Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 13.03.1946, Blaðsíða 1

Bjarmi - 13.03.1946, Blaðsíða 1
3.—4. tbl. Reykjavík, 13. marz 1946 40. árgangur. 400 dra dánannmnlncf : Andlát Lufhers 18. febrúar 1546. Marteinn Lúther liafði alls ekki verið heilsuhraustur maður. Hann þjáðist lengi af nýrnastein- um og þrálátri höfuðveiki, er oft var mjög kvalafull. Auk þessa hættist það við, að hann hafði oft mildar áhyggjur, ekki einasta vegna sinnar eigin sálar, eins og allcunnugt er, heldur og um fram- gang fagnaðarerindisins. Allt þctta varð til þess að veikja krafta hans; og síðasta árið, sem hann lifði, var hann maður þreyttur og veikur. Hann lýsir líðan sinni i hrófi 17. jan. eða einum mánuði fyrir dauða sinn, með þessum orðum: „Gamall, slitinn, þreytt- ur, örmagna og með aðeins eitt auga til þess að sjá með.“ Þegar Lúther ritaði þetta, var hann í þann veg að leggja af stað i ferðalag til fæðingarbæjar sins, Eisleben. Vaír hann beðinn að fara þangað, til þess að sætta her- toga tvo og ættmenn þeirra,. er áttu i miklum deilum. Þar sem mikið var í húfi tók Lútlier þetta að sér, þótt veill væri, og lagði af stað frá Wittenherg 23. janúar. Sunnudaginn áður, þann 17., Iiafði hann prédikáð þar í síðasta sinn. Ýmsir vinir hans voru með honum, auk hundrað voimaðra hermanna, sem kjörfurstinn lét fylgja, honum sem lífvörð. Lúther kom til Eisleben þann 4. fehr. Sáttastarfið gekk ekki vel. Her- togarnir voru erfiðir viðureignar og þreyttist Lúther mjög að berj- ast við að sætta þá. Auk þess hafði ferðalagið verið honum erfitt, bæði vegna kulda og flóða. En kulda þoldi hann orðið illa. Þrátt fyrir miklar annir prédikaði hann fjórum sinrium, tók tvisvar þátt í altarisgöngum og vígði tvc presta. Auk þessa skrifaði hann mörg og löng bréf, einkanlega til konu sinnar og Melancthons. Kona hans var kvíðafull vegna heilsu hans og ritaði hann henni fimm sinnum á þessum hálfa mánuði. Bréf, sem liann skrifaði konu sinni og Melancthon þann 14. febrúar, eru vafalaustl síðustu bréfin sem hann ritaði. Þann sama dag mátti telja, að deilu liertoganna væri lokið, þar eð Lúther hafði tekizt að sætta þá í aðalatriðum, en þó voru nokkur aukamálefni eftir. Vinir lians vissu, hve veikur hann var og var því likamá lians hjúkrað eins vel og kostur var á. Hann fcir snemma í rúmið á hverju kvöldi, eftir að hann hafði staðið við gluggann, eins og venja hans var, og beðizt ákaft fyrir. Hænn liætti við síðustu ræðuna, sem hann hélt, sunnudaginn 14. febr. með þessum orðum: „Þetta og meira til þarf að segja um guðspjall þetta. En ég er of veik- ur, vér verðum, að hætta hér.“ Þann 16. og 17. fehr. var sátta- lilraunum lokið i öllum atriðum. í1 borðræðum sinum þann 16. seg- ir Lúther: „Nú ætla ég ekki að dvelja hér lengur, heldur leggja af stað til Wittenherg, leggjast þar í kistu og gefa möðkunum feilan doktor til fæðu.“ Að morgni þess 17. fannst her- togunum þeir vera knúðir til að hiðja Lúther að fást ekki lengur við mál þeirra, vegna heilsu hans. Hann sagði við vin sinn Justus Jonas og hirðprestinn Goelius, að Iiann ætti að deyja í Eisleben, þar sem hann væri fæddur. Skömmu fyrir kvöldverð kvart- aði hann um þrautir fyrir brjósti. Heitir bakstrar voru lagðir við hannj og við það hvarf verkurinn svo, að Lúther\fór niður i borð- salinn, sem var á næstu hæð, og snæddi kvöldverð með vinum sínúm. „Það er ekki gaman“, sagði hann, „að vera einn.“ Vjð kvöklverðinn var hann hinn kát- ajsti og ræddi af sínuin venju- Iega krafti og fjöri um margs konar efni. Harin var þó ekki fvrr Lúther riéglir setningarnar á Hallarkirkjudyrnar 31. október 1517. kominn til lierbergja sinna og bú- inn að Ijúka kvöldbæn sinni, en liroll setti að honum á ný. Eftir að liann liafði verið vafinn í lieit- um hökstrum og hafði fengið meðal, sem Albert hertogi kom sjálfur með til lians, lagðist hann fvrir um niuleytið, á leðurlegu- bekk og svaf vært í liálfa aðra klukkustund. Þá vaknaði hann, reis á fætur og sagði um leið: „í þínar hendur fel ég anda minn, þú hefir frelsað mig, Drottinn, þú trúfasti Guð.“ Því næst fór hann til svefnherbergis síns og lagðisf fyrir. Þar sofnaði hann aftur. Klukkan eitt um nóttina vaknaði hann, kallaði á þjón sinn og bað hann að ylja svolítið rúm- ið, sem þegar var húið að hita Þvi næst sagði hann við Jonas „ö, Drottinn rninn og Guð, en hve mér er illt. Ó, ég veit, að ég á að verða eftir liér í Eisleben, þar sem ég er fædclur og skírður." Hann reis á fætur, þrátt fyrir þjáningarnar, og gekk hjálpar- laust fram í herbergið, sem fyrr getur, og fól sál sína á ný Guði. Er hann liafði gengið fram og aft- ur um herbergið lagðist hann á ný á legubekkinn og kvartaði um kvalir í brjóstinu. Synir hans tveir voru hjá honum og auk þeirra þjónn hans og Jonas. Coe- lius flýtti sér einnigj til hans. Aulc þeirra var prestur bæjarins þarna ásamt konu sinni, tveimur lækn- um, Albert hertoga og hertoga- frúnni, sem hjúkraði sjúklingn- um eins og liún bezt gat. Seinna kom hertoginn af Schwarzburg ásamt konu sinni, en þau voru í heimsókn hjá hertoganum. All- ar hjúkrunartilraunir, nudd og bakstrar megnuðu ekkert að draga úr þrautum og lirolli Lúth- ers. Sviti braust út um hann all- an og létti vinum hans við það. Héldu þeir, að kast þetta mundi nú líða hjá, en hann sagði að- eins: „Þetta er hinn kaldi sviti dauðans. Eg mun andast.“ Því næst tók hann hástöfum að þakka Guði: „Ó, himneski faðir minn, Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, þú Guð allrar huggunar. Ég þakka þér, að þú hefir opin- herað mér elskaðan son þinn, Jesúm Krist, sem ég trúi á, sem ég hefi boðað og játað, elskað og lofað, sem hinn illi páfi og allir óguðlegir smána, ofsækja og last- mæla. Ég bið þig, elskaði Drott- i \

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.