Bjarmi - 15.05.1921, Blaðsíða 1
BJARMI
= KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XV. árg.
Reybjavík, 15. maí 1921.
Hver sem hefir soninn hefir lí/ið. (I. Jóh. 5, 12).
12. tbl.
Alvariegt íhugunarefni.
Aðal erindi mitl, að þessu sinni,
er að vita hvort þú viljir ekki stuðla
að því (með Bjarma) að slofnað verði
hjer á landi wFjelag kristinna manna«
— er nái yflr alt landið, til varnar
binum sanna náðarboðskap Jesú Ki ists
um fórnardauða og friðþæging hans
fyrir syndir allra þeirra er leita að
krossi hans í iðrun og trú.
Fjelag þetta ætti að vera nokkurs
konar samband allra sannkristinna
manna, ungra og gamalla af öllum
stjettum iil varnar pvi, að hinar ó-
gæfusömu og ókristilegu stefnur; njr
guðfræði, andatrú og guðspeki fái náð
tökum á þjóð 'vorri og leitt hana á
glapstigu í trúarefnum.
Sjerhver sannkristinn, karl og kona,
getur fengið inngöngu í fjelagið gegn
því, að undirrita skuldbindingu, er
mætti hljóða eitthvað á þessa leið:
I. Á þessum alvarlegu hættu tímum,
þegar nýguðfræði, andatrú og guð-
speki, vinna að því að svipta menn
traustinu á hinu opinberaða orði Guðs
í heilagri ritningu, teljum við undir-
rituð það heilaga skyldu vora að játa
trú vora á Jesúm Krist, eingetinn son
Guðs, krossfestan og aftur upprisinn,
frelsara og friðþægjara syndugra
manna, og jafnframt hið óbifanlega
traust vort á heil. ritningu sem lampa
vorra fóta og ljós á vorum vegum.
Og við lofum fyrir augliti Guðs trú-
lega og samviskusamlega að varð-
veila hina guðlegu opinberun eins og
hún er til vor kominn heilagri ritn-
ingu. Við lofum einnig að afhenda
hana óskerta og ófalsaða börnum
vorum og afkomendum.
II. Þar sem svo ber við, að sókn-
arprestur vor afneitar höfuðatriðum
kristinsdómsins, en aðhyllist nýguð-
fræði, andatrú eða guðspeki, ásetjum
við oss að koma saman utan kirkj-
unnar til að hlýða á hina einu sálu-
hjálplegu kenningu og neyta heilagr-
ar kvöldmáltíðar drottins vors og
frelsara.
Vjer lofum að vera á verði og gjöra
alt er í voru valdi stendur, til þess,
að börn vor verði uppfrædd í hinni
sáluhjálplegu kenningu Jesú Krists.
III. Til þess að þjóð vor geti sem
fyrst áttað sig á nýguðfræðinni, sem
jafnaðarlega fer mjög huldu höfði í
kenningum sínum, teljum vjer oss
skylt að vinna af fremsta megni að
að því, að fræðandi kristileg rit verði
útgefin, svo þjóð vor fái að þekkja ný-
guðfræðina í allri sinni nekt.
IV. Vjer lofum að vinna að því af
fremsta megni, að einungis hið ófals-
aða fagnaðarerindi frelsara vors verði
boðað á heimilum vorum og lestur
heilagrar ritningar liafður um hönd.
V. í Jesú nafni viljum vjer hefja
þetta trúvarnarstarf kristinna manna
hjer á landi og biðjum góðan Guð að
]já oss lið og styrk til þess ávalt að
auðsýna kærleika og trúmensku i
þessu voru háleita starfi.
Til þessa gefi góður Guð oss sína