Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.05.1921, Side 7

Bjarmi - 15.05.1921, Side 7
B J ARMÍ ós en eru báðar g,óðar. Kristindómsvin- ir ættu að minnast þess, að hverl gott lcristilegt rit verður, ef það út- breiðist vel, j7msum til verulegrar blessunar og stuðlar óbeinlínis að því að fleiri komi á eftir, en ef það selst illa, verður það gagnslítið og dregur úr útgáfu íleiri slíkra rita. Hlýleg ummæli eða kuldaleg valda þá miklu. Sá heiðingjasiður, að j'pta öxlum með hálfgerðri fyrirlitningu við kristilegum bókum, er veruleg mink- un svo kölluðu kristnu fólki. Danmðrk eftir 186A. Dansk-islenska fjelagið ætlar að gefa þá bók út í 4 heftum. Er fyrsta heft- ið komið út og heitir: Viðgangur þjóð- ar vorrar eftir 1864, eftir E. Munk lýð- liáskólastjóra í Höng, með inngangs- orðum eftir Age Meyer Benedictsen. Það er sjerlega fróðlegt og gott rit, sem hvert bókasafn þarf að eignast. Heftið er 103 bls. og kostar 4 kr., en fjelagsmenn fá það sama og ókejrpis, því árstillagið er svo lítið. í haust er von á næsla hefti Kirkjulif i Dan- mörku eftir 1864, eftir síra Lomholt Thomsen í Khöfn. „Árin og eilifðin,<. Einn af nágrönnum mínum, sem hafði keypl bók þessa, og vissi að jeg átti hana eigi, sendi mjer hana með þeim ummælum að mig mundi langa til að kynnast henni, og mætti jeg halda henni í viku. Jeg tók bókinni tveim höndum, því jeg hafði heyrl henni hrósað, jeg gerði nú ráð fyrir að nota hana við heimilisguðsþjón- ustu næsta sunnudag, en þó svo að kynnast henni eitthvað áður, því ekki vildi jeg bjóða heimilisfólki mínu upp á aðra húslestra en þá, sem jeg gæti verið ánægður með fyrir sjálfan mig. Næsla sunnudagsmorgun, að aflokn- um nauðsynlegum morgunverkum, fór jeg inn í svefnhús mitt og fór að lesa í bókinni, og las tvo lestra. Að því búnu lagði jeg hana frá injer, tók minar venjulegu húslestrarbækur og notaði þær viö heimilisguðsþjónustu mína að vanda. »Af hverju syngur þú þessa sálma í dag«, spurði einn heimilismanna minna, þegar búið var að taka til sálmana. aÞað kemur af því sem jeg var að lesa«, varð mjer að orði. »Hvað varstu að lesa«, var þá spurt. »í bókinni hans Har. próf. Níelsson- ar, var svarið. Sálmarnir eru í Sálma- bókinni: nr. 420 og 427.’) Jeg vil halda mig við það. Get ekki lifað og dáið upp á aðra trú en þá: að frels- arinn Jesús Kristur liafi verið al- máttugur, algóður og alvitur, og af þvi að jeg lít svo á frelsarann, get jeg ekki notað »Árin og eilífðin«, sem húslestrabók. Böndi. f ■■■==" ...... ==T Hvaðanæfa. Vt. .... _=.... =6' Heima. Sira Jóhann Porkelsson dóm- kirkjuprestur í Rvík átti 70 ára afmæli 28. f. m. Sendi margur honum hlýjar kveöj- ur pann dag eins og vænta mátt um svo vinsælan prest. Sóknarnefndin færöi honurn J000 kr. heiðursgjöf frá söfnuðinum og flutti hon- um pakkir og blessunaróskir. Heimsóknir og heillaóskaskeyti komu alian daginn í hópatali; eitt skeytið var 1) »Vor Guð er borg á bjargi traust« og 4 fornöld á jörðu var frækorni sáð«.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.