Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.05.1921, Síða 2

Bjarmi - 15.05.1921, Síða 2
fi j Ak M Í ÖÓ náð fyrir Jesúm Krist, frelsara vorn. Amen. Sóknarprestur. Athugasemd ritstjórans. Hjer er alvörumál á ferð, sem rjett er að líta á frá ýmsum hliðum. Orðalaginu á yfirlýsingunni höfum vjer hvergi breytt, enda þótt höf. gæfi oss leyfi til. Breyt- ingartillögur verða ihugaðar, pótt seinna komi. Vafalaust eru allmargir, einkum meðal leikmanna, sárgramir þeim villustefnum sem lijer er rætt um, og enn fleiri, ef hoð- berarnir væru ekki leiknir í að dylja skoð- anir sínar við og við með gömlum og góðum kristilegum orðum, setn þeir leggja alt annan skilning í en alment er meðal kristinna manna. En gremja og óbeit, þótt gegn villu sje, er ekki sama og lifandi kristindómur. Vjer erum hræddir um að afturhvarf og endurfæðing sje í nærri eins mikilli þoku hjá sumum »vinum eldri stefnunnar« eins og hjá villustefn- unum sjálfum. En sje svo, er þeim vin- um vorum treystandi eða er þeim holt að fara i þann fjelagsska]), sem hjer ræð- ir um? — Mundi það ekki-verða lil þess að þeir ímynduðu sjer að þeir ættu-það, sem þá þó vanhagar mest um: truarvissu um fyrirgefningu syndanna fyrir Jesúm Krist ? Eru sannkristnir menn og konur með trúarvissu og trúardjörfung ekki svo sár- fá víðast hvar, að þeiin yrði erfitt að finnast? Samfundir trúaðra manna utan kirkju eru æskilegir ýmsra hluta vegna, og eðli- legt að trúað fólk forðist að hlusta á villu- trúarmenn, hvort sem eru hempuklæddir eða ekki. í Noregi er altítt að trúað fólk hafl samkomur sínar jafnhliða messu í kirkju þegar það vantreystir sóknarprest- inum í trúmálum. Og þar eru kvöldmál- tíðarsamkomur, þótt enginn prestur sje þar viðstaddur, — en er alþýða vor svo þroskuð í trúarcfnum að slíkt sje ráð- legt? — Og hvað margir mundu þola þröngsýnis og ofsatrúar aðdróttanir van- trúaðra blaðamanna og presta? Þessar spurningar, eða aðrar þeim skyldar, eru ekki ætlaðar til að draga kjark úr áhugamönnum, heldur til þess að vekja umræður um rnálið og benda á í upphafi, að margir verða erfiðleikarnir, og ekki til neins að fara af stað nema vjer sjeum sannfærðir um að Drottinn sje með í verki. Pað er velkomið að ræða málið í Bjarma eftir því sem rúm lians leyfir. Leitið Drottins. Prjedikun flutt í Grindavíkurkirkju 2, sd. i adventu 1920 af sr. Brgnjólfi Magnúss'yni. (Niðurl.). Já, sá sem á hana — sá sem trúir og treystir á náð Guðs og fyrirgefn- ingu og frelsun í Jesú Iíristi og að öll Guðs börn muni að lokum til hans koma, — hann getur alt af verið öruggur og hefir ekkert að ótt- ast, hve nær og hvernig sem hin jarð- neska tilvera endar. — Hann veit hvort sem er að hjer er engu að treysla. — Hann veit, að hjer er hann sífelt háður hinum blindu og tilfinningarlausu náttúruöflum, sem á hverju augnabliki geta úr skorðum gengið og valdið hinni ægilegustu og skelfilegustu eyðilegging. Hann veit að löndin og fjöllin og höfin og alt sem að stöðugast sýnist standa getur á einu augnabragði umturnast og kollvarpast og grandað lífi hund- raðanna og þúsur.danna. Já, hann veit að hann í hverju spori Jífsins getur mælt því augnabliki er sól og tungl sortna fyrir sjónum hans og ljós þessa heims hættir að skína fyrir honum og gleðja augu hans. — — þetta augnablilt mætir fyr eða siðar oss öllum, góðir menn, og þá hefir ekkert gildi annað en það að hafa trygt sjer náð Guðs og von eilífs lífs og hafa lifað þannig og breyft, að vjer getum öruggir mælt fyrir Krisls dómstóli, eða hon- um, sem á að meta allra okkar verk og gerðir.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.