Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1932, Blaðsíða 1

Bjarmi - 01.05.1932, Blaðsíða 1
XXVI. arg. 9. tbl. t Sra. Siprðiir Jónsson, Linii. 1864- 1932. Við hittumst í fyrsta skifti á förnum vegi norður í Blönduhlíð vorið 1891( Jeg var að koma að sunnan, frá inntökuprófi í lærða skólann, en hann kom frá presta- skólanum. Mjer fjell hann vel í geð, hann ljet ekkert á [)ví bera, að stúdent tæki niður fyrir sig með því að tala við »busa«, eins og altítt var á þeim árum(i). Síðasta skifti sem við sáumst, var líka á »förnum vegi«. Hann fylgdi mjer niður Lundareykjadal, og þar sem við skildum, var lengi dvalið og talað um heilög mál. Jeg býst við, að hann hafi notið sín best í fámenni. I}að var ekki fljótlegt að kynnast honum vel, en mjer fanst brjeíin hans jafnan bera vott um trú og dreng- skap. Kirkjuræknin er lítil á þessari öld í Borgarfirði, en þó með lakasta móti í Lundarprestakalli. Veit ekki hvernig á því stendur; ekki var fólkið frábitið trú- málum, því að ein 15 heimili keyptu Bjarma á meðan Sveinbjörn í Efstabæ lifði. — En hitt vissi jeg, að »tóma kirkj- an« lamaði sra Sigurð meira en flesta grunaði. Hann var fæddur á Ormsstöðum í Skóg- um í Múlaþingi, 19. maí 1864, tók guð- fræðispróf 1892, fjekk Þönglabakka árið eftir, síðasti prestur þar í 9 ár, fluttist að Lundi 1902, og andaðist þar 5. apríl s. 1. Sra Einar Thorlacius, frá Saur- bæ, prófastur hans og nágrannaprestur um langt skeið, segir svo um hann í Vísi 21. apríl s. 1.: »Sjera Sigurður var einn af þeim kyr- látu í landinu, maður, sem mjög lítið ljet á sjer bera, en vann störf sín með alúð og skyldurækni, eftir því sem heilsa og ástæður leyfðu. Talinn var hann góður prestur og sjerstaklega var orð gert á, hve tækifærisræður hans voru góðar. Iiann var, vel skáldmæltur og hefir lítið eitt birst á prenti, einkum erfiljóð og tæki- færiskvæði, er alt þykir vera lipurt og laglega ort. Sjera Sigurður vaf kvæntur Guðrúnu Mettu Sveinsdóttur, trjesmiðs í Reykja- vík. Sveinn var bróðir Hallgríms biskups. Frú Guðrún lifir mann sinn, ásamt 5 börn- um þeirra, og nú syrgja þau ástkæran eiginmann og föður. Þrátt fyrir mikið heilsuleysi þeirra hjóna um langt skeið og mikinn námskostnað sona þeirra, bjuggu þau hjón ávalt miklu myndarbúi, með sæmd og prýði, enda var sjera Sigurður búhöldur hinn besti og hinn stiltasti og prúðmannlegasti í allri framkomu,

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.