Bjarmi - 15.04.1920, Blaðsíða 11
B J A R M I
67
»En á jeg þá að fara burtu aftur?«
spurði Ella með ótta-kendri röddu,
og leit tárvotum augum á Þórunni,
augun mintu hana á döggvott blóm
á vordegi.
»Já, Ella mín, það verður svo að
vera, — og þú veist það, elskan mín,
að hjer flnnurðu hann babba þinn
aldrei.«
Ella hjúfraði sig upp að Þórunni
og sagði hálf-kjökrandi: »Ef mjer
leiðist hjá lækninum, þá kem jeg til
þín, frænka.«
Ella tók eftir því, að Þórunn þerr-
aði sjer vandlega urn augun, áður en
þær gengu út á hlaðið.
Egill var að ganga frá föggum
hennar á Grána, þegar Sverrir kom
með fáeina leggi og horn og bað
pabba sinn um að reiða það með
sjer. »Það er hann Valur og hann
Spói,« sagði hann við Ellu »og fáein
horn, sem þjer þykja svo falleg. Þú
ált að eiga það,« bætti hann við feim-
inn og niðurlútur.
Ella þakkaði gjöíina, glöð í bragði.
Egill tók hana á hnakknefið fyrir
framan sig, þegar búið var að kveðja
hana og árna henni allra heilla.
Börnin stóðu þegjandi og hjeldust
i hendur á meðan Gráni fetaði burt
með Ellu á bakinu, en Þórunn mændi
tárvotum augum á eftir henni, uns
hraunið byrgði hana sjónum hennar.
(Framh.)
rr~
Hvaðanæfa.
**=== =.-■ 4
Erlendis.
Eráíslendingumvestanhafs. Veik-
indi og dauði hafa víða komið við hjá
löndum vorum síðan um nýár, heflr eink-
um inflúenzan verið þar mannskæðari en
vor á meðal. 3 merkar konur má nefna:
Frú Magnea Hermann, dóttir Pjeturs
organleikara Guðjohnsens, andaðist 3. febr.
74 ára gömul. Hún var kona Hermanns
Hjálmarssonar frá Mjóafirði, sem nú er
bókhaldari Lögbergs í Winnipeg, áttu pau
7 mannvænleg börn, sem öll eru löngu
uppkomin.
Frú Porbjörg Melúsalemí-dóttir, kona
siia Sigurðar Christopherssonar (l'rá Nes-
löndum við Mývatn) í Langruth, Mani-
toba, andaðist úr lungnabólgu 10. febr.
Frú Anna, kona Páls Bardals yngra,
bróðursonar þeirra Arinbjarnar og Hall-
dórs Bardals, andaðist úr inflúensu 5. febr.,
23 ára gömul. Hún var dóttir Jóns J.
Vopna i Winnipeg, ráðsmanns Samein-
ingarinnar.
Útg. Bjarma sendir hjartanlega samúð-
arkveðju þeim sem eftir búa við harm
og söknuð.
Síra B. B. Jónsson, forseti kirkjufjelags-
ins, liefir vegna lieilsulasleika orðið að
sleppa ritstjórn Sameiningarinnar um
stund nú um áramótin. Annast sira Stein-
grímur Porláksson iSelkirk rilstjórri blaðs-
ins á meöan með sira Guttormi Guttorms-
syni í Minneota.
Nýr söfnuður var myndaður í Glenboro-
bæ í Manitoba í haust sem Ieið. Búa þar
um 150 íslendingar og hefir síra Fr. Hall-
grimsson messað lijá þeim einu sinni á
mánuði i allmörg ár, þótt ekki hafi mynd-
ast þar fastur söfnuður fyr en nú.
Stórstúka I. O. G. T. í Manitoba lijelt
þing sitt i Winnipeg 17. og 18. febr. Ný-
kosnir embættismenn hennar eru allir ís-
lendingar, stórtemplar er Arinbjörn Bar-
dal, stórritari miss Ásta Austmann og stór-
gæslum. u. t. Sig. Júl. Jóhannesson.
Dr. Charles M. Sheldon,höfundur sög-
unnar »1 fótspor hans« og fleiri kunnra
bóka, hefir nýlega alveg slept prestsskap,
en tekið við ritstjórn víðlendasta kristi-
legs blaðs Ameriku, »Christian Herald« í
New-York. Skömmu eftir útkomu fyr-
nefndrar bókar, tók liann i vikutíma að
sjer ritstjórn daghlaðs eins í Topeka í
Kansas, þar sem hann var prestur, með
þeim ákveðna tilgangi að stjórna blaðinu
eins og hann lijeldi að Kristur mundi
stjórna því. Vakti það svo mikla eftirtekt,
að kaupendatala blaðsins þritugfaldaðist
— frá 12 þús. í 360. — En ágóðinn var
allur gefinn kristilegum fyrirtækjum.
(Framhald á bls. 72).