Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1934, Side 2

Bjarmi - 01.03.1934, Side 2
32 BJARMI drambsemi manvsivs, hann vill ekkert af Guði þig-gja. Krjúptu maðkur á mold, beygðu mikillátt hold, öll þín stórmennska er stormhrakinn reykur! Líttu undrandi önd Drottins almættis hönd, skil hve örlítill ert þú pg veikur. Ö, að þessir frelsaralausu aðdáendur Jesú Krists maéttu muna og' skilja þessi orð postulans Páls til safnaðarins í Korintu- borg: »Af náð eruð þér hólpnir orðnir, það er ekki yður að þakka, heldur er það Guðs gjöf.« AUir eru syndarar og' enginn getur frels- að frá syndum, nema Jesús einn. Fyrst af öllu þarf hver einasti maður að kannast við synd sína og þiggja fyrirgefn- ingu fyrir Drottin Jesúm. Að því búnu get- ur hann farið að breyta eftir Kristi fyrir kraft heilags anda, g'efinn af Guði. Allt er gjöf, allt er óverðskulduð náð. Sjá, æfin hefir enga bið, þó enn er tími að snúa við, og flytja þakkir þeim, sem gaf, ei það má gleymast hjeðan af. l3að er, því miður, margur, sem verður að játa, ef hann sér sjálfan sig eins og hann er og hefir verið: Sje nokkur hlutur sorgarsár, sje nokkuð biturt til, þá eru það horfin æfiár ónýt í tímans hyl. Ónýtt er líf hvers manns, ef hanh þjóhar Guði eingöngu í von um laun fyrir þjón- ustuna. Hefir ekki Jesús sjálfur sag't: »Sömuleiðis skuluð einnig þjer, er þjet hafið gjört allt, sem yður var boðið, segja: Ónýtir þjónar er um vjer; vjer höfum gjört það eitt, sem vjer vorum skyldir að gjöra.« Jesús var og verður mörgum til viðreisn- ar. - Hverjum? Peim einum, sem taka á móti honum, sem frelsara frá syndum, og heilögum anda hans sem lijálpara til trúar og helgunar eins og þau Símeon og Anna Fanúelsdóttir gjörðu. Hann frelsar ekki þá, sem rjettlátir eru og' þykjast eigi þurfa hans við. Og því er það, að ef jeg segi í nafni Drott- ins: Jesús var sendur mörgum til falls, þá rísa ekki aðeins guðleysingjar á móti, held- ur og heill her af sjálfréttlátum mönnunt sómamönnum, sem hafa á sér traust og álit mannanna. Jesús verður til fails. Pað þykir þeim svo rnikil fjarstæða, svo ósamrýmanleg't mannlegri hugsun. - - En svona hljóða hin fornu, guðinnblásnu spádómsorð, sem Símeon notaði, af því að hann fyrir heilagan anda skildi þau. Það var Jesaja spámaður, sem flutti þennan boðskap um meyjarsoninn, hinum vantrúaða Akasi, Júda konung'i. Og sá boð- skapur er svo látandi: »Og hann skal verða helgidómur og á- steytingarsteinn og hrösunarhella fyrirbáð- ar ættþjóðir ísraels, og snara og g'ildra fyr- ir Jerúsalem-búa. Og margir af þeim munu hrasa, falla og' meiðast, festast í snörunni og verða veiddir. (Jes. 8, 14—15). Og á öðrum stað segir sami spámaður: »Þeir nntnu steypast aftur á bak, og beinbrotna, festast í snörunni og verða teknir.« Jes. 28. 13). Hvað er þetta óljósa og hræðilega, sem spámaðut'inn er hér að flytja hinum van- trúaða konungi og allri þjóðinni? Er það einhver botnlaus gryfja rétt við brúnina á hjálpræðisveg'inum? Hljóta ekki allir þeir að verða óttaslegn- ir við þetta, sem eru á leið til himins? Jú, postulinn segir: »Framgangið í ótta yðar útlegðartíma« (1. Pjet. 1, 17). Og annar postuli segir, að Nói hafi gengið fram í »helgum ótta fyrir Guði, og Davíð segir: »Þjónið Drottni með ótta og' fag'nið með lotningu« (Sálm. 2, 11).

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.