Bjarmi - 01.11.1924, Page 8
180
lí J A R M 1
mótmælenda-kirknanna verið fólginn í
því, aö samsinna trúarlæi dómum krist-
indómsins eins og þeir hafa verið fram-
settir innan þessara kirkjudeilda«.
Vjer getum alfs ekki fallist á að trú-
málaástandið með mótmælendum hafi
lengst af verið svo bágborið, og munum
ekki að hafa lesið nje heyrt neina ræðu
nje trúmálagrein, þar sem staðhæft hefir
verið að sannur kristindómur væri ekki
annað og meira en slík samsinning. Jafn-
vel þótt kaldur og dauður, rangnefndur
»rjetttrúnaður« hafi átt hlutaðmáli, hefir
hann þó oftast eða alt af minst á, aögóð
breytni ætti að fylgja »samsinningu« trú-
arlærdómanna.
Þótt það komi ekki þessu erindi bein-
linis við, má þó um leið geta þess, að
það er vítaverður misskilningur og fá-
fræði, því vonandi er ekki vísvitandi far-
ið með ósannindi, þegar einn nýguðfræð-
inganna segir í Tímanum 13. seplember,
að vakninga-trúboðar samtíma vors prje-
diki: »Eftir skoðunum verðið þið dæmd-
ir«, og að hjá þeim »komi skoðanaskifti
í stað sinnaskifta«. Er auðheyrt að sá,
sem hefir einurð á að fræða aðra um
aðra eins fjarstæðu, hefir ekki hlustað á
margar vakningaprjedikanir um dagana.
— Það er einmitt sleik lilið allra góðra
vakningatrúboða hvað þeir leggja mikla
áherslu á, að einlæg iðrun og alvarleg
sinnaskifti sjeu einkaskilyrðin frá vorri
hálfu til að komast í samljelag Krists og
geta sborið iðruninni samboðna ávexti«.
— Textar þeirra eru: »Takið sinnaskifti
því að Guðs ríki er nálægt«, — og: »Guð
vertu mjer syndugum líknsamur«, — en
ekki hitt: »Vjer þökkum þjer, Guð, að
vjer erum ekki eins og aðrir menn — og
þjóðir, sem þurfa trúarvakninga«. —
Gott er erindi sra Porsteins, og ýmsar
kynjasögur spíritista eru hjá H. N. pró-
fessor — eins og vant er. '
Erindið um kirkjulíf á Englandi flytur
tímabæra fræðslu. — Kemur nú vonandi
aldrei framar fyrir að íslensk landafræði
segi: að sflestir Englendingar sjeu Lút-
erstrúar!® Margt hefir oss áður verið sagt
um andatrúna þar í landi, en nú sjá
menn að fleira er þar frásagnarvert. Auð-
vitað fer höf. fljótt yfir sögu og sleppir
mörgu, sem von er, í stuttu erindi. En
vel væri, ef þessi fræðsla yrði til þess að
prestar færu að lesa ensk trúmálablöð og
einhver prestaefni færu til Englands og
Skotlands að loknu prófi. Þar er raiklu
margbreyttari fróðleik að fá en hjá öðr-
um nágrönnum vorum.
Niðurlag erindisins er ágætt. Er þar
talað um »nauðsyn öflugrar safnaðarstarf-
semi«, og minst á, að allar nágrannaþjóð-
ir »hafa lært mikið af ensku kirkjulífi um
starfsaðferðir og starfsskilyrði«.
»Væri ekki meiri þörf á að lagra annað
en þella. Því að enginn mun geta neitað
þvi, að vjer stöndum lágt í kirkjulegum
fjelagsskap og safnaðarstarfsemi«.‘)
»Það hefir lengst af verið eitt af meslu
meinum kirkju vorrar hve prestar vorir
hafa staðið einir uppi í söfnuðum og
og haft fáa samverkamenn. Petta þarf að
breytast. Við þurfum að eignast meiri
starfsemi innan safnaðanna. Fleiri leik-
menn þurfa að starfa vor á meðal að
kristilegu og kirkjulegu málunum en ver-
ið hefir«.
Þetta er hverju orði sannara og gieói-
efni, að mega treysta því að prófessor
Sívertsen biýni þessi sannindi fyrir presta
efnum. — En þegar hann svo bætir við:
»Hið eina, sem valdið getur breytingu í
þá átt, er fjelagsskapur og samtök innan
safnaðanna«, — þá er það ekki nema
hálfur sannleikur.
Pað er ekki til neins gagns að »organi-
sera dauðann«, eða rjettara sagt: hópa
saman áhugalausu fólki til kristilegrar
starfsemi. — Fyrst þarf að koma trúar-
vakning, þá er áhuginn kominn, fyrsta
starfsskilyrðið, og þá en fyr ekki, má ætla
mönnum ýmsar fjelagsbundnar kristileg-
ar framkvæmdir.
Trúarvakning er eina ráðið- Guð geíi
að allir starfsmenn kirkjunnar gætu sjeð
það, svo þeir að minsta kosti verði ekki
til hindrunar, þegar hvítasunnan kemur,
eins og prestastjett Noregs varð á dögum
H. N. Hauge.
Bjarmi verður næsta ár, ef Guð lofar,
27 tölublöð, og fleiri, ef vinir hans út-
breiða hann, — og kostar þó ekki nema
5 kr., hjerlendis, hálfan annan dollar vestra.
Gangið eltir sýnisblöðum hjá prestunum,
er Jólakveðjan kemur, og segið frá að
einn eldri árgangur eða Brúðargjölin verði
sendur skilvísum nýjum kaupendum.
1) Höf. var, sem vonlegt er, ekki búinn að lesa
kirkju-greinarnar i Timanum í sumar.
Útgefandi Rignrbjörn Á. Gíslason.
Prentsmifljan Rutenberg.