Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 02.04.1943, Síða 3

Bjarmi - 02.04.1943, Síða 3
B J A R M I 3 KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ Kemur út tvisvar í mánuði. ' Útgefandi: Ungir menn í Reykjavik. Ritstjórn: Ástráður Sigursteindórsson, Bjarni Eyjólfsson, Gunnar Sigurjónsson. Áskriftargjald kr. 6.00 á ári. Gjalddagi 1. júní. Afgreiðsla Þórsgötu 4. — Sími 3504. PÓsthóIf 651. Félagsprentsmiðjan h.f. mm ©iiRiD., í undanförnum tölublöSum „Bjarma“ liafa birzt nokkurar greinar um Biblíulestur. Vér von- um að þær hafi orðiö einhverjum, já, helzt mörgum, til gagns og blessunar. Það er fátt jafn mikil nauðsyn nú eins og að fá menn til þess að lesa Guðs Orð. Biblian hefir verið liræðiljega vanrækt lijá þessari þjóð — og verra en það. Hún liefir eiginlega verið minna metin en flestar aðr- ar bækur. Og það er von. Menn i prestastétt hafa skoðað það skyldu sína, vegna samvizkunnar, að gefa lýðnum annað úrskurðarvald i trúarefnum. Sú stefna liefir orðið dýrkeypt, þvi nú er svo komið, að i andlegum efnum trúir fólkið vel flestu, nema Guðs Orði. Það kemur varla svo fáránleg bók um ,sálræn efni“ að fjöldi manns trúi ekki hverju alriði liennar. Kafl- ar úr þeim eru lesnir upp í út- varpið, og þjóðin hlustar á þessa speki — og Irúir. Þannig bersl ný alda hjátrúar og hindurvitna yfir þétla land. Því, sem kemur frá „öðrum heimi“ er trúað af fjölda mörgum, hvað svo sem það er. Margt manna dáist nú að bók, sem segir frá hvernig tekið var við drukknuðum mönnum hinum megin. Eitt það fyrsta, sem þeim var kennt á landi eilífðarinnar, var að synda! Og svo gerir þessi kenning kröfu til að teljast biblíu- leg, já, sannur kristindómur, eii er þó hrein efnishyggja með þann sérstaka svip, að ná út yfir gröf og dauða. Þjóð vor þarfnast nú einskis eins og þess, að menn vilji nú taka Guðs Orð og lesa með atliygli það, sem það segir. Vér vitum ekkert um Guð nema það, sem hann hefir opinberað oss. Vér þekkjum Guðs vilja aðeins fyrir orð hans. Og vér vitum það, að Jesús Kristur, sonur Guðs, hefir komið til vor liér á jörðu og veitt oss þekkingu á föð- urnum. Þess vegna ber öllum oss, sem kristnir vjljum teljast, að hlusta fyrst og fremst á hann. Og það getum vér með því að lesa orð hans. Ef þú vilt eingöngu lesa það, sem hann sagði sjálfur hér á jörð, þá lestu guðspjöllin. En lestu j)íiu i alvöru og athugaðu gaumgæfi- te"p án nokkurrar túlkunar ann- arra, hvað Jesús Kristur segir þér. Trúðu þvi, sem hann segir, þó Er því þai Raunveruleiki. Stundum heyrist um ]>að rætt, að trúaðir menn forðist raunveru- Ieika lífsins. Sagt er að þeir lifi i hálfgerðum draumaheimi og ylji sér við hlýju ímyndana og óska. Þeir standi ekki föstum fótum í lifinu sjálfu. Þessi skoðun getur ekki átt við hversdagslegt líf þeirra eða borgaralegt. Þeir lifa sínu lifi og gegna sínum starfa í þjóðfélaginu eins og aðrir þegnar þess. Og þeir snúa sér að starfa sínum með al- veg jafn mikilli raunsæi og dugn- aði og aðrir. Þeim er eðlilegt að vinna sín störf, hver sem þau eru. Þeir eru skósmiðir, kennarar, prestar, verkamenn, bændur, prentarar, bókbindarar, verzlun- armenn, vinnukonur, sjómenn, bílstjórar, klæðskerar, skrifstofu- menn, málarar, járnsmiðir, rakar- ar, vélstjórar og bakarar, svo nefnd séu nokkur þau störf, sem ég man í augnablikinu að trúaðir menn stunda. Þeir rækja sannar- lega sitt starf i fullri meðvitund þess, að liér á jörð ber að vinna og stárfa til að afla daglegs brauðs og byggja upp siðað menn- ingar]>jóðfélag. En að hvaða leyti eru trúaðir menn þá „óraunverulegri“ í lífi sínu og Iiegðan en aðrir? Er það í andlegu mati þeirra á hlutunum og viðhorfi til gæða lífsins? Ég var að hugsa um þetta um daginn, er ég var að ferðast i stórri áætlunarbifreið norður í land. Þar var 25 manns, af flestum stéttum £<ð því er séð varð. Þar var skraf- að sungið eins og verða vill á langri leið. En það verð ég að segja, að ef það, sem þar lieyrð- ist, er sýnishorn af viðhorfi al- mennings til lífsins, þá er flóttinn frá raunveruleikanum medri hjá almenningi en ]>eim hópi, sem brennimerktur cr fyrir óeðlilega og óskynsamlega afstöðu til hins raunverulega lífs. Það er satt, að trúaðir menn sjá ýmisJegt i lifinu, setm þeii’ treysta sér ekki til þess að ráða fram úr eða sigrast á. Þeir finna sig vanmegnuga gegn ofurvaldi syndarinnar. Og það er satt, að þeir flýja með allt slík til Drottins það gangi í bága við ríkjandi skoð- un almennings — já, klerka líka. Haltu þér við orð Krists og láttu ekkert hrekja þig frá þeim, þvi Jesús Kristur hefir aldrei logið. Hafi hann ekki gert það, þá ber þér að trúa orðum hans og halda þér við þau. Guð gefi að sem flestir lesi orð hans og hlýðnist því. Það eitt fær fært oss sanna sáluhjálp til handa þessarar þjóðar. Það eitt fær bjarg- að oss frá kænni villu og valdi syndar. Beyg þig fyrir orði Guðs og því einu. Það eitt flytur þér sannleikann. Minnstu þess. inig farið? í bæn og beiðni. Það má kalla slikt „flótta frá raunveruleikanum“. [>að er samt ekki, heldur þvert á móti. Það er ekki flótti frá lífinu, heldur til lífsins. Þeir snúa sér í rétta átt, er þeir leita til Drottins, sem allt hefir gert og er uppspretta lífsins. Ég fann það liins vegar þessa daga, sem ég var með samferða mönnunum, að l>eir, sem þykjast taka lífið eins og það er, orna sér við tál og óraunveruleika. Þeir svngja um nóttina, draumana og nautnirnar, til þess að „bæta séi upp“ hVersdagsleikann. Þeir syngja um þreytu og einmanaleik, um flöskuna, tárið og rallið. Eins og einn þeirra sagði (mesti merk- ismaður að allra dómi): Það er nú þrátt fyrir allt svo, að það vant- ar að fólk komist nóg út i rallið. Það er það eina, sem gerir það að mönnum. Og allir játuðu þessu, sem bjargarmöguleika fyrir þjóð- lífið. Nei - það er ekki hægt að segja | að fólkið standi föstum, fótum í raunvéruleikanum, eða sæki styrk sinn þangað. Það unir við drauma hugsjónalitla og andlausa, mið- aða við liold og lieim. Söngur. Það hefir þótt lmittilega sagt, að trúarlifið sé eilifur sálmasöng- ur. Hefir ]>að þótt all-ískyggilegt útlit að eiga það í vændum í ei- lifðinni að eiga að fara að lofa Guð. Þá hefir það og þótt heldur ó- raunverulegt og drepandi líf, að vera að syngja sálma hér í lifi — oftar en á jólum og við nokkrar kirkjuferðir. — IJvernig getið þið unað við að vera alltaf að syngja þetta um Jesúm? Þannig er oft spurt. Ætla mætti, að eitthvað lífrænt hefði heimurinn þá að bjóða með sinum söng. Ég fékk að kynnast því. Og mér datt í hug: Hvemig getur fólkið unað við þetta? Um livað er það eiginlega að syngja? Jú — það vár nú fyrst söngur- inn um þessa blessaða Pálínu og „maskínuna“ hennar — nú og um Jósafat og gamla Lars. Þá var það söngurinn um þreytuna og draumanóttina sem þyrfti að fara að koma til að lækna meinin. Auk þess var sungið innilialdslaust ljóð skrípi með æ, æ, æ, ó, ó, ó, sem sifelldu viðlagi. Og ýkjúlaust var 80—90% prósent af því sem sung- ið var lireinar drykkjuvísur og lofsöngur til vínsins. —- Þá var þessi dásamlega viturlega lieit- strenging um það að menn skyldu „aldrei vaka og aldrei sofa“ — og sofnuðu svo að segja allir í bif- reiðinni skömmu seinna. Ég þráði það sannarlega, að þessir tslendingar vildu nú syngja eitt einasta ættjarðarljóð, þvi þess er þörf á þessum dögum, að ís- lenzk tunga og íslenzk menning syngist inn i þjóðina. Ég var löngu hættur að búast við ættjarð- arljóði, þegar það kom eins og svalandi dögg innan um allt liitt. Reyndar var það þó ekki nema „Yfir kaldan eyðisand", sem sung- ið var. Og þótt ég sé Sunnlend- ingur fannst mér stór fengur að fá þó ljóð um landið — þótt mér hafi alltaf þólt vísan alltof veiga- litil til að teljast ætjarðarljóð. Hún var það þó hér. Þess skal þó geta, að ég fékk að lieyra tvö ættjarðar- ljóð á allri fei’ðinni. Eftir þetta er eitt mér Ijóst: Vér þurfum að lialda áfram að syngja l'agnaðarerindlið inn í fólkið af öllum mætti. Vér þurfum að syngja það í hversdagslegum bún- ingi, við aljjýðleg lög. Það er betra að rétta fólkinu lítið kristilegt ljóð við lipurt lag til þess að raula, heldur en þetta væmna, lífsþreytu- kennda söngl, sem Iieltekur alþýð- uná til sjávar og sveita, eins og farsótt. Er nokkuð verra að sungið sé um náð Guðs, hlessun og líf, sem veitist hjá honum, heldur en að | Bakkusi sé sifellt sungið lof? Er | nokkuð verra að syngja uin gleði ! trúarinnar og fyllingu lífsins með Kristi,* en að heyra hálfvæmna kvörtun um þreytu og ósk um „draumanótt meS fangið fullt af frið og ró“? Nei — betri söng en um dýrð- ina í ríki Krists þekkjum vér ekki. Og í kjölfar hans á að koma söngurinn um landið, sem Guð gaf oss. Það er saurgun á tungunni, ]>elta sifellda Bakkusarlof, sem ómar um land allt. Lítil meðmæli. Væri kirkjan starfandi og ef hún skildi köllun sína betur en liún gerir, væri meira um frjálst starf í þessu landi. Þá mundi það heldur ekki vekja furðu, þótl kristilegt slarf væri rekið, i fleiri myndum en i sameiginlegri guðs- þjónustu safnaðarins í kirkjunni. Við vorum á leið inn dal nokk- urn, gangandi. Er við vorum kom- in alllangt inn eftir honum var komið til okkar á hesti. Sá, sem kom, spurði lwert ferð væri he'itið. Við sögðum það. Og erindið? Jú við ætluðum að halda kristi- legar samkomur. „Nú, kristilegar samkomur. Eruð þið aðventist- ar?“ var svarað. „Nei, við erum evangelisk.-lútherskir“. — Og • til frekari skýringar urðum við að taka- það fram, er við sáum, að þetta skildist ekki meira en svo, að við værum innan kirkjunnar. Það vakti undrún, að við skyldum ]iá vera að lialda kristilegar sam- komur, en var þó heldur betur skilið, er við nefndum kristniboð- ið og Kína. Það er langt í land með kristi- legt starf i þessu landi. Og það er þjóðkirkjunni, já þjóðinni sem kristinni þjóð, ekki vansalaust, að ]>að er talið óhugsandi, að nokki’- ir starfi að fagnaðarerindinu nema þeir, sem nefndir eru „sértrúar- flokkar‘% Það getur enginn

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.