Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.11.1913, Síða 4

Bjarmi - 15.11.1913, Síða 4
180 B JARMI var hann, því að áður en hann smeygði sér inn á heimili bróður míns, þá hafði hann svift mig sálarró og lífshamingju, því að við vorum heit- bundin, hann var unnusti minn, þó að það vissu engir aðrir. En svo komst hann í kunningsskap við móð- ur þína — ílagarinn —«. Þá reið þruma, svo að Valborgu svimaði. En þegar hún kom til sjálfrar sín aftur, þá var Árni allur á burtu. Hún heyrði eilthvað til hans í forstof- unni og að hann lauk upp hurðinni, og svo heyrði hún ekki meira. Val- borg gekk þá í einhverju ofboði út að glugganum, en rétt i því brá yfir leiftri, og sá hún Árna þá bregða fyrir niðri á bryggjusporði; hann var þar að varpa segli og árum niður í bát- inn þeirra og ætlaði að róa yfir Vík- ina, yfir að Framnesi og segja Rögnu tíðindin. Valborg þaut ofan á bryggju í myrkrinu og rigningunni og hrópaði og kallaði á eftir honum og bað liann hverfa heim aftur, en hann lét sem hann heyrði það ekki. Hún hneig þá niður á bryggjunni, líkt og eik i fellibyl, og lá þar lengi, þangað til heimilisfólkið rakst þar á hana meðvitundarlausa og holdvota og bar hana inn í rúm. Og jafnskjóll var sent eftir Olafi lækni. — Frh. Timarnir breytast. Margir hafa óskað, að fá að sjá það, sem vér fáum að sjá á þessum tímum í Austurálfunni, en fengu ekki að sjá það. Vér, sem fáum að sjá það, erum gæfusamir; og vér vonum að fá að sjá ennþá stærra og meira en þetta. Eg les um stúdentafundina, sem þeir Dr. Mott og Eddy hafa haldið í 13 stærstu bæjunum í Kina; þá fundi hafa sótt yfir 137 þúsundir manna. Yfirvöldin hafa útvegað þeim stærstu salina í bæjunum í marga daga til fundarhaldanna, og skólarnir hafa gefið lærisveinunum frí til að geta sótt fundina. Ávextir fundanna eru mörg félög til biblíulesturs og þús- undum saman hafa ungir menn á- kveðið að taka kristna trú. Eg fékk Ieyfi til að vera á fundun- um í Múkden. Eg varð hrifinn af því að sjá stóra tjaldið, sem kenslu- málastjórn bæjarins hafði ótilkvödd og á eigin kostnað reisa látið, — sjá þetta stóra tjald þéltskipað 5—6 þús- und ungum mönnum, klæddum ein- kennisbúningi námssveina, sem með athygli hlýddu á boðun lifandi krist- [ indóms. Aldrei hefir áður fengist jafngott tækifæri til í Austurlöndum að fá fólk til að hlusta á boðun orðsins, og fyrir því erum vér svo vonglaðir í starfinu. Eftir margra ára undirbúning virðist nú hentugi og heillaríki tíminn vera upprunninn. Vér höfum einnig orðið varir við þelta nýlega hérna í Feng-liwang- cheng. Vér héldum í 2 daga vakn- ingarsamkomur hér (2 samkomur hvorn daginn) í slærsta sal bæjarins, í leikhúsinu. Slíkar samkomur höfðu haldnar verið i An-tung rétt eftir stú- dentafundina, og vér ásettum oss því að gera það einnig hér. Vér fundum borgarstjórann að máli út af þessu, og hann lók einkar vin- gjarnlega málaleitun vorri, lofaði að útvega oss leikhúsið endurgjaldslausl og vinna sjálfur að því eftir mætti, að samkomur vorar gælu orðið sem fjölmennastar. Þetta var nú ágætt. En svo var eftir að vita, hvort vér gætum fengið ræðumennina frá An-lung samkom- unum til þess að koma til vor. Það

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.