Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.11.1913, Side 7

Bjarmi - 15.11.1913, Side 7
BJARMI 183 rétt, aö við skilum Guði henni aftur, áð- ur en við týnum henni? Þú veist það, niamma, að við notum hana ahirei, livort sem er!« Úr ýmsum áttum, Heima. Úr bréfi frá konu í sveit: . . »Mér finst ávalt, að eg þuríi tlálitla rósama slund til að búa mig undir að koma i Guðs hús að heimsækja Drottin minn og frelsara; mér finst eg þá hafa miklu betri not af komu minni þangað .... I’að er nokkuð sem eg er alveg viss um að þér samgleðjist mér að vita um, að alt þetta ár heíir mér fundist sönn ánægja að lilusta á ræður þrestsins okkar. Pær bera það með sér, að bann er orðinn nýr maður. Nú er auðfundið að hann liefir lifandi áhuga á, að vísa fólkinu á hinn einu réllci veg, og vara trúlega við villi- götunum. Petta er mér svo óvenjulega mikið gleðiefni, að eg verð að láta það ganga fyrir öllu öðru að segja yður frá því. Kg lietði sennilega ekki svona hjart- anlega gleði af þessu, ef eg hefði ekki þráð það svo mikið að svo yrði. Eg hefi svo iðulega beðið Guð að vekja liann og styrkja til þess hann yrði áhugasamur starfsmaður í lians víngarði, og Guði sé lof fyrir bænheyrsluna, eins og alla aðra náðarríka blessun, sem hann veitir mér Overðugum aumingja. Alt af siðan eg kyntist yður, hefi eg beðið fyrir lionum, þó vist ekki eins oft og ált hefði að vera, en eg liefi alt af trúað, að Guð mundi veita mér þá bæn«. Pú, sem þetta lest, vilt þú ekki fara að dæmi þessarar trúuðu konu og biðja fyrir þrestinum þinum? Ilann þarfnast fyrir- bænar þinnar. Það léttir honum starfið meir en þú veist og það ber þér einnig og heimili þinu blessunarávöxt. (Jóli. 15, 7—8). Erlendis. Frá Kína. Eg gat um það í vor að forseti Kinaveldis hefði heitið á kristna söfnuði innanlands að halda fyrirbæna- samkomur vegna ættjarðarinnar. Eins og við var að búast, þótti trúræknum heiðnum mönnum sér sýnd vera óvirðing mikil með þessari bón. í borginni Tjent- sin varð gremjan svo megn, að Buddhist- ar, Taóistar og Múhameðstrúarmenn liéldu fjölmennan mótmælafund. Eftirjnokkrar umræður stakk einn af forsþrökkunum Uþþ á því, að þeir skyldu nú verða sam- taka um að gera þenna fund að fyrir- bænafundi og sýna þannig ættjarðarástina öðrum lil fyrirmyndai'. Uppástungu þess- ari var vel tekið í fyrstu en brátt urðu þeir ósammála um, að hvaða guðdómi þeir skyldu snúa bænum sínum. Nokkrir kristnir Kínverjar höfðu sólt fund þenna af forvitni, og kvaddi nú einn þeirra sér hljóðs og sagði, að eina ráðið út úr þessu sundurlyndi væri að allir fundarmenn sneru bænum sínum til Shangti — en svo er »alheimsstjórnarinn« nefndur í foruum ritum kínverskum, og það nafn hafa kristniboðar prótestanta venjulegast um Guð. — Uppáslungu þessari var vel tekið og urðu þá viðstaddir kristnir menn fyrstir til að flytja bænir fyrir ættjörð- inni. Iieiðingjarnir voru ekki eins vanir að llytja bænir undirbúningslaust og urðu bænir þeirra litt áheyrilegar. Haldið er, að þeir muni ekki treysta sér til að halda tleiri slíka bænafundi. Frá Búlgaríu skrifar sr. D. N. Furna- jieff i Sofíu til bibliufélags Skotlands í september s. 1.: »Balkanstríðið var þrungið af rangind- um illverkum og hefnigirni, eins og allar styrjaldir, en samt var, meðan á þvi stóð, ágætt tækifæri lil að útbreiða Guðs orð. Eg var einn af umsjónarmönnunum við útbreiðslu ritningarinnar meðal hersveita Búlgara og veit að trúrækni og biblíu- rækni heflr vaxið að stórum mun hjá mörgum þeirra í sumar. Enda þótt enda- lokin yrðu hörð fyrir Búlgara, eru þeir fulltrúa um að málstaður þeirra sigri að lokum. Mjög 'hafa þeim brugðist vonir, en engi er þó örvænting á meðal þeirra. Og i þrengingunum kom orð Guðs til hermanna þeirra, sem góðar fregnir úr fjarlægu landi. Trúaðir hjálparmfe'nn vorir gáfu særð- um hermönnum fjölda af guðspjöllum og öðrum riturn biblíunnar. Við lijónin komum í eitt sjúkrahúsið þar sem um 50 manns lágu fölir og þjáðir af þungum sárum. Fyrsti liðsmaðurinn þar, sem fékk nýja testamenti, þrýsti því að brjósti sér

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.