Menntamál - 01.12.1936, Blaðsíða 6

Menntamál - 01.12.1936, Blaðsíða 6
6 verður í hana athugunum 4 ofanskráðum málsatriðum eða ekki, þá þyrfti hún að vera nákvæmari um þau máls-atriði, sem á annað borð eru athuguð. Vildi eg helzt, að tölur yrðu birtar fyrir hverja sveit og hvert þorp, í stað þess sem skýrslan nú birtir tölur fyrir hverja sýslu aðeins og helztu bæina. Ónjákvæmnin sést bezt ef menn slengdu Siglufirði saman við Eyjafjarð- arsýslu og tæki svo meðaltal af hljóðvilltu börnunum*) .En sýslan er annars því nær laus við hljóðvilluna. Og þar sem skýrslan sýnir latmæli í Suður-Múlasýslu (4.3% p» 7.5 t, 20.4 k), þá má ganga að þvi vísu, að slíkt meðaltal gildi elcki um alla sýsluna, heldur er það suður-endi hennar (að Berufirði meðtöldum) og svo kannske sjávar- þorpin (sbr. Neskaupstað), sem sýna latmælið. Gamla einokunarverzlunin setti glögg mörk sunnan Fljótsdals- héraðs og Fáskrúðsfjarðar, og ber málið menjar þessara marka enn i dag, eins og ég sýndi í grein minni „Um mál á Fljótsdalshéraði og Austfjörðum 1930“ (Skírni 106 (1932): 33—54). í sömu grein benti ég á, að liklegt væri að víðar mætti sjá menjar kaupsviðanna í málfari. En til þess er nauðsynlegt að láta sveitirnar njóta sín, að minnsta kosti þar sem vart verður við nokkurn mismun. Vænt þætti mér um það, ef þessi grein gæti ýtt undir kennarana að gefa málinu meiri gaum við næsta lands- próf. — , Stefán Einarsson. *) Skýrt dæmi um þetta er Boi’garfjarðarsýsla (56,6% i > e, 35,5% u>ö). Akranes á miklu meira en bróðurpart af hljóðvill- unum þar. — Annars var mér ljóst, er eg samdi skýrsluna, að hún var of ónákvæm á þessu sViði. En tími vannst ekki til frek- ari úrvinnslu. — A. S.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.