Bjarmi

Volume

Bjarmi - 30.04.1911, Page 2

Bjarmi - 30.04.1911, Page 2
156 B .1 A R M I ingi í orði og verki og þakklálseminni fylgir gleðin í drotni. ()g gefendurnir lara heldur ekki á mis við blessun, því »guð elskar glaðan gjafara«. Einar Hjörleifsson Og „Drottinn i syndinni“. Vér lesum eigi skáldsögur að jafn- aði, en þegar gullsaga Einars Hjör- leifssonar barsl oss í hendur, þá gál- um vér þó eigi still oss um að lesa. Oss var svo mikil forvitni á, hvers konar gull það væri, sem fulltrúar þjóðarinnar létu hana kaupa af Einari. Einar er nú búinn að réyna allar sínar bjöllur, og nú þrífur hann síð- asl til gullhjöllunnar lil að kveða sér hljóðs hjá þingi og þjóð. Ekki er sagan gull, öðru nær, en hún selst sein gull og verður líklega lesin sem gull á þessari vorri annál- uðu gyllingaröld. Á fyrri öldum voru uppi frægir kunnáttumenn, sem kallaðir vóru gullarar. Þeir þóttusl geta breytt öll- um málmum í gull með leyndardómi, sem þeir einir þektu og kallaður var »spekingasteinn«. Margir höfðingjar urðu til þess að kaupa það af þessum gullurum, fyrir of fjár, að búa til gull handa sér; seltusl þeir þá að í einhverju »gerð- inu« í grend við höfuðból og hallir ríkismannanna og þóttusl vera að blása gull nætur og daga. Og gull trúgjarnra manna streymdi í vasa þeirra, en gullgerðin þeirra var ekkert annað en tál. Nú eru þessir gullarar fyrir löngu undir lok liðnir og aðrir komnir í staðinn, sem þykjast geta búið til sagnagull og IjóOagull úr hvaða efni sem er. Einar er einn af þeim; hann er konungur þeirra hér hjá oss. Sumir halda, að leyndardómur Ein- ars sé sá kyngikraftur, sem kallaður er »máttur mannsandans« og haíi hann safnasl fyrir í Einari, enda brot- isl út við og við í alþýðu- og bún- aðarfyrirlestrum í borg og bygð. En svo er ekki. Leyndardómur- inn er einmitl fólginn í »ævintýri« því í gullsögunni, sem prestur »Frísafn- aðarins« (þ. e. Öndungasafnaðarins) í Reykjavík er látinn segja Borghildi gömlu. Vér höfum það fyrir salt, þangað til annað reynist sannara, að sá »drotl- inn« sem þar er nefndur, verandi í nfarsœldarleit, sorg og synd«, sé engin annar en Einar Hjörleifsson sjálfur, þessi makalausi bakhjarl og mátlar- stólpi kyrkju vorrar og landstjórnar nú á siðustu árum. Vér liöfum einu sinni minst á hann áður. Það er kunnugt, að Einar var í Farsældarleil, þegar Práin gaf lionum allar dætur sínar, vonirnar; en svo dóu þær allar og Þráin líka og þá hvarf hann þaðan, og kvað: »Far vel, pú fleygings-líl', þú ibssandi vínanna straumur, pér bláeygðu brosmildu víí', þú töfrandi, titrandi glaumur, pú naulnanna dís-ljúíi draumur. Pú galst mér pað alt, sem þú áttir, pú tókst alt, sem taka pú máttir. Eg elska þig sífelt — en sál min er þrcyll. Og svo ert pú ekki neitt«. ()g svo setlist hann að í Sorginni, sorginni út aföllum »vonadauðanum« og þá kvað hann: »í hughans var sólskin og hjarlað var ungt, er heim kom hún til lians — Sorgin, og lótatak hennar fanst honum þungt, sem fallandi hamraborgin«. En nú virðist hann hafa lekið sér bólléstu í Syndinni fyrir fult og alt, og baðar nú í rósum. og er iarinn að

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.