Vörður


Vörður - 09.06.1928, Síða 1

Vörður - 09.06.1928, Síða 1
VORÐUR m Utgefandi: Miöetjórn íhaldeflokksins. Afgreiðslumaður og gjaldkeri Ásgeir Magnússon Laugav. 32. Simi 1432. VI. ar. Reykja'vih. O. ]úni 1028. 25. blaó. Fimtugur íslendingur. Hinn 5. júní síðastliðinn voru liðin 50 ár síðan Thor Jensen steig fyrst fæti hjer á land. Hann var þá fjórtán ára gamall og ráðinn í þjónustu Brj'desverslunar á Borðeyri um fimm ára skeið. Að vísu eru ís- lenskir annálar margfróðir um smávægilega atburði, en þó hef- ir það litt verið í frásögur fært hingað til, hvenær danskir búð- ardrengir hafa komið hingað eða horfið hjeðan aftur, því að það hefur sjaldnast þótt -máli skifta. En danski dreng- hnokkinn, sem kom til Borð- eyrar 5. júní 1878, var rir alt öðrum málmi steyptur en venjulegir búðarsveinar. Enda er nú svo komið, að hann er orðinn einn hinn nafn- kunnasti maður á íslandi og hefur rist nafn sitt dýpra í sögu þjóðarinnar en flestir aðrir samtiðarmenn. Thor Jensen festi óvenjulega fljótt og fast rætur í islenskum jarðvegi. Hann tekur íslend- ingasögur fram yfir allar aðrar bókmentir og er þaúlkunnugur þeim öllum, enda mun hann hafa teygað þær í sig á unga aldri og síðan aldrei þreytst á að lesa þær og endurlesa. Hann kvæntist 23 ára gamall góðri ís- lenskri konu, Þorbjörgu Krist- jánsdóttur, og hefir heiinili þeirra jafnan verið ramíslenskt og sambúð þeirra svo fögur og friðsæl, að slíkt munu fá dæmi. Þau hafa eignast 12 börn, og eru 11 á lífi, öll mannvænleg og sum þeirra orðin þjóðkunn fyrir löngu. Thor Jensen er hinn síðasti landnámsmaður, sem komið hefir hingað til lands. Hann hef- ir fundið það á sjer frá upp- hafi, að íslands framtíð var kans framtíð. Sá sem þetta rit- ar þekkir ekki trúarskoðanir hans, en vel gæti hann haft hinn sama átrúnað sem sumir hinna fornu landnámsmanna, að hann inundi deyja inn í eitt- hvert fjallið eða fossinn, t. d. inn í Lágafell. Hér eru þess engin tök að ininnast á höfuð- atriði sögu hans, hvað þá held- ur meira. En þess skal getið að um 1900 fluttist hann hingað til Reykjavíkur og var þá félaus maður, — hafði áður rekið verslun á Akranesi um skeið og orðið fyrir ineiri óhöppum, en hann gæti borið. En honum féllu ekki hendur í skaut, þótt nokkuð blési á móti. Enda átti hann það í fórum sínuin, sem fé er betra: meðfædda hæfileika til fjesýslustarfa, óbilandi áræði og frjósamt ímyndunarafl, sem fleytti honum og öðrum yfir þau blindsker og boða, sem flestir aðrir einblíndu á og voru fulltrúa um, að öll framsókn íslenskra atvinnuvega mundi stranda á. Árið 1905 koin hann á laggirnar hinu fyrsta íslenska togarafjelagi (,,Alliance“)- Það mun ekki ofsagt, að því fyrir- tæki fylgdu hrakspár úr garði, en nú mun einmælt, að aldrei frá landnámstíð hafi gerst meiri tiðindi í sögu íslenskra atvinnuvega, heldur en þegar íslendingar eignuðust hinn fyrsta togara. En Thor Jensen hratt honum á flot, og mun það aldrei fyrnast. En hitt er þó ekki siður merkilegt um manninn, að þó að Ægir brosti við honum og Icti auð fjár af hendi rakna við hann, þá mun Thor Jensen þó aldrei hafa hugsað sjer að ganga honum á hönd æfilangt. Hann elskaði meir landið en sjóinn, túnin meir en fiskreit- ina, og þá er honum þótti tími til kominn fól hann sonum sín- um rekstur sjávarútvegsins að öllu leyti, en snerist sjálfur al- gerlega að landbúnaði. Og nú gerðist hann ærið umsvifamik- ill. Hann hefur sömu trú á landkostum sveitanna sem hin- ir gömlu landnámsmenn. Hann hyggur, að hver hjáleiga geti orðið að höfuðbóli, ef ekki skortir fje og framsýni. Ást hans til landbúnaðarins kom sneinma í Ijós. Þá er hann var verslunarstjóri í Borgarnesi bjó hann stórbúi á tveim jörðum, Einarsnesi og Árnabrekku, og gerðist þá á skömmum tíma fjárauðgasti bóndi í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum. Nú er það hans mesta unun að ldjást við mela og mýrarfláka upp í Mos- fellssveit, enda brosa þar nú við skrúðgrænir töðuvellir sem áður var rýrt og rytjulegt auðn- arsvæði. Á Korpúlfsstöðum slógú í fyrra sumar tveir ung- lingar 4000 hesta af af bestu töðu með vélum. Þar og á Lágafelli eru nú unnin jarða- bótarstörf, sem aldrei bafa átt sinn líka hjer á landi. Aldrei nokkru sinni hefur verið gerð viðlíka tilraun til þess að opna auðlindir islenskrar moldar. Við Islendingar getum víst allir rakið ættir okkar til Egils Skallagrímssonar. En ef Egill mætti nú líta upp úr gröf sinni og renna augum yfir landið, þá er ekki alveg víst, að hann þættist þekkja sitt ættarmark á öllum landsbúum. Hann mundi telja þá eina af Mýramanna- kyni, er rausnarmenn væru i búi, ofurhugar til framkvæmda og ókvalráðir, hvað sem að höndum bæri. Starsýnast mundi honum ef til vill verða á danska bóndann á Korpúlfsstöðum. „Sá hefir vfirbrgað várt Mýra- manna ok er í engu meðalmað- ur ok mun ek segja hann í ætt vára“. En þó mundi sú ætt- færsla óþörf. Thor Jensen hefur fyrir löngu sjálfur sagst i ættir vor íslendinga. Því að hver má heita íslenskur, ef hann er það ekki? Börn hans eru islensk, stórvirki hans eru íslensk og trú hans á framtið lands og lýðs á að verða íslensk, þó að mikið skorti enn á að svo sé. Á samri stundu, sem vér allir stefnum í kjölfar hins mikla trúboða, mun birta til fulls yfir fslandi. Súlan. Flugfjelagið hefur gefið flug- vjelinni heitið „Súlan“. Hefur Súlan undanfarna daga svifið um loftið og víða farið. Síðast fór hún reynsluför til ísafjarð- ar, Siglufjarðar og Akureyrar. Gekk ferðin að óskum á norð- urleið, og flaug Súlan til Akur- eyrir á 4% tíma. Var komu hennar hvarvetna fagnað sem von er til. Á þriðjudagskvöld lyfti Súl- an sjer til flugs frá Akureyri og var ferðinni heitið til Reykjavíkur. Var flogið út Eyjafjörð fyrir mynni Ólafs- fjarðar og vestur um Siglunes, skáhalt inn Skagafjörð norðan við Tindastól til Skagastrandar, vestur yfir Húnaflóa, yfir land milli Bitrufjarðar og Gilsfjarð- ar og yfir Dalasýslu þvera. Var nú skemst ófarið til Reykjavík- ur. En er komið var miðja vegu suður yfir Snæfellsnes bil- aði hreyfivjelin. Var Súlan þá í 6000 feta hæð. Sentist hún þá ineð 150 km. hraða niður á við, en var stöðvuð i 3300 feta hæð. Var henni siðan rent til sjávar og settist hún á Akraós. í gær dró vjelbátur Súluna hingað. Hefur nú verið sett í hana ný hreyfivjel, og fer hún í dag reynsluför til Stykkishólms. Eigi er fyrir að synja, að sjálfsagt slær óhug á marga við að reynsluförin til Akureyrar skyldi inistakast. Er þó að vænta að innan skams fái menn að nýju trúna á þetta þjóðþrifafyrirtæki. Þögnin rofin. Hjer í blaðinu hefur verið skýrt all ítarlega frá breyting- um þeini er síðasta Alþingi gerði á Landsbankalögunum. Úr stjórnarherbúðunum hefur heyrst ein, og aðeins ein rödd er reynt hefur að bera í bæti- fláka fyrir gerðir stjórnarliðs- ins. í síðasta tölubl. Tímans birtist grein eftir ókunnan, og málinu sýnilega gersamlega ó- kunnugan höfund, er nefnir sig „Y“. Dylgjur. Höfundur byrjar með nokkr- um smellnum sögulegum upp- lýsingum, svo sem þeim, að 5 árum áður en íhaldsflokkurinn var stofnaður hafi Framsókn barist heilögum bardaga við Ihaldsfl. fyrir heill Landsbank- ans. Sýnist bardag'a þeim enn eigi lokið, þvi nú telur „Y“ að Vörður hafi „beinlínis ráðist á bankann með dylgjum". Um dylgjur Varðar i garð Landsbankans, er það að segja, að Vörður hefur getið þess að bankinn hafi tapað fje, sem ekki er í frásögur færandi. Slíkt hefur jafnan skeð síðan þróun og framför hófst í íslensku at- vinnulifi, og mun endurtaka sig meðan atvinnulífið er jafn áhættusamt og nú er. Hitt hef- ur Vörður bent á, að undarlegt er það og vítavert af landstjórn- inni að halda leyndri niður- stöðu matsnefndarinnar. Undar- legt vegna þess, að slíkar upp- lýsingar voru þinginu, sem fjallaði um bankamálið nauð- synlegar, en vítavert fyrir það, að með þessari leynd er bank- anum gerður skaði. Einmitt leyndin verður mönnum ásteit- ingarsteinn. Það er leyndin, sem gefur mönnum eins og „Y“ ástæðu til að róta upp moldviðri getsaka og dylgja i garð bankans. Það er leyndin sem veldur að „Yr“ um töp bankans segir: „En hvað er stórfje á mæli- kvarða fhaldsins? Eru það þau töp sem þegar hafa verið af- skrifuð og öllum eru augljós af reikningum bankans? Liklega eru það ekki þessi töp ein, o. s. frv.“. Slík ummæli geta skaðað bankann. Óvissan gefur imynd- unaraflinu byr. Ef stjórnin hefði birt niðurstöðu matsins, er engin hætta á að dylgjur, sagðar í athugunarleysi, eins og þær er „Y“ veifar, gætu skaðað bankann. Nú er ekkert ugg- laust í þeim efnum. Vörður vill bæta því við, að hann telur Landsbankann standa föstum fótum. Keppikeflið. Höfuðáherslu leggur „Y“ á að telja lesendum trú um að allar þrjár breytingarnar er síð- asta þing gerði á Landsbanka- lögunum sjeu í fullu samræini við tillögur milliþinganefndar- innar i málinu, og jafnframt reynir greinarhöfundur að leiða líkur að því að breytingarnar séu til hins betra. Það er nú í sjálfu sjer engin sönnun fyrir ágæti brejding- anna að milliþ.n. hefði hugs- að sér lögin þannig. Um málið höfðu ýmsir aðrir aðiljar fjall- að, engu siður dómbærari en milliþ.n., t. d. stjórn Lands- bankans og tvennar ríkisstjórn- ir. En auk þess er það nú svo að tillögur milliþ.n. um þessi atriði voru mjög skiftar. Milliþ.n. skipuðu 5 menn. Af þeim eru 3 í Framsóknarfl. Einn er Ihaldsm., en einn utan- flokka. íhaldsmaðurinn og einn Frainsóknarmanna voru þegar frá öndverðu algerlega mót- fallnir rikisábyrgðinni. Öll nefndin var samhuga um að stofnfje. bankans mætti ekki minna vera en 3 miljónir, en eins og menn muna vildi Fram- sóknarstjórnin færa það niður i 2 miljónir, og um yfirstjórn bankans er það að segja, ,að enda þótt nefndin i úpphafi legði til að 15 menn færu með hana, er það auðvitað því alveg óskylt sem nú hefur verið gert, að reka hið löglega skipaða bankaráð og setja nýtt i stað- inn. Það er því alveg tilgangslaust fyrir ,,Y“ að ætla að leita ó- hæfunni skjóls í þvi trausti er kjósendur kunna að bera til milliþ.nefndarinnar, og slík til— raun vitnar aðeins um skilning greinarhöfundar á því, að erfitt er að verja framferði þing- meirihlutans í þessu máli. Frá eigin brjósti. Skal nú stuttlega athugað það, sem „Yr“ segir frá eigin brjósti um breytingar á Landsb.lögun- um. Ríkisábyrgðin. Hjer í blaðinu var ‘synt fram á, að af ríkisá- byrgðinni mundi margt iít leiða. Meðal annars það, að aðrir sparisjóðir mundu veslast upp, að sjálfum seðlabankan- um gæti stafað hætta af ótak- mörkuðu aðstreymi sparisjóðs- fájrsins og að vel geti af hlot- ist rýrnun á lánstrausti lands- ins. Hér þykir „Y“ sem heimskan keyri um þvert bak. Hann segir: „En jafnframt þvi að höfund- ur gerir ráð fyrir að ríkissjóðs- ábyrgðin afli bankanum svo mikils trausts að þangað streymi sparifjeð „smátt og

x

Vörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.