Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.08.1920, Page 5

Bjarmi - 15.08.1920, Page 5
BJAftMt Í2§ Enda þótt Bjarmi geri lítið að því að birta drauma, telur hann rangt að neita gömlum manni, kunnum um hálft ef ekki alt ísland, að birta þá játningu, er felst í framanritaðri grein. Það bar einu sinni allmikið á Þorvaldi á Þorvaldseyri og áhugamál hans voru mörg. Nú er hann blindur orðinn og býst við dauða sínum þá og þegar, og nú er það aðaláhugamál hans að »þessi játning sin verði heyrin kunn«, eins og sóknarprestur lians, síra Jukob Lárusson í Holti skrifar, sem fært hefir og greinina í letur fyrir hann. Guð blessi yður, Þorvaldur, og alla, sem í myrkri silja. — »í myrkri Ijómar lífsins sól«, því blóð Jesú Krist, Guðssonar, hreinsar oss af allri synd, — og þótt veik sje hönd og valtur fólur vor, þá er öruggur stuðn- ingur að gegnum stunginni hönd frels- arans. — Betur að allir lesendur þessa blaðs vildu þreifa fyrir sjer eft- ir þeirri hendi. Ritstj. Bjarma. Eigum við að stofna fríkirkju? Mjer finst nauðsyn, að það sje sem allra best athugað af sem flestum, því ekki er ólíklegt, að um aðskiln- að ríkis og kirkju verði rætt á næstu þingum. Og það ætti ekki að vera vandi, jafnvel á næstu þingum. fyrir alþingismenn okkar að afgreiða lög um skilnaðinn, því fyrir þann hma ælti þjóðin að vera búin að átta sig á þessu mikilsverða máli. "Jeg veit vel, að jeg hefi ekki svo 8°tt vit, eins og þarf á því, hvort hetra er að skilja að ríki og kirkju, °g því ætla jeg nú ekki að skrifa 'angt mál um það. Jeg vona að það geri heldur þeir sem eru mjer fær- ari til þess. Hingað til hefi jeg verið á móti skilnaði, aðallega ekki sist fyrir það, að jeg hjelt, að þjóðin væri ekki svo áhugamikil með trúmál, að hún launaði nógu mörgum prestum (einkanlega ef kirkjueignirnar yrðu teknar undir rikið, sem mætti auðvitað ekki koma fyrir). En þessi skoðun mín er nýlega breytt. Jeg held það geti orðið til góðs fyrir kristilegt trú- arlíf að skilja að ríki og kirkju. Og mjer sýnist trúarlífið tæplega geta verið daufara en það nú er í sum- um prestaköllum. En þar sem kjör prestanna eru nú bætt, þá mætti nú ætla að þeir legðu meiri alúð við starf sitt. En komandi tími mun nú fljótt skera úr því, hvort það verður. Því er ekki að leyna að jeg er vondaufur með að sumum ungu prestunum takist að glæða trúarlífið, miklu belur gæli jeg trúað, ef þeir fara langt í nýju guðfræðinni, og kenna sum atriði, sem eru gagnstæð þvi, sem áður var kent, að aldraðir menn vildu heldur lesa húslestur heima, sjer og sínu fólki lil trúarstyrkingar, en að fara í kirkju til þess prests. Annars finst mjer mikið undir prest- unum komið, hvort aðskilnaður verð- ur eða ekki. Ef prestarnir fara að kenna öðruvísi í mikilsverðum atrið- um kristilegrar trúar, þá mega þeir búast við að þeir ílýti fyrir aðskiln- aði. En ef þeir í orði og verki sýna, og hafa lifandi áhuga á að styðja þann kristindóm, sem okkar bestu biskupar og prestar hafa kent, þá er skilnaður óþarfur. Jeg er sannfærður um að það yrði gott fyrir trúarlífið, að prestarnir á- stundum á eftir messu spyrðu söfn- uðinn að því, hvort einhverjir vildu ekki biðja með sjer. Þessir bænafund- ir gætu leitt mjög gott af sjer, og

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.