Bjarmi - 02.04.1943, Síða 1
6. tölublað.
Reykjavík, 2. apríl 1943.
37. árgangur.
Hið eil
Hvaö ör framundan? Það er
spurning, sem oft kemur upp í
hugum manna nú. Styrjöldin hefir
nú staðið meira en hálft fjórða ár
og enginn gelur sagt hve lengi hún
muni standa. Eitt ei* oss þó Ijóst.
Eftir stríð verða milcil umskipti
hér i lieimi, hver sem leikslok
verða. Vér lifum á tímamótum,
uggvænlegri ojg öplagarikari en
nokkurn grunar. Gamli heimurinn
og gamla menningin kemur ekki
aftur í þeirri mynd, sem liún áður
var í þjóðlífinu og samhúð þjóða
á milli.
Oss er heitið friði, frelsi og ör-
yggi í lcomanda heimi. Það verður
sjálfsagt reynt að veita oss það,
cn oss verður elcki tryggt það um
l'ramtíð alla. Eðli manna og þjóða
hefir ekki breytzt í þessari styrjöld.
Það verður eins og áður sterkasti
þáttur lífsins og það sem mótar
framtíðina, hvað sem stjórnmála-
mennirnir kunna að samþykkja
sem lagafrumvörp og friðarsátt-
mála. Er frá líður mun ný yfir-
i áðastefna, ný krafa um „lífsrúm"
í sólinni, koma fram. Valdastreita
mun á ný skjóta upp höfðinu.
Þessi styrjöld verður ábyggilega
ekki siðasta ofbeldisverkið í sögu
þjóðanna. Það er fullvíst, af því
að ennþá er eðli manna hið sama
Kommúnisminn er t. d. langt
frá því að vera dauður. Sigri hann
í þessari styrjöld inun hann halda
áfram sínu fyrra starfi og ekki
frekar en áður hugsa um það, þó
ekki sé ætíð „farið að lögum“ eða
mannúð, því tilgangurinn lielgar
meðalið. Og meðan svo er verður
ofheldi og óréttlæti til í þessum
heimi hver svo sem beitir því.
Ríki eiga eftir að hrynja. Það
vitum vér. Og vér vitum það lika,
að voldug ríki, sem upp kunna
að koma nú, eiga er tímar líða
fram eftir að lirynja í rústir, skol-
ast burt í slraumi þjóðanna. Sag-
an sýnir það. Svo liefir það gengið
til á liðnum öldum. Ríki og' menn-
ir.gartimabil liafa risið og horfið.
Eitt ríki hefir þó staðið af sér
alla þjóðflulninga, rikjabreyting-
ar og menningarumskipti. Það er
ífa ríki.
ríki .lesú Krists. Og svo mun verða
í framtíð. Að vísu er ekki vist að
hin ytri kyrkja liafi þá stöðu i
þjóðfélögunum sem hún hefir nú.
Það skiptir engu máli, því hitl er
fullvist, að ríki Jesú Krists mun
standast. Vér vitum að sú kirkja
sem hefir hegðað sér eftir þessum
heimi og lagað sig að villu hans,
h.ún hrynur og hverfur með þeim
öldum, se’rn hún lét berast með.
En sá söfnuður, sem hyggður er á
hinu óumhreytanlega hjargi ald-
anna og hefir staðið þar staðfast-
ur, liann stenzt straumrót tímans,
er tízkuhreyfingarnar innan kirkj-
unnar hverfa.
Vér vitum það eitt með vissu,
að framtíðin tilheyrir ríki Guðs.
Orð Guðs vors stendur stöðugt að
cilífu. Vér vitum að Drottinn Jesú
kemur á ný. Ilvort þess er langt
að biða eða skammt á manna visu
vitum vér ekki, en vér vitum að
liann kemur. IJann hefir sjálfur
sagt það. Og þá fyrst mun vald
hins illa sigrað að fullu og öllir
Drottinn einn er þess megnugur
að veita oss nýja jörð þar sem
réttlætið býr. Þvi hefir liann lieit-
ið oss og vér treystum því. Vizkan,
menntunin og þekkingin er svo oft
búin að syngja síðasta versið yfir
hinu lieimskulega og gamla fagn-
aðarerindi, að furðu sætir. Allt
hefir |)ó horfið nema það eitt.
Það er enn í dag nákvæmlega
sama og það var fyrir 1900 árum.
Vér heyrum sömu orðin um náð
Guðs í Drottni Jesú, sama boð-
skapinn um friðþægingu, upprisu
dauðra, réttlætingu af trú, fyrir-
gefningu synda, dauða, dómsdag
og annað lif. Þessi boðskapur hef-
ir lifað, lifir og mun lifa og hann
mun sameina milljónir milljóna
hjá hverri kynslóð, livað sem liður
vantrú og ofsókn. Ekkert fær
grandað þessum boðskap, því þeir,
sem trúa honum eru sameinaðir
i einum likama fyrir kross Krists.
í þessari fylking stöndum vér,
þótt það sé langt frá að vera tízka
hér á landi. Vér eigum hræður í
öllum löndum heims. Vér berum
■sitnishurðinn áfram til næstu kyn-
slóðar svo hinn heilagi eldur
slokkni ekki heldur logi hjá hverri
kynslóð, óslitið unz Drottinn Jesú
kemur.
Mótin
náigast.
Eins og auglýst var i síðasta
blaði verður mótið hér sunnan-
lands haldið 19.—21. júní. Það eru
lilmæli vor, að tilkynningar um
þátttöku séu í síðasta lagi komn-
ar þann 1. júní. Eins og vér liöf-
um áður tekið fram kemur það
sér hetur að þátttakan sé tilkynnt,
þótt ekki sé alveg örugg, heldur
en að dregið sé fram á siðustu
daga að tilkynna þátttöku. Það
trúir þvi enginn, sem ekki vinn-
ur að undirbúningnum, hve það
getur komið sér illa og aukið erf-
iði, er komið e‘r á allra síðustu
stundu, án þess að gert hafi verið
ráð fyrir þvi áður, minnsta kosti
að einhverju leyti. Vér viljum
beina þeirri óslc til þátttakenda að
tilkynna þátttöku sína eins fljótt
og unnt dr. Þátttöku má tilkynna
á eftirtalda slaði:
Akranes: Kristrún Ólafsdóttir,
Vesturgötu 35. Sími 23.
Akureyri; Sigurlaug Svanlaugs-
dóttir, Norðurgötu 12. Sími
297.
Hafnarfirði: Jóel Ingvarsson,
Strandgötu 21. Sími 9095.
Reykjavík: Afgreiðsla „Rjarma“
Þórsgötu 4. Rox 651. Simi
3504.
Vestmannaeyjar: Steingrímur
Behediktsson, Hvítingavegi 6,
Ve.
★
Einn aðal erfiðleilcinn i ár verð-
ur sjálfsagt eins og áður að útvega
nógu mörg tjÖJd lianda þátttak-
endum. í fyrra þurftum vér 90
tjöld i allt. Undanfarið hafa marg-
ár hendur hjálpast að við að út-
vega tjöldin og treýstum vér því,
að svo verði einnig í ár. Gerið svo
vel að láta afgreiðslu „Bjarma“
Vita um tjöld, sem fást að láni og
verður þá reynt að sækja þau, ef
mögulegt er.
Iíostnaður: Þátttökugjald er
ekki unnt að ákveða til fulls, vegna
óvissu um fargjald, enn sem kom-
ið er, en að öllum líkindum verður
það svipað og í fyrra, að minnsta
kosti ekki lægra. I fyrra var gjald-
ið kr. 20, þar með talið fargjald
báðar leiðir og fæði. Upp fyrir kr.
25 ætli gjaldið þó aldrei að fara
-— og lielzt ve'ra sama og það var.
En úr því sker fargjald.
Saiheinumst svo i bæn fyrir
mótinu. Vér höfum fengið að
reyna mikla hluti og notið mikill-
ar náðar á liðnum árum. Svo mun
enn verða, ef vér felum Drottni
málefnið og treystum honum.
Að Brautarhóli.
Mótið norðanlands verður háð
3.—5. júlí. Verður það með sama
sniði og undanfarin ár. Tilkynning
um þátttöku sendist til eftirtaldra:
Á Akureyri: Frú Jóhanna Þór,
Norðurg. 3. Simi 112.
Frú Sigurlaug Svanlaugsdótt-
ir, Norðurg. 12. Sími 297.
í Reykjavík: Afgre’iðslu Bjarma.
★
Eins og áður lendir undirbún-
ingur mótsins eingöngu á vinun-
um fyrir norðan og vonumst vér
iil þess, að allir geri sitt til þess
að létta þeim störfin með þvi að
bjóða fram það, sem þeir geta af
tjöldum, og tilkynna þátttöku
sína 'tímanlega.
Kostnaður: verður svipaður og
fyrir mótið sunnan lands.
Um dagskrá er allt enn i óvissu,
en verður vonandi hirt samtimis
fyrir bæði mótin.
Bæði mótin felum vér svo
Drottni daglega í bænum vorum.
Án ble'ssunar lians og Anda er allt
gagnslaust.
Til kaupenda.
Kaupendur „Bjarma“ í Reykjavík
eru beðnir aS athuga, a'S árgjaldi'5
verSur aS þessu sinni innheimt í
maí. Undanfarin ár hefir gjalddagi
„Bjarma" og annir fyrir mótiS veriS
um svipaS leyti, svo lítt mögulegt
hefir veriS aS koinast yfir hvort-
tveggja. Til hægSarauka æth;m vér
nú aS færa gjalddagann fram um
mánuS. Treystum vér því, aS kaup-
endur blaSsins minnist þessa og greiSi
blaSiS í maí, er reikningur fyrir þaS
kemur.