Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.08.1937, Page 1

Bjarmi - 15.08.1937, Page 1
16. tölublað Reykjavík, 15. ágúst 1937. 31. árgangur 12. sunnud. e. þrenningarhátið (Mark. 7, 31—37). Daufur og málhaltur Eftir séra Sigurð Pálsson, sóknarprest i Hraungerði. Maður sá, sem ujn ræðir i guðspjalli dagsins, liafði ekki lieyrn og gat ekki talað. Það er erfitt fyrir alheila menn að sctja sig inn í þær kringum- stæður. Maður þessi er svipt- ur tveimur aðalskilyrðunum til ]>ess að liafa samneyti við aðra menn. Hann heyrir aldrei kærleiksorð vina sinna, aldrei fagra tóna hljóðfæris eða mannsraddar, og aldrei liina margvíslegu unaðsóma nátt- úruríkisins. Allt, sem vér skynjum og vitum gegnum eyr- að, er honum lokað og vantar með öllu í heim þekkingar lians og reynslu. Hugsaðu þér að þú hefðir aldrei heyrt nokk- urt liljóð af neinu tagi, strik- aðu allt út, sem þix veizt gegn- uin lieyrnarskynið.------Mað- ur þessi var og málhaltur. Ekki er vist, hvort hann hefir verið mállaus með öllu, eða liann hcfir misst heyrnina svo ung- ur, að hann hafi aðeins verið Ijyrjaður að læra að tala. Sé svo, er auðskilið, að mál hans liefir verið mjög ófullkomið og sjálfsagt æði fráhrindandi og ófagurt i eyrum ókunnugra, ])ar sem hann gat ekki læi't eða leiðrétl sig á að heyra aðra menn og heyrði heldur ekki sin eigin oi'ð. Sennilega liefir mál hans — liafi nokkuð ver- ið — fremur likst dýrahljóðum cn mannsmáli. Hann gat ekki glalt vini sína með vinarorði, ekki látið i ljós innstu þrár sinar og hugjsjóhir og aldrei lofað Guð sinn. — Set þig i þessi spor.------ Nú ber það við, að maður þessi mætir Jesú Kristi. Hann snertir hin sjiiku líffæri mannsins og opnar lionum, með sínum guðlega krafti, tvo heima. Þetta kraftaverk Jesú er, eins og öll önnur kraftaverk lians, fyrirmyndun andlegra hluta. Hann kom meðal annars til þess, að gefa mönnunum lieyrn og mál, i andlegum skilningi. Hafi .Tesús Kristur ekki unnið þetta kraftaverk á þér, ert þú daufur.og málhaltur. Hefir þú yndi af orði Guðs, eða er það þér leitt og liálf- eða al-mein- ingarlaust? Sé hið síðara, þarft þú aðeins að fara tii móts við Jesú og liann mun lækna þig. Fyllist þú hrifningu og fögn- uði við að lieyra lofgjörð um Drottinn í sálmasöng og vitn- isburði hinna trúuðu, eða þyk- ir þér það óskemmtilegt og fár- ánlegt? Sé liið síðara, ert þú enn heyrnarlaus. Iiefir þú knýjandi þörf fyrir að tala við Guð um vandamál þin og við mennina um stórmerki Guðs, eða eru þessir lilutir ekki til fvrir méðvitund þinni? Sé liið siðai-a, ert þú málhaltur á liáu stigi. Hvað lieyrir sá, sem ekki hefir látið læknast? Enginn kann upp að telja þau óhljóð. Þau eru reglulausir brestir og þrumur óskapnaðar og evði- leggingar. Eitt hafa þau þó sameiginlegt, þegar að er gáð, og það er þreytustuna, — stuna hins fjötraða lífs, sem andvarp- ar óafvitandi eftir óþekktum frelsara. Sá, sem Jesús Krist- ur hefir læknað, lieyrir Guð tala. Allar aðrar raddir missa gildi sitt í eyrum hans. Hvað mælir sá, sem Drottinn hefir ekki læknað? Um mál hans er eins og heyrn, að það heyrir til óskapnaði og eyði- leggingu og liefir enga reglu. Eitt er það þó, sem liann segir aldrei — hann lofar aldrei Guð. Alt annað getur hann sagt. Hugsaðu þér alla mark- leysu, illmælgi, lýgi, róg og lieimsku; öllu þessu liossar tunga þess, sem ekki Iiefir þeg- ið lækningu af Kristi. Sá einn „talar rétt“, senx heyrir Guð sjálfan tala, því ekkert er „rétt“ sagt nema það byggist á boði Guðs. Undirrót allra meina er svndin. Það er syndin, sem fyllir eyru manna svo að þau verða ónæm fyrir rödd Guðs, og það er syndin, sem fjötrar tungu þeirra svo að liún má ekki mæla „rétt“. Farðu með syndina til hans, þvi allir aðr- ir eru máttvana fyrir henni. Og ef þú veizt ekki hvað þú átl að segja við liann, þá lestu t. d. sálmana nr. 265 og 306 í Sálmabókinni og gerðu þá að þínum orðum. Guð blessi þig. Maður getur byrjað daginn á tvennan hátt, — með bæn og án bænar. — Hvernig byrjar ])ú dag- inn? * Lífið hér er oss gefið til þess að framkvæma það, sem ekki verður bægt að framkvæma i eilífðinni. * Timinn hér i lífi er hluti af ei- lifðinni. Hann flýgur áfram. Notaðu timann vel! Góðar hugsanir, góð orð og góð verk deyja aldrei. * Menn deyja á tvennskonar hátt — annaðhvort deyja þeir í Drottni eða í syndum sínum. Þú deyrð á annan- hvorn háttinn. Hvorn? Lát opnast augu mín, Lát opnast munninn rninn, minn ástvin himnum á, svo mál hans, Drottinn kær, svo ástarundur þín þitt vald og vísdóm þinn mér auðnist skýrt að sjá: æ votti nær Qg f jær. hið fríða foldarskaut, Veit mér að mikla þig hinn fagra stjarnaher á meðan æðar slá; á loflsins ljómabraut já, lengur lát þú mig og ljóssins dýrð hjá þér. þig lofa himnum á. Lát opnast eyru mín, Lát opnast harðlæst hús minn ástarfaðir kær, míns hjarta, drottinn minn, svo eilíf orðin þín svo hýsi’ eg hjartans fús ég ávallt heyri skær: þar helgan anda þinn. Þíns lögmáls hvellan hljóm. Lát friðmál frelsarans þín heilög boð, ei ströng, þar föstunx bústað ná. þíns guðspjalls ástaróm og' orð og anda hans og engla helgan söng. mér ætíð búa hjá. Lát opnast hirnins hlið, þá héðan burt ég fer; mitt andlát vertu við og veit mér frið hjá þér. Þá augun ekkert sjá og eyrun heyra’ ei meir, og tungan mæla’ ei má, þá mitt þú andvarp heyr. V. Br.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.