Bjarmi - 01.04.1915, Qupperneq 8
56
B JARMI
sérstök deild fyrir hermenn, og fyrir
þeirri deild er ágælismaður nokkur,
er Brandt heitir, og hélt hann nýlega
25 ára starfsafmæli sem hermanna-
trúboði. Allir danskir menn kannast
við hermannaheimilið i Kanpm.höfn
og margir ungir menn hafa þar fundið
hina mestu heill, já blessun, sem al-
drei fyrnist, þvi að þar mættu þeir
frelsaranum. I3að er gott fyrir unga
menn, sem koma lil stórborgarinnar
öllum ókunnir, að geta komið á slík-
an stað, þar sem tekið er á móti
þeim af vinum. Par gela þeir átt
greiðan aðgang að skemtilegum stof-
um, lesið og skrifað, keypt ódýran
mat, notið margra leiðbeininga, hlust-
að á fræðandi fyrirlestra og guðs
heilagt orð.
Slikt starf heíir mikinn kostnað í
för með sér, en trúað fólk fórnar
miklu. A síðastliðnu sumri kornu
miklu fleiri hermenn á lieimili þetta
en nokkru sinni áður, sem eðlilegt var.
En hvað var þá gerlY Auglýsing
var birt í blöðunum þess efnis, að á
2 dögum, 3. og 4. des., yrði safnað
saman fé í hverri sókn í landinu til
styrktar hermannaheimili K. F. U. M.
í Kaupm.höfn; og skorað var á vini
félagsins, að verða nú vel við þessari
beiðni.
Hvernig fór? Hepnaðist þetta eða
ekki?
Á 2 dögum sa/naðist i Danmörku
19765Í krónur 13 au. Þessi upphæð
var fyrir nokkru afhent K. F. U. M.
— Merkur viðburður í danskri kyrkju-
sögu. — Nú er félagið búið að kaupa
3 hús, sem eru rétt hjá félagsbygg-
ingunni, til þess að ná í byggingarlóð,
og nú verður farið að byggja.
Hér sjáum við mynd af trú starf-
andi i kærleika, hér sést fórn, sem
fagur ávöxtur krislinnar trúar.
Safnað var fé i hverri sókn, og frá
sumum fámennuin sóknum komu
mörg hundruð krónur. Uin 18,000 kr.
komu frá Kaupm.höfn sjálfri, og frá
Sjálandi (utan K.hafnar) rúmar 36
þús. kr.
Bak við þessar tölur er saga um
trú, um kristilegan áhuga, um snar-
ræði og skjótar framkvæmdir. En á
undan slíkum árangri er gengið
margra ára starf unnið í kyrþey, með
bjargfastri trú og fórnandi kærleika.
En þegar við lesum eða heyrum
um ávaxtaríkar framkvæindir trúaðra
manna, þá berst áskorun til okkar:
Legg hönd á herrans plóg, og horf
þú ei til baka.
»Vakna þú, sem sefur, og rís upp
frá dauðum, og þá mun Kristur lýsa
þér.«
Já, vöknuin, og höfum olíu á lainp-
anum, og þá munu framkvæmdir
fylgja lifandi trú. Bj. J.
Myndir
af merkum kristindómsfrömuðum erlend-
um, ásamt æfiógripi þeirra, ætlar Bjarmi
að flytja lesendum sinum, t. d. George
Williams, stofnanda K. F. U. M., John R.
Mott, stúdentaprédikaranum mikla o. m. fl.
Verður byrjað á pvi i næsla blaði ef
myndirnar verða komnar. Væntum vér,
að þetta verði mörgum kærkomið.
Blaðið prcntað 26. inarz.
Útgefandi: H1 u ta f él ag í Rey kj a ví k.
Ritstjóri: Bjarui Jónsson kennari, Grettisgötu 12, Reykjavík.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigurján Jónsson, Laugavegi 19.
Afgreiðslan (Laugaveg 19) opin kl. 8. árd. til kl. 8. síðd.
PrenIsmiöjan C1 utcnberg.