Bjarmi - 30.04.1911, Qupperneq 1
BJARMI
~ Iv R I S T I L E G T HEIMILISBLAÐ ——
V. árg. Reykjavík, 30. apríl 1911, 9.
»PA skalt vila, að vér muiuim ckki dijrka jiína guði«. l);in. 3,18.
arþökk fyrir margvíslega sloð i orði
Gleðilegt sumar.
Gleðilegt sumar — í sveit, við fjörð,
nú sumri fagna, mín kæra pjóð!
Með sumrinu koma lifamii Ijóð:
langpreyðir fuglar, blóm á jörð.
f’au Ijóð eru þér til yndis æ,
þau eiga ser leið að hverjum bæ;
í loftinu farfugls hljómar harpa,
og hlæjandi blómljóð skin i varpa,
engum leiðist að lesa þá,
þá leiðist engum að hlusta á.
Gleðilegt sumar — í sveit, við fjörð,
nú sumri fagna, mín kæra þjóð!
Til dáða hvetji þig lífsins Ijóð:
hver langþreyður fugl, hvert blóm á jörð.
Heiðraðu alt, sem er hátt og rétt,
en hreinsaðu burt hvern smánarblett.
Gleymdu þvi ekki — hið vonda er vald,
varastu mók oq undanhald;
þú átt svo mörgu vondu að verjast,
og við það er heilög skylda að berjast.
Lát þér nú liitna um hjartarót,
sem hitni blómknappur sólu mót,
og eins og hann bráðfús brýst úr hýði,
svo bruna þú fram i lielgu stríði,
með guð i hjarta, í hreinni trú, —
það hamingjusumar byrji nú;
þá mun þinn fífill fagurt Ijóma,
hann fellur annars úr tölu blóma.
Til vina vorra.
Um leið og vér óskuin yður af
hjarta gledilegs sumars frá drotni vor-
um, þá ijáum vér yður jafnframl ást-
og verki á liðnum vetri.
Vér þökkum yður fyrir liönd þessa
málefnis, sem guð hefir falið oss á
hendi að styðja með blaði voru. Það
er hið sama málefni, sem hélt þjóð
vorri uppi á liðnuin öldum í þyngstu
raunurn hennar; það er blessunarrík-
asti arfurinn, sem vér tókum eftir
forfeður vora, foreldra vora.
Vér viljum eigi láta neinar óhollar
nýungar svifta oss þepsum arfi og
gjöra oss þannig ræktarlausa við
land og þjóð, við heimili vor, við
vini vora.
Vér höldum áfram í sama anda,
hvað sem liver segir, þó að svo
»hundrað verði um einn«, eins og
kveðið cr, því að vér erum þess full-
vissir, að guð er með oss og að krist-
indómurinn í þeirri mynd, sem vér
flytjum hann, er eina ráðið, sem dugir
til þess að bjarga vorri ástkæru þjóð
frá þeirri ófæru, sem lnin stendur nú
svo nærri í llestum greinum.
Vér liöfum, eins og Kári, knúið á
hurðir Flosa og fengið heztu viðtök-
j ur hjá yður á undanförnum missir-
um. El' guð l)lessar hag yðar á ný-
byrjuðu sumri, þá bið eg yður sem
fyr að styðja oss málefnisins vegna,
svo sem með því, að útvega blaði
voru marga og góða kaupendur. Vér
segjum það enn, að eitthvað verður
óhamingju Islands annað að vopni
en það, þó að þeim fjölgi, sem styðja
vilja að viðgangi lifandi krislindóms
meðal þjóðar vorrar.
Vér tökum þakklátlega öllum stuðn-