Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.03.1917, Síða 2

Bjarmi - 15.03.1917, Síða 2
42 BJARMI vors, er vjer þá munum verja lil að styrkja fyrnefndan kristniboðsnema til náms og — síðar til kristniboðs- starfs. Æskilegasl væri, að undirtektirnar yrðu bæði góðar og /7jótar, svo að Ólafur geli fengið vitneskju um í sumar hvers hann má vænta frá löndum sínum í þessu tilliti. Gjaldkeri fjelagsins tekur á móti gjöfum, og verður þeirra getið bjer í blaðinu jafnóðum og þær koma. Vjer þökkum fyrir fram fyrir þær og alla aðstoð yðar í þessu máli. Reykjavík, í marz 1917. Fyrir hönd Trúboðsfjelags kvenna: Kirsiin Pélursdóltir, Anna Thoroddsen, formaður. skrifari. Ingileif Sigurösson, gjaldkeri. Aslríður Petersen, Guðrún Lárnsdótlir. Ávarp til safnaða landsins. Kristni söfnuður! All til þessa höfum vjer vanrækt þá skyidu vora, er Drotlinn lagði oss á herðar, er hann mælti: »Farið og gjörið allar þjóðirnar að læri- sveinuin«, — er lesa má í Matt. 28, 19-20. Sbr. og Mark. 16, 15 — 16. Og þótt endrum og sinnum hafi heyrst raddir einstaka áhuga- og trúmanna um þessi efni, þá hafa undirtektir verið daufar og því að engu sint. Enda liefir enginn verið í hoði, er hlj'ða vildi kölluninni að fara. Nú er þó svo komið, að ungur maður, Ólafur Ólafsson að nafni, ættaður úr Mýrasýslu, hefir af innri hvöt og trú- aráhuga lagl af stað við lítil efni og stundað nám í vetur í kristniboðs- skóla í Kristjaníu. Þessi piltur fer þess nú á leit, að áhugasamir krislin- dómsvinir íslenskir styðji sig fjár- hagslega til þessa náms og síðar til kristniboðsstarfs meðal heiðingja, enda þólt hann að sjálfsögðu verði á sín- um tíma í samvinnu við krislniboða einhvers erlends fjelags. Hjer liggur þá fyrir tækifæri handa þeim er sinna vilja boði Drollins, að sýna trú sína i verkinu og leggja fram sinn skerf, lítinn eða stóran eftir efnum. Krislniboð í heiðingja- löndum helir reynsl blessunarríkt slarf, ekki að eins þar, sem það er rekið, heldur einnig þaðan, sem það er rekið, og mun það rætast eins hjá oss sem öðrum þjóðum. Væntanlega veitir viðkomandi sókn- arprestur gjöfunum viðtökur, ef menn óska, og sendir þær svo til gjaldkera fjelags vors, frú Ingileifar Sigurðsson, Bergstaðastræti 6 C, Rvík. Trúboðs/jelag■ kvenna i Rvik. Jesús og Júdas. Kafli úr fösturæðu 28./2. ’17 cftir sr. Jóhcinn Porlcelssoiiy dómkirkjuprest. — Og nú nemum vjer slaðar í hug- leiðing vorri, þar sem þeir slanda hver gagnvart öðrum: Jesús, meistarinn, og Júdas, lærisveinninn, postulinn. Vjer sjáum þá i anda, við hina fölvu birtu blysljósanna og skriðbyltnanna. Manni gelur orðið starsýnl á þessa tvo: frelsarann Jesúm og svikarann Júdas. Það er stórfengleg sjón, sem varla gleymist og á ekki að gleymast. Því að til þess er myndin dregin upp með dráttum sögunnar, að vjer veit- um lienni eftirlekl og látum hana eigi úr minni liða. Önnur myndin, Jesúmyndin, frels- aramyndin, er til hughreystingar, upp- örfunar og leiðbeiningar. Hin myndin,

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.