Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.05.1921, Side 3

Bjarmi - 15.05.1921, Side 3
BJARMI Vjer tölum oft um það, að það sje hin mesta nauðsyn og æðsta spurning að gela fengið þvl svarað þannig að enginn þurfi um að efast, að tilvera eilifs lífs eða annars lífs eigi sjer stað og sje ábyggileg. Ef það fáist greinilega sannað, hvorl heldur sje fyrir miðla eða anda- trú eða á annan hátt, sje öllu óhætt og allur ótti og kvíði samstundis horfinn fyrir dauðanum. Ekki er svo að sjá, að frelsarinn Jesús Kristur gjöri ráð fyrir þessu. Hann efaðist víst aldrei eitl augna- blik um, að annað líf væri til eða annar heimur, sem taka mundi við I af þessum hinum sýnilega. Hann vissi, að hann mundi sjálfur upprísa. Og hann sýnist aldrei hafa gert ráð fyrir því að mennirnir mundu svo mjög yfirleitt afneita trúnni á annað líf eða telja það líklegast, að það munói ekki eiga sjer stað. — En samt gjörir hann ráð fyrir þessu, að þeir muni ávalt hræðast og skelf- ast og fyllast ógnun, er þeir eigi að mæta dauðanum og hann að koma snögglega yfir þá. Af hverju gjörir hann ráð fyrir þeirri hræðslu? Af hverju segir hann, að heims- bygðin muni öll skelfast við hin hinstu endalok, en lærisveinarnir og þeir, sem trúna hafa öðlast, fyllasl fögnuði við hina síðustu atburði og skoða svo sem þá sje sumarið og eilífðin i nánd? Já, af hverju stafar þessi mismun- ur? — Hann stafar af þvi, að það hjálpar út af fyrir sig ekkert þó menn trúi tilveru annars lifs, ef menn ekki jafnframt trúa tilveru Guðs, náð hans og kærleika og eilífri sælu í ríki hans á himnum. Pað er af þessum sökum, sem jeg legg svo undur lítið upp úr anda- 91 trúnni og öðrum slíkum trúarbrögð- am, sem svo mikinn vind gera úr hinum svo kölluðu »sönnunum« fyrir tilveru annars lífs og álíta alt fengið, ef þær geta orðið almenningseign og af öllum teknar gildar. Fyrir mjer hafa þær í rauninni helst ekkerl að segja. ))Djöflarnir trúa öðru lífi«, segir Jakob postuli mjög hnitlilega I þessu sambandi, »en skelfast þó«. Ef jeg ekki jafnframt fæ hending um að þetta annað lif sje betra og fullkomnara en þetta jarðneska, sem vjer lifum hjer, finst mjer jeg I raun- inni engu bættari, Og ef mjer, umfram alt, ekki jafn- framt. er bent á nein ráð til að verða betri maður, — til að sigra syndina og gallana og brestina hjá sjálfum mjer, til að öðlast fyrirgefningu og náð og frelsun hjá góðum Guði — ef mjer ekki er bent á neitt, sem getur hjálpað mjer til þessa, finst mjer til- vera annars lífs vera mjög svo hæp- in og alt annað en eftirsóknarverð. En andatrúin fræðir mig einmitt mjög lítið um þetta. Hún segir þvert á móti að I kringum oss sje fult af illum öndum og vondum verum, sem sífelt geti gert oss hinar og þess- ar skráveifur og skaðað oss líkam- lega og andlega. Hún segir að vjer verðum sjálfir að afplána fyrir syndirnar, sjálfir að láta oss takast að lifa svo fullkomnu lífi, að vjer getum orðið hæfir fyrir tilveruna á hinum svokölluðu hærri sviðum eöa »plönum« andaheimsins. Ef oss ekki takist þetta, segir hún eða stallsystir hennar »guðspekin«, að vjer verðum að fæðast aflur og aflur og sifelt að byrja á nýjan leik, hvað oft, veit enginn og hún víst ekki sjálf. Jeg gel nú eigi að því gert, að jeg stórfurða mig á, að nokkur kristinp

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.