Bjarmi - 20.12.1940, Page 7
B J A R M I
7
cmstöJc aÉtaMSfycmfyGL.
Nyrzt í Norður-Svíþjóð er
lítið einstakt prestakall, einmana
og eyðilegt á milli fjallanna. —
Nokkrar Lappanýlendur lengst
uppi í fjallabreiðunum eiga þang-
að kirkjusókn líka.
Það, sem hér verður sagt frá,
bar við fyrir allmörgum árum í
þessu prestakalli.
Presturinn hafði börnin til und-
irbúnings undir ferminguna
heima á prestssetrinu og meðal
þeirra var ungur drengur, LSra
að nafni.
Það var ekki hægt að hugsa sér
námfúsari *eða eftirtektarsanftara
fermingarbarn en Lára. Hann
sökkti sér niður í fermingarundir-
búninginn af lífi og sál, og það
var öllum auðsætt, að Lára leit-
aði Guðs og þráði samfélag við
hann.
Svo góður duglegur og Idýðinn
sem bann var, var hann þó ekki
glaður drengur. Hann langaði að
trúa á Guð og þráði svo innilega
að geta glaðzt yfir vissunni um að
vera Guðs barn. En bann þorði
aldrei að trúa því í raun og veru,
að Guð vildi nokkuð skeyta um
hann, svo ólireinan og syndugan
eins og bann var.
Eftir því sem nær dró ferming-
unni, varð hugarástand bans
verra og dapurlegra. Honum, varð
með hverjum deginum Ijósara,
að liann mundi aldrei dyrfast að
ganga til Guðs borðs. „Ég er ekki
þess verður“, sagði liann aftur og
aflur við sjálfan sig.
Þess vegna var sorg lians og
örvænting mikil kvöldið fyrir al-
tarisgönguna, er hann lagðist til
svefos. Hann lá í litlu rekkjunni
sinni og varð andvaka. Hugsanirn-
ar komu og fóru, og við og við
stundi hann upp: „Sá, sem aðeins
væri þess verður.“
Það var glaða tunglsljós úti
þessa nótt.
En hvað var nú um að vera?
Allt í einu varð eins og tungls-
geislastafimir tækju á sig mynd
og líkamslögun, og áður en hann
gal áttað sig, stóð bjartur og
ljómandi engill við beð hans.
Lára brá ekki bið minnsta þegar
engillinn laut niður að honum og
sagði: „Drottinn Jesús hefir sent
mig til þín, Lára til að segja þér,
að einmitt fyrir það, að þér finnst
þú óverðugur, þá hefir Drottinn
Jesús ákveðið að veita þér kvöld-
máltíðina sjálfur. Rístu þess
vegna skjótt upp og fylgdu mér.“
L&ra reis samslundis úr rekkju
og hugsaði margt. Hann klæddist
Lappaklæðum sínum, ásamt húfu,
í'innskóm og •vetlingum. Síðan
fylgdist hann með englinum út í
tunglsljósið, út traðirnar og inn
á veginn til kirkjunnar.
Þetla var um miðja nótt og allt
var hljótt. Lára var að liugsa um
það, að kirkjudyrnar myndu vera
læstar og lylallinn inni hjá kirkju-
verðinum, en þegar þeir lcomu til-
kirkjunnar og engillinn tók í
hurðarhúninn opnaðist hurðin.
Kirkjan var uppljómuð, eins og
við jólamorgunsöng, og bonum
varð starsýnt á undursamlega
dýrðlega veru, sem, birtist honum
innan við gráturnar.
Það var Drottinn Kristur sjálf-
ur. Hann sneri sér að Lára, er
kom inn kirkjugólfið með engl-
inum.
Augu Drottins ljómuðu af ást-
úð og blíðu og dýrð Ijómaði um
hann allan. Ilann hélt á bikarnum
í annarri hendi og diskinum með
brauðinu á í binni.
Þegar Lára kom að grátunum \
féll hann á kné við þær, heyrði
liann þá Drottinn segja: „Þetta er
líkami minn. — Þetta er blóð
mitt.“
Friðnum, sem gagntók hann,
getur enginn lýst. Drottinn sjálf- [
ur hafði viljað sýna honum, að
Iiann væri velkominn að náðar-
borði lians.
Uiulir eins á eftir stóð hann
upp, gekk úl úr kirkjunni. Héll
síðan lieim i skyndi og lagðist lil
svefns.
Þegar kirkjuvörðurinn kom til
að kveikja upp í ofninum í kirkj-
unni um morguninn og undirbúa
allt undir messugjörðina um dag-
inn, sá liann lireindýrsskinnvetl-
inga liggja á grálunum, og þegar
hann kom inn i skrúðhúsið, sá
hann, að hinir helgu altarisgripir
höfðu verið notaðir.
Kirkjuvörðurinn einn hafði lyk-
ilinn að kirkjunni, og lykillinn
liafði ekki verið látinn út úr húsi
hans, það vissi liann fyrir víst.
Hann var lilca jafnviss um það,
að engir hreindýrsskinnvetlingar
höfðu legið á grálunum, þegar
hann gekk síðast út úr kirjunni.
Og það voru einmitt þessir fá-
tæklegu skinnvetlingar, sem sann-
færðu prestinn um, að Lára sagði
satt frá þessu.
En Lára sjálfur gekk inn til
fagnaðar herra síns á þessu sama
ári, til þess þar að verða þátttak-
andi i hiniii miklu kvöldmáltið.
(„Sveriges Pojkar“).
Kafli úr ræðu eftir síra Jón Bjarnason, pr.est í Winnipeg.
„Eg er góði hirðirinn; góði
hirðirinn leggur líf sitt i söl-
urnar fyrir sauðina; leigulið-
inn, sem ekki er hirðir og
ekki á sauðina, sér úlfinn
koma, og yfirgefur sauðina
og flýr.“ — Jóh. 10.
Veilið því eftirtekt í bvílíkt and-
stæði Jesús setur sig til allra ann-
arra andlegra leiðtoga mannlcyns-
ins.
Hann einn er góði hirðirinn.
Hann einn hefir rétt til þess að
gjöra mannkynið allt að söfnuði
sínum. Ilann einn liefir andlegt
fóður og andlegan svaladrykk fyr-
ir alla. Hann einn getur gjört alla
sáluhólpna. Hann einn boðar sig
sem bið eilífa líf.
En allir þeir, sem koma á und-
an bonum til manna með sína
svokölluðu lífsspeki, þeir eiga að
skoðast þjófar og ræningjar, ó-
sannir sálnabirðar, liáskalegir
villukennendur, sem eru að stela
eða ræna því rúmi í hjörtum
manna, er honum einum tilheyrir.
Það hefir verið fullt af þeim í
sögu kristinnar kirkju á öllum
liinum Uðnu öldum, og það er fullt
af þeim enn í dag.
Það er eilt stöðugt einkenni á
öllum slíkum ósönnum sálnaliirð-
um, að þegar aðalhætlan, sem
vofir yfir mannlegu lífi, er yfir
menn komin, þá leggja þeir allir
á flótta. Þegar mannssálin er
hrelld allt til dauða, í örvænting
út af syndurn sínum, veit af rétt-
lætisdómi Guðs yfir sér, þá liafa
þeir ekkert einasta huggunar. eða
fagnaðarorð, sem dugir fram að
bera.
Þeir liafa áður talað stórum
orðum um það, að lærdómur Ritn-
ingarinnar og kristinnar kirlcju
um synd og náð, iðran og trú, fyr-
irgefning og friðþæging sé ekki
annað en hindurvitni hjátrúar-
innar. Þeir kenndu sigri hrósandi
það evangelíum, að syndina
þyrfti alls eldvi að óttast, ekki
nema að því leyti, sem hún stund-
um getur haft óþægilegar afleið-
ingar fyrir þetta jarðneska líf.
Dómur yfir syndinni frá Guði í ei-
lífðinni væri enginn til. Því ef Guð
á annað borð væri til og hefði
búið mönnum annað líf eftir
dáuðann, þá Iilyti Iiann að vera
svo kærleiksríkur, að hann gæ’ti
dlvki fengið af sér að kalla menn
til nokkurs reikningsskapar út af
syndum þeirra i þessu jarðneska
lifi. Og það því síður, sem hann
liefði gengið svo frá sköpunar-
verki sínu að mönnunum, að þeir
hefði i rauninni ekki getað látið
vera að syndga. Svo frá þvi sjón-
armiði hefði menn miklu fremur
sök á móti Guði fram að bera,
þegar þeir í eilífðinni stæði aug-
liti til auglitis við liann, heldur en
Guð á mót mönnunum.
Þegar vantrúin eða hin svokall-
aða speki, sem andstæð er opin-
beran kristindómsins, flytur
þenna boðskap, þá er sem steini
sé létt af björtum margra, og
menn fagna út af þessu eins og
stórmiklum frelsistíðindum. Menn
eru með þessu leystir frá binni
siðferðislegu ábyrgð á sinu eigin
lifi. I staðinn fvrir að kristindómr
urinn eýkur sjálfsábyrgðina ná-
lega í liið óendanlega.
En svo kemur samvizkan og
dauðinn, þegar minnst vonum var_
ir, og slær svörtu striki yfir þenna
létlilega lífsúlreikning vantrúar-
innar.
Það er ekki unnt að prédika sam-
vizkuna og sjálfsábyrgðina, synda-
meðvitundina og hinn guðlega
dóm, út úr mannlegri sálu, nema
aðeins um stund. Samvizkan get-
ur vaknað þá og þá án þess mað-
ur fái þar nokkuð hið minnsta við
ráðið. — Og þegar ógnandi dómur
samvizkunnar lætur til sín lieyra
og það var eins og dómsrödd liins
lifanda Guðs, þá er og sýnt, að
vantrúarspekin öll, sem áður hafði
látið svo notalega í eyrum, er ekki
annað en sárgrætilegasta tál. Því
þegar maðurinn í angist sinni lít-
ur upp og hrópar eftir hjálp og
huggun til sinna fyrverandi sálu-
sorgara, þá eru þeir allir horfnir.
Þeir flýja æfinlega burt frá ang-
istarstöðvum mannlegs lífs. Það
er ekkert huggandi, friðandi eða
frelsandi orð til á vörum þeirra,
þegar svona er ástatt. „Leigulið-
inn sér úlfinn koma“, segir Jesús,
„og' yfirgefur sauðina og flýr.“
Þeir flýja allir, þessir fáránlegu
falsprédikarar með sín ímynduðu
frelsistíðindi burt frá mönnum,
þegar til mestu alvörunnar kem-
ur í lífinu og dauðanum. Þeir vita,
að þeir hafa ekkert það lil í hin-
um andlegu fórum sínum, er
samvizkan verði friðuð með.
Þegar svo stendur á, er engin
liuggun og engin frelsisvon til
nema því aðeins að menn lieyri
þá röddina lians, seg? forðum í
þjónsmyndinni flutti þessi guð-
legu gleðitíðindi hér á jarðriki:
„Ég er góði liirðirinn —- og legg
lífið í sölurnar fvrir sauðina.“
Með því að deyja fyrir mennina
og gjörast syndafórn þeirra vegna
hefir Jesús sýnt það og sannað
í verkinu, að öllum er óhætt að
trúa lionum fyrir sálu sinni.
Jesús er góði hirðirinn. Hann
einn af öllum leiðtogum manna,
sem komið hafa fram i sögu þjóð-
anna í lieiminum , getur verið
sálnahirðir einstakra manna og
almennings. Hann einn getur ver-
ið hjá mönnum í‘ dauðanum og
varðveitt menn þá. Því hann einn
liefir dáið fyrir syndir manna. Og
liann einn hefir sigrað dauðann,
risið upp úr sinni gröf. Hann einn
hefir líka lieitið sínum lærisvein-
um að vera hér með þeim, hvar
sem þeir eru staddir.
Hinn krossfesti og upprisni
Jesús er góði hirðirinn, hinn eini.
sem bæði liefir viljann og máttinn
til þess að vera allsherjar-sálna-
hirðir mannkynsins og þá um leið
hvers einasta mannlegs einstak-
lings.