Bjarmi - 15.03.1930, Page 1
XXIV.
arg.
6. tbl.
Yígsluræða Sæbóls-
kirkju.
Niðurl.
Nú sný jeg aftur máli mínu til
þín, kæri söfnuður, og frá hinu um-
liðna til hins komanda. — Þetta
nýja Drottins hús lykur nú arma
sína um þig og munt þú nú finna
þig sjerstaklega í faðmi Guðs bless-
unar, er sanni þjer orð textans:
,,Sælir eru þeir, sem búa í húsi
þínu“. En hann bæti;r við: ,,Þeir
munu framvegis lofa þig“.
Hver dýrmæt gjöf leggur manni
alvarlegar skyldur á herðar. Því
meira sem er lánað, því meira verð-
ur að heimta. Látið þetta eigi
hryggja yður, því að skyldurnar
geta líka verið ljúfar og ljettar, jafn-
vel indælar og friðandi, þegar þeim
er rjett gengt af verðugum huga.
Fyrsta skyldan er jafnan sú að
breyta við gjöfina eftir ósk gefand-
ans, og fara með hana eftir tilgang-
inum og þetta er ljúft og ljett þeim,
sem elskar gefandann að maklegleik-
um. Nú tala jeg um kirkjuna ])ína
nýju sem gjöf frá Guði. Gjöfin end-
urtekur sí og æ framhalds málsgrein-
arinnar, sem jeg vitnaði til: „Þeir
niunu framvegis lofa þig“. Skyldan
er lofgerð Guðs í framtíðinni á
þessum stað. Minnist þess nú og æ,
að hús þettai er ekki gefið af Guði
aðeins til þess að vera ytra tákn
dýrkunar hans, því síður til þess
að hrósa sjer, hve snoturt og vel-
sæmandi hús geymist hjer á svo
afskektum og fátæklegum stað, —
nei, það er fyrst og fremst til þess,
að söfnuðurinn hjer og hver, sem
hingað kemur, lofi Guð, og eigi að-
eins með orði og tungu, heldur í
anda og sannleika, sem aftur leiðir
af sjer verk í Guði gerð. Krossinn
lyftir sjer yfir þessu húsi og getur
dregið að sjer athygli bæði af landi
ofan og hafi utan og hringurinn í
gegnum hann minnir á sameiningu
hjartnanna gegn um kross Jesú
Krists. Þetta er fögur, hugvekjandi
ásýnd, en hjartað í brjósti hennar
er það, að undir þessum krossi,
undir þessu þaki, mætast í einingu
andans, börn Guðs, sem gera Guði
föður hjartans þakkir fyrir drottin
vorn Jesú Krist -og alla blessun
veitta með honum. Það sje unun
yðar, kæru vinir mínir, að safnast
hingað að vegsama Guð, svo oft
sem tækifæri ge'fst að hafa hjer
sameiginlega guðsþjónustu. Þakkið
Guði, meðal annars, fyrir hvern þann
helgidag, sem þetta hús þarf eklci
að standa autt og1 hljómvana af lof-
gerð Guðs. Það sje viðhöfn yðar og