Bjarmi - 22.08.1950, Síða 2
2
B J A R M I
Fyrsta kristilega stúdentamótið, sem haldiö er á íslandi, tókst mjög vel. Þátttakend-
ur voru um 230, frá öllum Norðurlöndunum. Aðsókn að almennu samkomunum var
ágæt. Gjafir til mótsins fóru langt fram úr áætlun og komu t.d. 10,300,oo krónur
í samskot á siðustu almennu samkomu mótsins. Skýr, alvarlegur og hvetjandi
boðskapur einkenndi mótið.
Því nær sem dró norræna
kristilega stúdentamótinu á
Biblíulegum grundvelli, því meir
óx eftirvænting þeirra, sem að
því unnu, svo og þeirra, sem höfðu
bundið vonir við þennan óvenju-
lega atburð. Ætlunin var, að mót-
ið hæfist miðvikudaginn 26. júlí
kl. 8,15 e. h„ og átti að setja það
1 hátíðarsal Háskóla íslands.
Fyrrihluta þess dags varð þó aug
ljóst, að svo gæti ekki orðið, þvi
að skeyti barst frá skipi því, sem
170 þátttakenda voru með og var
þar tilkynnt, aö vegna veðurs
mundi skipið ekki geta komið til
Reykjavíkur fyrr en um miðnætti
þann dag. Var setningarathöfn
því frestað til kl. 10 f. h. á fimmtu-
dagsmorgun.
Brand V, skipið, sem frá var
sagt í síðasta tbl. Bjarma, kom á
ytri höfnina í Reykjavík um 11
leytið um kvöldið og lagði að
bryggju rúmlega eitt um nóttina.
Á fimmtudagsmorgun var á-
gætis veður í Reykjavík. Sólin
sendi geisla sína yfir bæinn, en
við og við dró þó smáský fyrir sól,
örlitla stund. Klukkan 10 f. h.
komu um 200 stúdentar gangandi
í fylkingu frá Dómkirkjunni og
til Háskóla íslands. Auk þátttak-
enda mótsins voru þar mættir
ýmsir gestir, svo sem utanríkis-
málaráðherra, biskup íslands,
sendiherra Norðmanna, rektor
Háskólans o„ fl. Síra Jóhann S.
Hlíðar, stjórnandi mótsins, á-
varpaði gesti og þátttakendur. Að
ræöu hans lokinni talaði Ragn-
vald Indrebö, Björgvinarbiskup,
um Norðurlönd og fagnaðar-
erindið. Var það glöggt og grein-
argott erindi.
Dr. O. Hallesby og síra Sverre Magels-
sen, framkv.stj. norska kristilega stúd-
entafélagsins.
Að setningarathöfn lokinni
héldu þátttakendur mótsins til
húss K.F.U.M. og K,, en þar áttu
fundir og samkomur mótsins að
fara fram, aðrar en kvöldsam-
komurnar. Eins og gefur að skilja
eru engin tök á því í stuttri grein
að geta hverrar samkomu svo, að
nokkru nemi. Þennan fyrsta
morgun hafði G. A. Danell, dós-
ent frá Uppsölum, Biblíulestur
um efnið „Hinn náttúrlegi mað-
ur“. Kl. 4 sama dag talaöi Dr.
O. Hallesby um efnið „Hold og
Andi“. Er engum gert rangt til
þótt sagt sé, að hann sé vafalaust
kunnastur þeirra, sem þátt tóku
1 mótinu, bæöi sem kirkjuleiðtogi
og ræðumaður.
Á föstudag hafði Danell dósent
áframhald af Biblíulestri sínum,
og var efni hans í það sinn endur-
fæðingin., Að þeim Biblíulestri
loknum var þátttakendum skipt í
7 samtalsflokka, er héldu sam-
talsfundi, hver í sínum sal. Síðari
hluta dags var kristniboðssam-
koma. Ólafur Ólafsson, kristni-
boði, hafði erindi, sem nefndist
„Opnaðar og lokaðar dyr“.
Á laugardag var þriðji Biblíu-
lesturinn úr 3. kap. Jóhannesar-
guðspjalls. Dr„ Martti Simojoki,
frá Finnlandi, annaðist hann, Var
efnið að því sinni „Þroskun trú-
arinnar“. Kl. 4 e. h. talaði Indre-
bö Björgvinarbiskup um „Tak-
mörk skynseminnar — möguleik-
ar trúarinnar". Að erindi hans
loknu voru smáflokkafundir, með
sama fyrirkomulagi og morgun-
inn áður.
Almennar samkomur.
Á hverju kvöldi mótsdaganna
voru haldnar almennar samkom-
ur í Dómkirkjunni,, Fyrsta kvöld-
ið talaði Dr. med Langvad frá
Danmörku, og var yfirskrift
kvöldsins „Eitt er nauðsynlegt“.
Annað kvöldið talaði Dr. theol.
Simojoki um „Ég trúi á Jesúm
Krist“, og þriöja kvöldið talaði
Danell, dósent, um efnið „Það er
fullkomnað“. Samkomurnar voru
öll kvöldin ákaflega vel sóttar.
Var kirkjan alsetin, og auk þess
stóðu margir. Er samkomunum
var lokið, var gengið út úr kirkj -
unni, en handan götunnar fyrir
aðaldyrum kirkjunnar hafði fán-
um Norðurlanda þjóöanna sex
verið komið fyrir., Var staðið í
hóp umhverfis þá og sungið með-
an þeir voru dregnir niður, hægt
og hátíðlega. Að því loknu var
aftur gengið til kirkju, og að
þessu sinni til þess að hafa bæna-
stund.
— 'Jrá útiAatnkctnubbi á fanarkcli. —
Hluti af mannfjöldanum, sem þátt tók í samkomunni.
Stúdentarnir, sem þátt tóku í mótinu.
Sunnudagurinn var meö sér-
stökum blæ. Kl. 8 um morgun-
inn var altarisganga í Dómkirkj-
unni. Síra Bjarni Jónsson, vígslu-
biskup, hélt skriftaræðu og þjón-
aði fyrir altari, en honum til að-
stoðar við útdeilingu brauðsins
var síra Jóhann S. Hlíðar, stjórn-
andi mótsins. Alta^risgestir munu
hafa verið rúmlega 230„
Kl. 11 þennan sama dag pré-
dikaði Indrebö biskup við guðs-
þjónustu í Hallgrímskirkju. Síra
Jón Árni Sigurðsson, prestur í
Grindavík, þjónaði fyrir altari. Kl.
2 var guðsþjónusta í Dómkirkj-
unni og prédikaði prófessor O.
Hallesby þar, en síra Bjarni Jóns-
son þjónaði fyrir altari. Guðs-
þjónustan var ákaflega fjölsótt.
Var henni þó útvarpað.,
Kl. 4,30 var útisamkoma á Arn-
arhólstúni. Þar töluðu þeir síra
Friðrik Friðriksson og prófessor
Hallesby. Veður var ágætt meðan
á samkomunni stóö og margt á-
heyrenda.
Um kvöldið var svo síðasta
samkoma mótsins í Dómkirkj-
unni. Þar talaði dr. med Langvad
um „þitt er ríkið“. Var þaö fjöl-
mennasta kvöldsamkoma móts-
ins„ Er komið var inn í kirkjuna
aftur, eftir að Norðurlandafán-
arnir höfðu veriö dregnir niður,
var orðið gefið frjálst til vitnis-
burðar. Notuðu margir stúdent-
anna sér það, og hefðu ugglaust
gert það fleiri, en samkomunni
var slitið kl. um 11.
Ýmislegt.
Skráðir þátttakendur mótsins
munu hafa verið nálægt 230.
Höfðu þeir sameiginlegt mötu-
neyti, og var matazt í barnaskóla
Austurbæjar. Sem dæmi um, hve
vel vinir og velunnarar kristilega
starfsins brugðust við tilmælum
um fjárstyrk til mótsins, má geta
þess, að frá einstaklingum bárust
gjafir samtals um 45 þúsund
krónur. Auk þess veitti kirkjuráð
6000 króna styrk til mótsins og
ríkisstjórn bauð erlendum þátt-
takendum til Gullfoss og Geysis
mánudaginn 31„ júlí. í þeirri ferð
tóku einnig íslendingar þátt, og
voru þátttakendur alls um 270.
Var í heimleiðinni ekiö um Þing-
velli, og miðdagsverður snæddur
í Valhöll. Komið var til Reykja-
víkur klukkan tæplega 12 um
kvöldið. Fóru erlendu þátttak-
endurnir beint um borð 1 skip
það, er flutt hafði þá flesta hing-
að til lands og lét það úr höfn kl.
1 um nóttina.
Eftir kvöldsamkomurnar í Dóm-
kirkjunni skiptust hinir erlendu
þátttakendur í smáhópa, til kaffi-
drykkju á ýmsum heimilum, er
boðizt höfðu til að veita þeim
beina að degi loknum, og veita
þeim þannig nánari kynni en ella
hefði orðið.
Þaö er samróma álit, að mót
þetta hafi tekizt með ágætum og
er það von og bæn margra, að það
hafi orðið til varanlegrar bless-
unar og áhrifa meðal vor.