Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.06.1908, Page 2

Bjarmi - 01.06.1908, Page 2
no B J A R M I kost á sér til þingmensku; var liann þá orðinn sýslumaður í Rangárvalla- sýslu. En mikil eftirsjá var þinginu að svo starfsömum manni og vitrum, sem hann var. A þingmenskuárum sínum ritaði liann margar merkilegar rilgerðir um ýmisleg landsmál, bæði í Andvara og Þjóðólfi, og þótli jafnan mikils um það vert. Arið 1894 tekur hann við amt- mannsembættinu norðan og austan. — Sýslumannsembættinu hafði hann gegnt með alúð og samvizkusemi, en þó um leið með röggsemd, og var leiðlogi bænda í ýmsum framkvæmd- um. Páll varð hinn síðasti amtmaður nyrðra, og mun jafnan verða talinn meðal hinna fremstu, sem því em- bætti hafa gegnt. Og þó að embætt- isslarf hans væri fremur þýðingarlítið, þá hóf hann það til virðingar með hugsjónum sínum og framlakssemi og afrekaði mikið, einkum þó sem forseti amtsráðsins. Landbúnaðinn bar hann jafnan fyrir brjósli og fékk mikilvægum umbótum lil vegar komið (útrýming fjárkláðans, búnaðarskól- inn á Hólum, búnaðarfélag íslands, ræktunarfélag Norðurlands). Árið 1897 tók Páll að gefa út tíma- rit um »lögfræði, löggjafarmál og þjóðhagsfræði«, sem nefndist »Lög- fræðingur«. Komu 5 árgangar út af því, að mestu leyti eftir hann sjálfan. Þar eru margar ágælar ritgerðir, sem snerta búnaðarmál, er skýrðu mjög hugmyndir manna um þau efni (á- gang búfjár, ábúð jarða). Alþýðumentunarmálið var fyrsta og helzta málið í augum lians. I langri og ítarlegri ritgerð um mentun barna og unglinga (í »Lögfræðingi«) scgir hann meðal annars: nLifandi trú og sönn mentnn eru máttarstoðirnar undir siðgæði og siðmenningu þjóðanna«. Þá væri vel, ef allir formenn þjóðar vorrar litu sömu augum á það mál. En harðorður var hann og kvað Islendinga ómentaðasta allra þjóða og sannaði það með haglræðisskýrsl- um annara þjóða, að landsmenn hér Iegðu afarlítið lil mentamála í saman- Imrði við aðrar þjóðir. Eins og liann bjóst sjállur við, þá vakti þessi ber- sögli hans um menlunarleysið, ásamt tillögu hans um auknar fjárveitingar til alþýðumentunar, almenn mótmæli. En hann fór nú einu sinni eftir sinni sannfæringu, en ekki því, hvað al- þýða manna vildi lieyra. En — síðan hefir alþýðumentunarmálið verið eitt meðal liinna fremstu á dagskrá þjóð- arinnar. Árið 1904 var hann skipaður 3. forstjóri við lilutafélagsbankann, sem þá var ný-stofnaður, og átli þar eink- um að vera lögfræðislegur ráðanautur. Það var starf, sem hann var einkar vel til fallinn. Verk þessa merkismanns var mikið, þó æfin yrði ekki löng. Hann dó 17,-des. 1904 og var sem allur lands- lýður fyndi til þungrar áhyggju út af því, að hann skyldi vera kallaður svona burtu frá hálfloknum iðjum, og þætli sem »óliamingju Islands verða alt að vopni«. Páll var frábær eljumaður, las eða skrifaði öllum dögum og fram á næt- ur, og þó var hann heilsutæpur, en viljinn var óbilandi. Honum var jafnan anl um að komast að kjarn- anum í hverju máli, og sparaði eigi lil þess fé né fyrirhöfn. Manna íær- astur hel’ði liann verið um það, að byggja íslenzka löggjöf upp á þjóð- legum grundvelli, ef lagaskólinn ís- lenzki hefði þá verið á fóL kominn, því hann var manna hezt að sér í fornlögum vorum og réttarsögu. Á síðari árum var hann mjög trú- rækinn, sólli kyrkju að jafnaði og

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.