Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.01.1918, Blaðsíða 2

Bjarmi - 15.01.1918, Blaðsíða 2
10 BJARMI lega ekki í þeim prestaköllum þar sem altarisgöngur falla niður enda árum saman«............»Orsakir van- rækslunnar geta verið næsla marg- víslegar og enda lítilvægar.......... »Prestar ættu að færa þetta rauna- lega tómlæti í tal við sóknarbörn sín meira en þeir gera« (bls. 25). Pá minnist biskup á sálgæslu og húsvitjanir presta, og hvetur þá til að leggja meiri rækt við þær en áð- ur. »Þar sem húsvitjanir eru ekki orðnar neitt annað en manntalstaka á bæjunum, eru þær vitanlega þ}rð- ingarlausar. En sem betur fer eru þær ekki orðnar það yfirleitt«. . . . Mætti sannleiki þeirra fögru orða Kalvins oss aldrei úr minni líða: »Háleitara hlutverk en það að vaka ylir sálarheill sambræðra sinna er ekkert til, hvorki á himni nje jörðu« (bls. 26). Síðasti lcafli hirðisbrjefsins er um guðspeki og spíritismann. Telur bisk- up þær og viðtökurnar, sem þær hafa fengið, alvarlega áminningu til starfs- manna kirkjunnar um að vanda prje- dikunarslarfið svo að trúhneigl fólk þurfi ekki að leita annað en lil kirkjunnar. Um guðspekina segir hann meðal annars: »Kynni mín af henni eru fremur lítil. En eftir þeim litlu kynnum að dæma, sem jeg hefi af henni, þá dylst mjer ekki, að liún á lítið skylt við krislinclóm.1') Hún llytur að vísu ýmsar trúar- og siðkenningar, sem eru sameign kristindóms og ýmissa annara trúaibragða eins og slíkum úrtínings-átrúnaðarstefnuin er títt, og lieldur fram kenningum, sem beinlinis eru lánaðar frá kristnu trúnni. En bæði er það, að stefnan sjálf verður ekki fyrir það eitt kristileg, enda 1) Leturbreytingin vor. hefir hún jafnframt þessu til ílutn- ings ýmislegt, sem í augum kristinna manna er ekki annað en tilbúningur og heilasiHini,1) sem oss verður erfilt að skilja að geti fullnægt trúarþörf manna . . . « (bls. 27). Um spiritismann segir hann meðal annars: »Skal það strax tekið fram, að þekkingu mína á honum hefi jeg að eins úr bókum og skrifum þeirra manna, sem við þær rannsóknir hafa verið riðnir, en hefi sjálfur aldrei komið nálægt slíkum rannsóknum. Er því ekki nema rjett og skylt að jeg gæti allrar varúðar í dómum um það mál. Það má að líkindum ráða af því sem jeg hefi sagt hjer að framan um afstöðu mína til hinna guðfræðilegu rýnirannsókna, að jeg sje ekki fremur mótfallinn frjálsum rannsóknum á þessu sviði en öðrum, sjeu rann- sóknirnar í höndum þeirra manna, sem treystandi er til að fást við slíkt án þess að láta blekkjast af því sein fyrir augun ber. Jeg fæ þá ekki held- ur sjeð, að þessar rannsóknir i hönd- um hinna rjettu manna sjeu vitund syndsamlegri en aðrar vísindalegar rannsóknir, þótt þær glími aðallega við þá gátu, sem talin hefir verið öllum gátum meiri, — sjálfa gátu dauðans og geri það í þeim tilgangi að fjarlægja skugga dauðans af lífs- leið mannanna eða draga úr ógnum hans með því að fá fulla vissu fyrir> að ekki sje öllu lokið með dauð- anum. En þrátt fyrir þetta, er mjer fynr mitt leyti erfitt að eigna þessum rannsóknum eða rjettara árangn þeirra það trúarlegt gildi, sem spíri- tistar eigna þeim. Meðan tilraunirnar eru ekki lengra komnar og sannanir 1) Leturbreytingin vor.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.