Bjarmi - 15.04.1932, Blaðsíða 2
58
BJARMI
væri jafn gott. Út af því hömuðust
Straumamenn hjer um árið, og út af því
g'átu einhverjir sjerkreddumenn á Vifil-
staðahæli æst meiri hluta sjúklinga til að
afsegja hann og fengu auðvitað fljóta á-
heyrn hjá stjórninni, og hæiið prestlaust
síðan. Það var guðspekis- og andatrúar-
»frjálslyndið«, sem þoldi ekki kristindóms-
boðskap.
Sárt fjell honum það ekki vegna
buddunnar, eins og illgirnin ljet í veðri
vaka heldur vegna sjúklinganna, sem
hann langaði til að leiðbeina og hugga, en
fann þó hins vegar. til, að hann hafði ekki
haft tíma til að sinna, sem skyldi.
Eigingjarn metnaður var honttm fjarri
skapi. Skömmu fyrir jólin í vetur hitti
jeg hann niðri í Landsbanka, svo óvenju-
lega glaðan í bragði, að ólíkt var yfir-
bragði margra annara, sem biðu milli von-
ar og ótta um afdrif lána sinna.
Jeg hafði orð á því við prófastinn og
sagði hann þá, að það væri eðlilegt að
hann væri glaður, því að hann væri ný-
búinn að lifa »ánægjulegustu vikuna í öll-
um sínum prestskap«. - Og þessi vika
var »vakningar eða samkomuvika« í Hafn-
arfirði. Ýmsir Reykvíkingar höfðu verið
fengnii’ til að flytja ræður áhverju kvöldi
í viku í húsi K. F. U. M. Aðsókn var
mikil og þátttaka í sambæn líkt og þeg-
ar vakning hefst. - - Prófasturinn tók þátt
í þessum samkomum þegar annir leyfðu,
en var ekkert kvöldið aðalræðumaður
sjálfur. —
Honum var það gleðiefni að sjá safnað-
arfólk sitt leita athvarfs á Golgata, hitt var
ekki aðalatriðið hver að því starfaði í
hvert skifti.
Pví var honum alt sjálfboðastarf í kristi-
iegum æskulýðsfélögum og trúboðsfélögum
mjög kært, enda þótt ha'nn kyntist því ekki
fyr en á efri árum. - En sárt fann hann
til þess eins og' fleiri jafnaldrar hans að
þ.x.r hreyfingar skyldu ekki berast til þ.jóð-
ar vorrar löngu áður en lotningarleysið
fyrir öllu heilögu fór um land eftir alda-
mótin í fylgd með efasýkinni.
Sr. Árni var fæddur 1. ág. 1863. For-
eldrar hans B.jörn Sigurðsson og Elín Jóns-
dóttir b.juggu á Tjörn áNesjum í Ilúna-
vatnssýslu. Björn andaðist 1868 og eftir
I>að tók bróðir Björns, Árni bóndi í Höfn-
um drenginn að sjer og kostaði hann til
nárns. Tók Á. B. guðfræðispróf 1887, fjekk
Reynistaðarklaustur um haustið. Bjó 6 ár
á Fagranesi og fluttist svo til Sauðár-
ki'óks. Kvongaðist 1894 ungfr. Líney Sig-
urjó'nsdóttu r. Varð prófastur Skagfirð-
inga 1908, fluttist að Görðum á Álftanesi
1913. Varð prófastur í Kjalarnesprófasts-
dæmi 1916 og fluttist til Iíafnarfjarðar
fyrir fá|Um árum.
Stór var hópurinn og ástúðlegur um-
hverfis prófastinn, 11 börn sem komust
upp, og leituðu oft heim, þótt þau eignuð-
ust ný heimili,, síðustu árin. »Jeg man þau
lítil og man þau stór, en man þau að öllu
góðu,« má margur segja, því oft var gest-
kvæmt hjá sra Árna og vinir margir, bæði
sóknarbörn og aðrir, og mátti þá margur
dást1 að dugnaði húsmóðurinnar. Á. B.
stundaði öll prests- og prófastsstörf með
frábærri alúð og áhuga meðan mátti.
Ekki kvartaði hann í jólaannríkinu í
vetur. En þegar því lauk, voru kraftarn-
ir þrotnir. 26. mars andaðist hann, eftir
þunga legu.
Jarðarför hans var svo fjölmenn, að
ekki rnunu dæmi 'til í Hafnarfirði, en ein-
hver sag'ði: »Vænna hefði honum þótt, að
sjá slíka kirkjurækni fyrri,« en »það vita
fáír hvað átt hafa, fyr en mist hafa.«
Að tilhlutun Kristniboðsfjelags kvenna í Rvík,
heíir undan farin ár verið leitað samskota til
kristniboðs við guðsþjónustur í dómkirkjunni
einn sunnudag á ári, og hefir því jafnan verið
vel tekið. í þetta sinn voru sainskotin á pálma-
sunnúdag í vetur, og- gáfu kirkjugestir 400 kr.
Fjelagið hefir beðið Bjarma að flytja gefend-
unum bestu þakkir.