Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.11.1938, Side 1

Bjarmi - 15.11.1938, Side 1
22. tölublað. Reykjavík, 15. nóv. 1938. 32. árgangur. (Mark. 12, 41—44). 23. sunnudag e. trinitatis Fórnfúst Vér mennirnir viljum gjarna ^ignast gleðina í lífi voru. Vér viljum eignast og fá, en vér erum éfúsari til að fórna og gefa. Það ('r ekki auðvelt fyrir oss að læra- ;>ð gefa. Guðspjallið í dag er dásamlega íögur lítil frásaga, um konu, sem hafði lært þá list. Meðal hinna hiörgu, sem lögðu skerf sinn i fjárhirzlu musterisins,og sem gáfu nf því, að þeir höfðu nægtir, tók Jesús sérstaldega eftir þessari fá- hekju ekkju, sem kyrrlát, og nsest- hm vandræðaleg, lagði sinn skerf i fjárhirzluna. Ilún gat eldci annað hún varð að vera með. En hún hafði lært þá heilögu list að gefa þannig, að hún eignaðist við það sð gefa. Leyndardómsfulla gleðin við það að gefa, var orðin sæla hfs hennar. Þú getur verið fullviss þess, að hún var viss um blessun Guðs, því að Guð elskar glaðan gjafara. Og hún gaf með gleði. ÍTún gaf af því, að hún elskaði Örottinn og málefni hans. Gjöf hennar var þakkarfórn, þakkar- fórn til þess Guðs, sem hafði gefið henni hið bezta — náð og frið! Vér hljótum að dást að þessari Tórnfúsu ekkju. Sérstaklega þegar vér hugsum um það, live mikil Ti’eisting það hefur verið fyrir hana, að halda að minnsta kosti öðrum smápeningnum eftir. En hún gaf þá báða, — allt, sem hún átti. Þess vegna mun kristinn söfn- úður ávallt minnast fátæku ekkj- I önnar, sam gaf af skorti sínum. Og vér sjáum, að gjöf hennar fékk •hesta hrósið lijá Jesú Kristi. En hve hann gladdist við gjöf þessa! Það, að Jesús kghpði til sín læri- ‘■veina sína og talaði um þess gjöf vins og liann gerði, sýnir ljóslega hvers hann metur slíkar gjafir og shkt hugarfar. Hann lítur ekki á það, hvað vér gefum, heldur hvernig vér gefum. Hann gladdist J’fir gjöf konunnar, af því að liann Sa það hugarfar, sem var að hakj gjöfinni. Og í hans augum hugarfar. er það fyrst og fremst hugarfarið, sem allt veltur á. Það er þess vegna, sem er svo erfitt fyrir oss að læra listina þá, að gefa. Það er nefnilega list, sem er gersamlega háð hugarfari voru og lijarla, þvi hugarfari og nýju hjarta, sem Guð einn getur skap- að í oss. Það og aðeins það, er rélta i’ppspretla alls kærleiksríks og góðs starfs. Á umbrota tímum eins og vor- um, þegar misréttur og neyð blómgast í samlífi mannanna, er sár þörf á þessu hugarfari. Það mun nefnilega koma í ljós, að sú umbót, sem borin er fram af öðru hugarfari, megnar ekki að græða meinin, nema síður sé. Það er að- eins liugarfar Jesú Krists og kær- leikurinn frá honum, sem linað gelur nevðina. Annað bregst og fer út á villigötur. En hvernig megnum vér að eignast þetta hugarfar? Því sanu- leikurinn er sá, að ekki eigum vér það. .Tú, vér eignumst það með því, að gefa Guði sjálfa oss. Þá eign- umst vér nýtt og þakklátt hjarta og öðlumst hina sönnu gleði. Og það verður, er vér höfum tekið á móti gjöf Guðs í Kristi Jesú, með trú, og látið frelsi hans verma og þíða hjarlað. Þá mun það sannast, að sá elskar mikið, sem mikið er fyrirgefið. Og með þeirri gjöf fá- um vér nýja náð, og nýtt þrek í lífi voru, því: IJann sem gaf oss sinn eigin son — mundi hann ekki gefa oss allt með honum! Og þess vegna er líka velferð vor undir því komin, að vér helg- um honum hjarta vort og líf. Og sú gjöf vor er ekki fórn til þess að ávinna náð Guðs, nei, vér eig- um hana þegar og það óverðskuld- að. En gefum vér honum lijarta vort og líf, þá eignumst vér það hugarfar, sem gefur á réttan hátt. Guð gefi oss náð til, að Kristur Jesús fái að komast að í hjarta voru með hugarfar sitt. Fyrirmynd. Ilegðið yður eigi eftir öld þessari. Róm. 12, 2. Engu er kristnum mönnum nættara við en því, að haga lífs- háttum sínum í samræmi við þá háttu og siði, sem ríkjandi eru i heiminum á liverjum tíma. Þetta á ekki hvað sizt við um þá, sem ungir eru. Það er þvi þýðingar- mikið og nauðsynlegt, að nema staðar öðru hvoru og rannsaka I livernig afstöðu vorri til heimsins og hátta lians er varið. Ýmsar spurningar, sem ungir lærisveinar Jesú koma með, sýna og sanna, að takmörkin eru mjög náin og að yfir þau er farið öðru hvoru. Afstaða æskunnar til almennra skemmtana, svo sem kvikmynda, sjónleikja, dansleikja, tóhaks- neyzlu, notkunar livíldardagsins til íþróttaæfinga og keppni, og þátttöku i allskonar boðum og samkvæmum, þar sem tíðarand- inn með heimsháttum sínum ræð- ur lögum og lofum, her þess vott, að andi Ivrists liefir ekki fengið að ná yfirráðum yfir anda, sálu og likama. Þar, sem allt líf mannsins, and- legt og líkamlegt, hefir verið fært Guði sem lifandi fórn, ríkir engin Dag í senn. „Dag í senn — hvert augnablik í einu“ — ó, sú huggun fyrir þreytta önd! Kjarklaus er eg, kvíði þó ei neinu, kærri, Drottinn, treysti föðurhönd. Fyrir mig þitt föðurhjarta bærist, fyrir mig hver dagur gjafir ber: Sorg og gleði, lífið svo mér lærist — lærist það, sem eitt er nauðsyn mér. Þú vilt, Guð, þinn kærleik kunnan gera, krýna hverja stund með þinni náð. Þú vilt með mér byrðar dagsins bera, barni þínu gefa kraft og ráð. Gæzlu þinnar heilög hjörð þín nýtur, hjartað mettast við þitt náðarborð. — „Fyrr ei réni afl en ævin þrýtur“ — er þitt skýlaust fyrirheit og orð. Herra, gef mér hvíld í þér að finna, heilagt mér er sérhvert loforð þitt. Gleði trúar lát þú aldrei linna, lífsins orð er snertir hjarta mitt. Kjarklaus er eg, kvíði þó ei neinu, kærleik miðlar, Guð, þín föðurhönd, dag í senn — hvert augnablik í einu, — auðmýkt, Drottinn, kenn þú minni önd. St. Sig.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.