Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1957, Blaðsíða 4

Bjarmi - 01.10.1957, Blaðsíða 4
4 BJARMI í íslenzkum jeppa. Koniin til Konsó! Já, það er ein- kennilegt, en þó ekki eins einkenni- legt og ég liélt. Við lögðum af stað frá Addis á þriðjudaginn var, um kl. 11 f. h. Ferðinni var að sjálf- sögðu heitið suður á bóginn — til Konsó! Það var sannarlega ein- kennilegt að vera komin af stað til Konsó. Gat það átt sér stað? Vinirnir í Addis höfðu kvatt okk- ur og óskað okkur allra lieilla á ferðalaginu og í starfinu og heð- ið Guð að blessa okkur. Það var líka gott að geta lagt af stað í Jesú nafni og í trausti til bans. Islenzki jeppinn þaut eftir vegin- um á um það bil 60 km hraða, enda vegurinn alveg ágætur. Landslagið var líka mjög fallegt, fjöll og vinalegar hæðir og ásar, akrar og engi einkenndu landslag- ið, og liringlaga strákofar féllu vel við umhverfið. Víða voru menn að herfa akra sína, og fyrir plógn- um gcngu tveir uxar. Við þutum áfram suður á bóginn, og alltaf varð hitinn meiri, eftir því sem sunnar dró. Þegar við vorum húin að aka um 250 km, komum við að brú, sem hafði nýlega brotnað niður. Fyrir bragðið urðum við að taka á okkur allstóran krók, kringum stórt og mikið vatn, sem heitir Awasa. Við þetla vatn dvelja kristniboðarnir oft í leyfi sínu, því að þarna er mjög fagurt og lítil mannabyggð. Við vorum um tvær stundir að aka umhverfis vatnið. A meðan skall myrkrið á, og oft munaði litlu, að við færum villu- götur. Við hittum marga innfædda menn og einu sinni ókum við fram á allstóran hóp innfæddra karl- manna, sem allir báru spjót i hendi og voru æði vígamannlegir, — en við komumst nú klakklaust frá þeim. Við komum aftur upp á þjóðveginn örstutt frá brúnni, en auðvitað liinum megin við hana. Kom okkur öllum saman um, að eftir þetta mundum við kunna að meta brýrnar mikið betur. Klukk- an var rúmlega 7% og enn áttum við eftir að aka á annað liundrað kílómetra, áður en við kæmumst til Dilla, en þar ætluðum við að gista. Þangað komumst við um 10-leytið, Margt af kristniboðun- um var komið í liáttinn, en allir komu þeir á fætur til þess að taka á móti ferðalöngunum. Okkur var gefið að borða, og við fenguin að lífsögun, í stað þess — að því er hann segir sjálfur — að hægt er að hegða sér eins og hver vill í kirkjunni, án þess að nokkur skipti sér af þvi. (Kristel. Dagbk). HRl^TNIB0n«l>ÆTTlR Margrét Hróbjartsdóttlr skrifar frá Konsó: ,,Það var hrífandi að sjá þetta“ þvo af okkur mesta rykið — og svo var gott að komast í háttinn. Rétt fyrir klukkan 11 daginn eftir héldum við af stað upp erfiðasta hjalla leiðarinnar, þ. e. til Agre Mariam. Á rigningartímum er þessi leið alveg óttaleg. Bílarnir verða að brjótast áfram gegnum aur og leðju fet fyrir fet. Og nú var rigningartími, en þó hafði ekki rignt nema sáralítið um alllangan tíma. Jarðvegurinn var því skrauf- þurr og moldin eins hörð og steinn. Vatnið sígur ótrúlega fljótt niður, eða þá að sólin þurrkar það upp. Við komumst því furðu fljótt yfir, miðað við það, sem aðstæður leyfa. Það er auðvitað ekki unnt að kalla þetta veg, heldur með afbrigðum óslétta troðninga. Við ókum um mörg þorp, og ef við stönzuðum, safnaðist heill skari af forvitnu fólki umhverfis okkur. Kl. rúm- lega 5 ókum við upp að slöðinni í Agre Mariam. Þar eru ein kristni- boðahjón og þrjár einhleypar kon- ur, sem eru hjúkrunarkonur og kennslukonur. Þarna var líka tekið mjög vel á móti okkur. Agre Mari- am stendur hæst uppi á fjallstindi og er útsýni þaðan fagurt. Um 7- leylið liéldum við aftur af stað, og var ferðinni nú heitið til Ja- velló. Myrkrið var að skella á, og áður en varði var orðið koldimmt. Villidýrin fóru að tínast fram úr fylgsnum sínum. Þau fyrstu, sem við sáum, voru þrjár gazellur og stór og gullfallegur tarfur með stór og mikil liorn. Við vorum alltaf að vona, að við rækjumst á ljón, en svo lieppin urðum við ekki. Hýenur sáum við. Við kom- um til Javelló kl. nálega 11 Va- Þar urðum við að vekja upp. IIús- ráðendur voru með afhrigðum vin- gjarnlegir og gestrisnir. Mikill og göður matur var framreiddur, og góð rúm uppbúin lil þess að leggj- ast i, enda vorum við orðin hvíld- arþurfi. Á leiðarenda. Um klukkan 10 næsta dag var lagt af stað í síðasta ál'angann. Leiðin lá nú niður i móti, alltaf lengra og lengra niður, þar til hit- inn var orðinn óþolandi. Þegar við komum inn fyrir takmörk Konsó, fórum við aftur að aka upp í móti, hærra og hærra upp í fjöllin. Kom- in til Ivonsó! Ég gat ekki tára bundizt. Landslagið var stórbrotið og fallegt fjallalandslag. Fyrstu Konsómenn, sem við sáum, voru lítill, allsnakinn snáði, sem rak geitahóp sinn, og kona, scm var hrædd og feimin og flýlti sér inn i runnana. Við ókum um eina klukkustund um Konsóland, áður in við komum til stöðvarinnar. Og þarna glitti á glansandi þak — og þarna kom annað í ljós, enn stærra. Islenzka kristniboðsstöðin! Ingunn var i sjúkraskýlinu við vinnu sína, og þegar hún sá, að við vórum komin, kom hún hlaup- andi og Ijómandi í framán á móti okkur. Það urðu fagnaðarfundir. Það leið ekki á löngu, að fólkið færi að streyma að til þess að heilsa okkur og hjóða okkur vel- komin. Þegar við vorum nýkomin út úr hílnum og stóðum fyrir ut- an liann og lieilsuðum skóladrengj- um og Ingunni, lcomu einnig tvær Konsókonur í skinnpilsum með skinnhúfur á höfði og „ilmandi“ af þráu smjöri. Er við stóðum þarna, kom stóreflis fluga fljúg- andi í áttina til okkar, suðandi og syngjandi. Mér varð ekkert um sel og færði mig undan og licfi víst verið hræðslan uppmáluð, en það var nóg lil þess, að Konsó- konunum var konunglega skemmt, svo að þær skellihlógu. Eg hló auð- vitað með, til þess að láta hera minna á hræðslunni. Síðan erum við búin að heilsa upp á marga Konsómenn og konur og fjöldan allan af börnum. Við erum m. a. búin að hitta Barsja, töframann- inn fyrrverandi. Það er undarlegt að horfa á þetla andlit, sem einu sinni var altekið ótta og angist og á valdi Satans, cn sem lýsir nú innri friði og gleði. Nú er það eins bjart og það var áður liart og drungalegt. Þannig hafa fleiri breytzt í Konsó. Við guðsþjónustur. Á sunnudaginn var guðsþjón- usta hér kl. 10 árd. Fjöldinn all- ur af fólki kom. Það var ákaflega lirífandi að sjá þettta' fólk koma saman til þess að lofa og vegsama hinn eina sanna Guð. Áður lifði það hvern dag í sífelldum ótta við Satan. Það fórnaði lionum öllum sínum eigum og jafnvel hörnum sínum líka, en nú hefir það yfir- gefið Satan. Það er ekki lengur hrætt við hann. Nú vill það trúa á Jesúm Krist, og liann hefir fyllt lijörtu þess ljósi og friði. Benedikt ávarpaði fólkið nokkrum orðum og heilsaði því. Felix þjaldi á am- harísku og prédikarinn því næst á gallinjamál. Nokkrir Konsómenn stóðu upp og vitnuðu. Vitnisburð- irnir hljómuðu eilthvað á þessa leið: „Áður þjónaði ég og lilbað Satan og fórnaði öllu til hans, þar lil ég álti ekkert eftir. Heilsu mína tólc hanri lika, hann píndi mig og kvaldi. Svo komuð þið og sögðuð okkur frá Jesú Kristi, og ég sagði skiljð við Satan og tók á móti Jesú. Síðan líður mér vel. Jesús hefir rekið óttann burt og gefið mér í staðinn gleði og frið.“ Það var hrífandi, að hevra þessa einföldu en lifandi vitnisburði. Þekking þeirra cr ekki mikil, en trú þeirra er einlæg og sterk. Það kenuir að því, að þeir verða að fá upp- fræðslu í Guðs orði. Öðru vísi öðl- ast þeir ekki andlegan þroska og varðveitast ekki í trúnni. Þeir þurfa mikillar fyrirbænir við. Heiðnin er svo sterk og freisting- arnar miklar. Guði sé lof, að Jesús er sterkastur, hann hefir sigrað og mun sigra. Biðjið, að hann mcgi ávallt sigra í líl’i þessa fólks. Börn og sjúkir. Á laugardagseftirmiðdag var barnasamkoma liérna, sem Inga er vön að hafa. Þú hefðir áll að sjá þessa svörlu snáða, sumir allsnakt- Norska hjúkrunarkonar,, sem aðstoðaúi Ingunni Gísladóttur um tíma, tók þessa mynd, þar sem Ingunn er að festa plástur á brjóst konu nokkurrar. ígerð var I því og varð Ingunn að skera mikið í það.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.