Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.03.1917, Blaðsíða 7

Bjarmi - 15.03.1917, Blaðsíða 7
BJARMI 47 hægri handar. Einn morgun í býtið, kom skipstjóri auga á skip, langt úti í sjón- deildarhringnum. Stýrimaðurinn greip sjónauka sinn og nú væru gefnar ná- kvæmar gætur að skipi þessu. »Það er stórt tvísiglt skip«, sagði skip- stjórinn. »En jeg sje engan fána á því«. »Peir setja upp fánann«, sagði stýri- maður. »Jeg sje hann greinilega. Það er vikingaskip, — blóðrauður fáni, það er úti um Britianniu. Sjóræninginn hefir komið auga á okkur, hann hefir besta byr og nær okkur eftir nokkrar klukku- stundir«. Öll skipshöfnin á Britianniu var nú orðin áskynja u;n víkingaskipið, sem veitti Britianniu eftirför. Ótti og kvíði fylti hug allra. Skipstjórinn skipaði fyrir og brátt voru allir önnum kafnir. Það var reynt að stýra skipinu i suður, en óðara en sjóræningjarnir urðu þess varir, tóku þeir sömu stefnu. Um mótstöðu var ekki að ræða, þrátt fyrir það þótt öll varnarmeðöl væru liöfð til taks. Skipstjórinn kallaði alla skipshöfnina saman á þilfarið, þeir voru eitthvað 13 talsins, og ávarpaði þá á þessa leið: »Parna sjáið þið »rauða Jakobínann«, piltar. Nú er alt komið undir því að bjarg- ast. Jeg endurtek orð Nelsons: England væntir þess að sjerhver maður gjöri skyldu sina«. Og svo fel jeg ykkur alla Guði á vald«. Kristniboðarnir voru einnig staddir á þilfarinu. Við þá sagði liann: »kæru vin- ir, farið þið i ktefa ykkar svo þið sjeuð ekki fyrir okkur, og biðjið fyrir okkur«. Pað hefðu þeir án efa gjört, þótt enginn hefði beðið þá um það. Og nú varð litli skipskleíinn þeirra að sannkölluðu bæna- húsi. Pessi fámenni söfnuður fjell á knje og bað og ákallaði drottinn drotlnanna og konung konunganna, hann, sem alt vald er gefið bæði á himni og jörðu, bað hann um að taka alt skipið í sina vold- ugu liönd. Kristniboðarnir voru öruggir og hjetu hver öðrum því að halda áfram að biðja hvort sem drottinn ætlaði þcim líf eða láta þá deyja. En vikingaskipið kom nær og nær og svam nú í kringum Britanniu eins og ránfugi; sem á næsta vetfangi ræðst á herfang sitt. Britannia leitaðist við eftir mætti að komast undan. Þá Ijet óvina- skipið skothríðina dynja á Britanniu, en á meðán kváðu við hlátrasköll og óhljóð vikinganna. Skothriðin var ógurleg. En í skipsklefanum báðust trúboðarnir fyrir af öllu hjarta. Skipshöfnin beið næstu skothriðar frá sjóræningjunum, og hún kom, en gjörði engar skemdir. Sjóræn- ingjarnir þóttust nú eiga all ráð Brit- anniu í liendi sjer og bjuggust nú til að hefja uppgöngu á skipið. Eftir fáein augna- blik var úti um Britanniu og alla þá, sem á henni voru. En þá var eins og hvirfil- bylur hefði gripið skipið. Stormurinn æddi og þaul og þandi út þau fáu segl, sem enn þá voru óskemd á Britanniu. Sjóræningjarnir hófu nýja skothrið á skipið, og var alt útlit á, að nú ætti ekki að hætta fyr en skipinu væri gersamlega eytt og því sökt i djúp sjávar. Fallbyssu- dunurnar voru ógurlegar og púðurreyk- urinn huldi alt, svo að tæplega sá handa- skil á þilfarinu. Allir hjeldu að nú væri Britannia komin til fulls i hendur óvin- anna, en þó voru þeir ekki komnir um borð í skipið enn þá. Hreyfingar Brit- anniu voru orðnar harla einkennilegar. Æði stund snerist skipið í liring, og nú var augsýnilegt, að skipshöfnin rjeð engu um stjórn skipsins. Pað var eins og liin- ar æðandi öldur hefðu það algjörlega á sínu valdi. Höfuðskepnurnar háðu strið við sjóræningjana. Skipið var knúð áfram með ósýnilegu heljaralli til suðurs. Fall- byssuskotunum fækkaði og fjarlægðust, og skipverjar urðu forviða er þeir sáu sjóræningjaskipið i mikilli tjarlægð og sáu að það hafði tekið nýja stefnu og sigldi nú hið bráðasta brott. Auðsjáan- lega voru þeir hættir ofsókninni. Skipstjórinn hljóp nú niður í klefann til kristniboðanna, sem enn voru að biðja. »Guði sje lof'.v. hrópaði skipstjórinn. »Hann hefir heyrl bœnir ykkar. Við erum úr lia’llii«. Og skipstjórinn fjell á knje við hlið þeirra. Gleði tár streymdu um kinnar þeirra allra, er þeir með hrærðu geði sungu: »Nú gjaldi Guði þökk hans gjörvöll barnahjörðin; um dýrð og hátign hans ber himinn vott og jörðin. Frá æsku vorri var vor vernd og skjól lians náð, og alt vort bælti böl hans blessuð föðurnáð«. Síðan gengu þau öll upp á þilfarið, þar sem öll skipshöfnin var saman komin. í fjarlægð sást ræningjaskipið. Allir fjellu á knje, hvor við annars lilið, og eldri

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.