Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.07.1931, Blaðsíða 1

Bjarmi - 15.07.1931, Blaðsíða 1
XXV. árg. 15. júlí 1931. 14. tbl. Hjörtur Leó. 1875—1931. »Þessum manni vildi jeg kynnast betur«. Með þeirri hugsun kvaddi jeg sr. Hjört Leó eftir stutta samveru árið 1918. Ilann var ekki fljóttekinn, en bar bað meö sjer, aó mikió var í manninn spunnið. En jeg varó að hverfa frá Lundar, bar sem fundum bar saman, austur um haf, og nú er hann horfinn yfir eilífóarhaf, — og erfitt að kynna hann þeim, sem aldrei sáu hann, með stuttri blaðagrein. Sr. Hjörtur var fæddur á Hofi á Skaga- strönd 5. jan. 1875, fluttist átta ára gamall til Canada með foreldrum sínum, Jónasi Leó Hjálmarssyni og Sæunni Sigurðardólt- ur. Þau fluttust að Gimli í Manitoba og síöar aó Selkirk. Erfiðleikar frumbýlinga uröu margir á leið þeirra, og lítiö tækifæri fyrir unglinginn gáfaða að njóta hæfilcika sinna. 5 mánaða tíma kvaóst hann hafa notið kenslu í æsku, og fermingarundir- búninginn annaðist únítaraprestur, Magn- ús Skaftason. »Var jeg þá aó hálfu leyti heióinn maður og fermdist út úr kirkj- unni«, skrifaði hann löngu síðar. Þótt kenslan væri lítil, varði hann öllum tómstundum til náms og kendi í alþýðu- Sjera Hjörtur Leó. 'skólum sjálfur í mörg ár. Um þrítugt hafði hann safnað sjer námsfje og svo góðs und- irbúnings, að hann gat tekið stúdentspróf eftir tveggja ára skóladvöl og guðfræðis- próf eftir önnur tvö ár, alt með besta vitnisburði; því að lærdómur var honum leikur, einkum stærðfræói og tungumál. Árið 1909 tók hann prestvígslu, og var upp frá því starfsmaöur lúterska kirkju- fjelagsins íslenska vestan hafs, oftast

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.