Bjarmi - 01.01.1921, Síða 20
íUAkMt
16
.. --------■ ' ' ^
Hvaðanæfa.
^ ■ ■ —*
Heima.
Greinar okkar sr. Jakobs Kristinssonar
I Tímanum, í haust, virðast hafa vakið
töluverða eftirtekt, ef ráða má eftir
mörgum brjefaummælum um pær. Sum-
um sárnar að jeg skyldi ekki lialda áfram
að svara honum, haíi jeg við það »slept
góðu tækifæri til að vitna um Krist við
lesendur Tímans«. — Öðrum virðist að
jeg hefði ekki átt að skifta mjer neitt af
grein sr. J. Kr. Sjerstaklega skrifar sveita-
prestur einn langt brjef, hálfgerða biaða-
grein, i pá átt. Hefir ritháttur sr. J. K.
og persónulegar aðdróttanir hans auð-
sjáanlega komið brjefritaranum til að
ætla hann lakari mann en hann er, —
þvi sr. J. K. er prúðmenni i framgöngu,
þótt ókunnugur ætli annað vegna rithátt-
arins, Fyrri hluti þessa brjefs hljóðar
svo:
»Góði vinur! Mjer varð hvert við, þeg-
ar jeg sá, að þið sr. Jakob Kristinsson vor-
uð teknir að deila í Tímanum. Jeg held
að eitthvað stafi af því, sem verður frem-
ur ilt en golt og sjerstaklega held jeg að
þetta komi niður á ykkur sjálfum — held
að deilan geri ykkur að verri mönnum.
— Pað var sjálfsagt orð í tima talað, að
þú skrifaðir grein þína i Bjarma. Pað var
skylda þín og rjettindi — og þeir eru
fjölmargir, sem taka í sama strenginn —
þó ekki skrifi. Og hitt var þjer líka
ómögulegt að varast, að sr. Jakob gripi
tækifærið til þess, að bera hönd fyrir
höfuð guðspekinnar. En þú hefðir ekki
átt að svara honum — þó greinín hans
sje ljót — og beri vott um stakt ræktar-
leysi við feðratrú vora. Honum er vor-
kunn og hann hefir afar erfiða aðstöðu.
Eftir greinum sínum að dæma er hann
eins og óþekt barn, er smánar móður
sina og slær hana jafnvel í andiitið — en
jeg gætí trúað að hann kæmi aftur að
knjám móður sinnar, þegar frá líður. Og
jeg held að hann vitkist og batni betur,
ef ekki er skift sjer af honum. Rök-
semdaleiðsla hans ber þess vott, að ann-
aðhvort er hann ekki kominn til fulls
skilnings á siðgæðisafli kristindómsins, eða
hann er að striða þjer og reyna að gera
þig reiðan. Hann heldur því fram, að
enginn guðspekingur hafl verið i flokki
þeirra manna, er fyrir slysinu og ógæf-
unni urðu, heldur hafi það verið ný-
fermdir unglingar undan handarjaðri
rjetttrúnaðar prestanna í Rvík. — Þetta
er sannkölluð hrygðarmynd af varnarað-
ferð góðs manns. Jeg er sannfærður um
það, að marga góða guðspekinga hryggir
þessi hugsunarháttur. Fyrst gleymir mað-
urinn því, að liann er uppalinn og fædd-
ur í cvangeliskum lútherskum kristin-
dómi, hefir tekið vigslu til þess, að boða
fagnaðarerindi Jesú Krists, í samræmi
við heilaga ritningu og erfikenningar
kirkjunnar, og er nú orðinn forstöðu-
maður fyrir guðspekisfjelagi. Jeg veit að
manninum dyist ekki hvað slíkt hefir
verið kallað á venjulegu mæltu máli, en
það á hann auðvitað við Guð og sam-
vizku sína. — En hugsanlegt væri, að
einhverjum kynni að vera svo varið, að
hann væri í vafa um, hvort væri verra,
þetta, sem presturinn hefir gert, eða það,
sem sumir unglingarnir gerðu — og vist
er það, að á báðum stöðum hefir átt sjer
stað hugarfarsbreyting.
En þó prestur gleymdi þessu, þurfti
hann ekki að gleyma Meistaranum og
Pjetri. Flestum mundi koma saman um
það, að hvorki veita »rjetttrúaðir« prest-
ar eða guðspekingar betri fræðslu en
Meistarinn — mannkynsfrelsarinn Jesús
Kristur. Og minnisstæð mun hún flestum,
sem iesa, skilnaðarræða frelsarans til
lærisveinanna, auk sjálfsagt margra ó-
skráðra áminninga til þeirra, — og saml
henti lærisveinana fall og hrösun, og það
af versta tagi, svo að segja í sömu and-
ránni. Pað gengur þvi óbiigirni næst —
svo ekki sje dýpra tekið í árinni — að
presturinn skuli hælast um að ekki
hafi unglingarnir verið guðspeking-
ar. Pegar þess er svo minst — og prest-
urinn sjálfur leggur áherslu á það — að
guðspekingar taka ekki i sinn flokk nema
— að minsta kosti ekki til að byrja með
nema valið fólk — þá er því sorglegra
að svona vopnum skuli vera beitt, til
sóknar og varnar. — Pað er þvi mitt ráð,
að þú eigir ekkert við þennan mann.
Hann virðíst vera »til alls vís« — eins
og Einar H. Kvaran lætur lögregluþjón-
inn segja um Eggert Sölvason«.
Útgefandi Sig-nrbjörn Á Gíslnson,
PrsntcmlOian Qutenberg.