danmerkur og Noregs. Á myndinni er sýnt yfirlit yfir breytingarnar á gullgildiíslensku, dönsku og norska krónunnar frá ársbyrjun 1924 og til 9. sept. 1925. Myndin sýnir greinilega að gengisbreytingar þessara þriggja krónutegunda hafa talsverða til- hneigingu til að fylgjast að, eða ganga í sömu átt á hverjum tíma og skulum vjer nú athuga þær hverja fyrir sig. Dauska krónan. í ársbyrjun 1924 var gildi hennar 64.5°/o af lögmæltu gull- verði. í jan. sama ár fjell hún niður í 59°/o og síðan litlu lengra niður, svo að meðalgengið var í marsmánuði 58°/o. Eftir það hækkaði hún aftur dálítið, en seinuslu dagana í júní byrjaði ný lækkun, og stóð yfir frarn í júlímánuð, og fór þá gullgildi hennar aftur niður í 60°/°. Sið- an fór hún smáhækkandi og stóð i árslok 1924 um 66°/o af gullverði. Fram til þessa tíma hafði danska krónan yfirleilt verið meiri sveiflum undirorpin en gjaldeyrir flestra annara vel stæðra landa, farið ýmist hækk- andi eða lækkandi. Menn voru sammála um að þessar sveiflur væru atvinnulífinu til tjóns, og kröfurnar um það að þjóðbank- inn og löggjafarvaldið tækju höndum saman til að hindra sveiflurnar, urðu svo almennar seinni hluta ársins 1924, að við þeim varð ekki þagað. Um ára- mótin náðist loks samkomulag á þá leið, að þjóðbankinn skuld- batt sig til að ábyrgjast hœg- fara hœkkun krónunnar í næstu tvö ár, þannig að gullgildi henn- ar skyldi ekki verða lægra en: 65 % hinn 1. júlí 1925 66.5% — 1. jan. 1926 68 °/o — 1. júlí 1926 70 o/o — 1. jan. 1927 Ekki voru menn þó vissari um að bankinn gæti hækkað krónuna þetta, en svo, að sjer- stök heimiid var til að losa bankann frá hækkunarskyld- unni, ef hún reynist honum of kostnaðarsöm. En alment var því þó treyst, að nú væri ráðið fram úr málinu um þennan tveggja ára tíma, og trygð sú hægfara hækkun, sem allir virt- ust sammála um að telja þjóð- fjelaginu æskilegasta. Fyrsta misserið gekk alt bæri- lega, en þó varð hækkun krón- unnar þá þegar meiri eða hrað- ari en áætlað var, og í júní- mánuði var meðalgengi krón- unnar 71°/o, eða hærra en henni hafði verið ætlað að ná l1/* ári síðar. Og þó hafði orðið mjög víðtæk stöðvun á atvinnurekstri út úr kaupgjaldsdeilum í 3 mán- uði þessa misseris. En í lok júnimánaðar byrjaði þó ennþá örari hækkun, sem haldist hefir óslitin síðan, þar til danska krónan nú síðustu dagana er komin upp í 93 til 94°/« af gull- gildi, og kostar þá hvert ster- lingspund kringum 19 kr. 40 au. Fullyrt er, að þjóðbankinn hafi gert sitt ýtrasta til að standa á móti þessari hröðu hækkun, og að einkanlega hafi hann reynt að stöðva hækkunina um það bil sem sterlingspundið kost- aði 22 kr., eöa gullgengi krón- unnar var 83%, en allar til- raunir urðu árangurslausar, framboðið á erlendum gjaldeyri varð svo mikið, að bankinn gafst upp við að kaupa hann svo háu verði. t*vi hefir jafnan verið haldið fast fram af hagfræðingum, að mikil hækkun og hraðfara hækk- un á gildi gjaldeyris væri at- vinnuvegum landanna ofraun. þessu hefir alment verið trúað, og á því bygðust óskir manna í Danmörku og annarsstaðar um hægfara hækkun. — En nú þykjast menn ekki í Danmörku sjá neinar þær óskapaafleiðing- ar hinnar öru hækkunar, sem spáð hafði verið, og þótt allir búist við talsverðum erfiðleik- um fyrir atvinnuvegina meðan kaupgjald og annað verðlag i landinu er að laga sig eftir hinu hækkaða peningagildi, þá er ekki annað að sjá af síðustu blöðum, en að sú skoðun sje nú almenn orðin þar í landi, að sjálfsagt sje að halda þeirri bækkun, sem orðin er, koma krónunni siðan sem fyrst alveg upp í gullgildið og losa sig þar með að fullu við það tjón og óþægindi, sem fylgir gengisbreyt- ingum pappírsgjaldeyrisins. Norska brónan. Gengi hennar var í ársbyrjun 1924 um 53%. eða uin 18°/o lægra en gildi dönsku krónunn- ar. Síðan má heita að sveifl- urnar á gildi hennar hafi fylgst með sveiflum dönsku krónunn- ar, gengismunurinn þeirra ú milli haldist nokkurn veginn ó- breyttar þetta 18 til 20%, þang- að til um síðastliðin mánaðar- mót, og fylgdist þannig með í hinni öru hækkun dönsku krón- uunar. Hinn 31. ágúst þ. á. var gullgengi dönsku krónunnar um 93% og norska krónan þá kom- in upp í 74%. Þennan dag kostaði sterlingspundið 19 kr. 42 au. í Khöfn en 24 kr. 50 au. í Oslo. Norðmenn höfðu sömu ótrú og aðrir á hinni hraðfara hækkun, og næsta dag, 1. sept. síðastliðinD, var símuð út um alt tilkynning eða frjett þess efnis, að Noregsbanki hefði þann dag í samvinnu við aðra banka í landinu gert ráðstafanir til að vernda hina norsku krónu gegn erlendri spákaupmensku (sem var álitin orsök hækkunarinnar). I>ví væri leyndu haldið að svo stöddu hverjar þessar ráðstaf- anir væru, en með þeim væri hækkun norsku krónunnar stöðvuð. En þettað fór á annan veg. Úr 24 kr. 50 au. fjell sterlings- pundið í Oslo á næstu 9 dög- um niður í 22 kr. — Þegar lil- kynningin var send út fyrir 1% viku var gullgengi norsku krón- unnar 74°/o en er nú um 83%. Hækkun hennar mun aldrei hafa verið eins óðfluga eins og þessa dagana. Þetta er svar norsku krónunnar upp á stöðvunar- yfirlýsingu bankanna. Lærdómurinn. Sje unt að draga nokkurn lærdóm af því sem gerst hefir í gengismálum Dana og Norð- manna í sumar, sýnist hann vera sá, að þjóðfjelagið eða stofnanir þess hafi ekki í hönd- um nein ráð eða tæki sem duga til þess að stöðva hækkun papp- írsgjaldeyrisins, þegar nægar á- stæður til hækkunarinnar eru fyrir hendi. Þetta kann að þykja undarlegt, en er það í rauninni ekki þegar betur er að gáð. Því hvað er hækkun krónunnar? Hún er ekkert annað en lækk- un í krónutali á verði hins er- lenda gjaldeyris, t. d. sterlings- pundanna. Og með hverju er unt að hindra það, að eigandi sterlingspunda, sem telur sjer hag í að selja þau fyrir 22 kr., geri þaö? Með því að bjóða honum hærra verð, t. d. 24 kr., þá tekur hann auðvitað því boði. En, ef það er nú nokkuð alment álit þeirra manna, sem eiga sterlingspund, að hagnaður sje að selja þau fyrir 22 kr., hve mikið berst þá á markað- inn af þeim fyrir 24 kr.? Það hafa þjóðbankarnir í Danmörku og Noregi væntanlega fengið að finna, þeim hefir boðist meira fyrir háa verðið en þeir treystu sjer til að kaupa, og þegar þeir urðu að hætta, þá hjelt salan áfram fyrir lægra verð í krónum, þ. e. þar með var þeirra króna hækkuð. Og þá sitja bankarnir auðvitað eftir með tap. Hafi ein niiljón sterl- ingspunda verið keypt á 24 kr., og lækki verð þeirra niður í 22 kr. áður en bankinn getur selt þau aftur, þá er tap hans 2 milj. kr. íslenska krónan. Hún stóð í ársbyrjun 1924 í tæpum 54% en fall dönsku krónunnar í jan. dróg hana með sjer og fjell hún niður í 48% í febr. og mars 1924. Síð- an fór hún smáhækkandi, hægt í fyrstu en frá byrjun júlímán- aðar með meiri hraða og stóð f árslok í 63%. Síðan hjelt hækk- unin áfram með minni hraða, en í júni, júlí og fram í ágúst þ. á. var gengisskráningin óbreytt, um 69% af gullverði, en sú kyrstaða endaði með snöggri hækkun og er gengið koinið upp í 75% (sterlingspund á 24 kr.) þegar þetta er ritað. Eins og myndin sýnir hefir ísl. kr. allan timann verið lægri en hin danska, en þó var mun- ur þeirra óverulegur fyrsta fjórð- ung þessa árs. Eftir siðustu hækkun dönsku krónunnar er munurinn orðinn meiri en hann hefir nokkru sinni áður orðið á þessu tímabili. Enn þá eftirtektarverðari er þó afstaða isl. krónunnar við hina norsku. Myndin sýnir greini- lega að gengismunur þeirra var yfir höfuð lítill fyrri helming ársins 1924, en úr því fór islenka krónan uppúr hinni, stóð 7% nær gullmarkinu um síðastliðin áramót, og heldur því fyrri helming yfirstandandi árs. En meðan ísl. krónan stóð kyr í júlí og ágúst hefir norska kr. unnið á, og í siðustu hækkunar- lotunni hefir hún til þessa farið langt upp úr ísl. krónunni. ísl. afnrðir og norska krónan. Gengi norsku krónunnar heflr á tvennan hátt mikla þýðingu fyrir sölu isl. afurða. í fyrsta lægi kaupa Norðmenn hjeðan saltkjöt, og borga með norskum krónum. Því lægra sem norska krónan stendur í hlutfalli viö þá íslensku, því meiri hætta er á að þessi verslun verði oss'óhagstæð. 1 fyrra haust fengum vjer ekki meira en 92 kr. islenskar fyrir hverjar 100 kr. norskar sem Norðmenn greiddu fyrir salt- kjötið, af þvi að norska krónan stóð þá lægra en sú íslenska. Nú hefir afstaðan fyrst breyst svo, að þessi gengismismunur er horfinn, og jafnvel nú allra síðast svo komið að vjer fáum fleiri krónur íslenskar fyrir kjöt- ið en Norðmenn borga norskar. Aðstaða kjötsölunar hefir þvi batnað frá því í fyrra auk þess sem íslenskir kjötútflytjendur nú fá verðmeiri krónur fyrir vöru sina. Allur barlómur um það, að bændurnir tapi á gengisbreyting- um þehn, sem gerst hafa, er enn sem komið er eintóm uppgerð, sem ekkert hefir við að styðjast. Að hinu leytinu eru Norð- menn keppinautar okkar um fisksölu í Miðjarðarhafslöndun- um. Ef íslensk króna hækkar, án þess að sú norska fylgi með, fá þessir keppinautar vorir um stund betri aðstöðu við fisksöl- una en vjer. Þeir fá þá fleiri krónur heim en vjer fyrir hvert sterMngspund, sem kaupendur greiða fyrir fiskinn, og standa þess vegna vel að vígi með að undurbjóða okkur. 1 fyrra haust var aðstaðan erfið fyrir íslensku fiskverslunina að þessu leyti, en samt gekk hún vel. Hækkun norsku krónunnar móts við þá íslensku, sem nú er orðin, bætir aðstöðu vora að þessu leyti. Líkurnar mestar fyrir því, að þegar báðar hækka muni fisk- neytendur í fyrstu verða að /o Gengi íslenskrar, danskrar og norskrar kr, 1924--25. —— tsé /rs. ——do r>sA Af' ...... tforsA /í'r

x

Vörður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.