Bjarmi - 01.07.2002, Side 7
og sami hluturinn. Þessari hugsun vex
fylgi. Kofi Annan, aðalritari SÞ, minnt-
ist á þaó í ræóu sinni f desember að
hugmyndir manna um að trú þeirra sé
ótvírætt í andstöóu við trú annarra sé
bæði hættuleg og röng. Þetta er kjarni
vandans — tvenns konar trúarbrögð —
islam og kristindómurinn sem hvor
tveggja telja sig búa yfir sannleikan-
um. Krafa islams um að eiga sannleik-
ann veróur ekki samþykkt af kristin-
dómnum — og öfugt - hér veróa menn
að velja.
2) Sá sem er kristinn hlýtur að keppa eft-
ir friói vió alla menn — en þó ekki hvað
sem það kostar. Þekktur trúarbragóa-
fræðingur í Englandi varaói við því fyr-
ir nokkrum árum að stærstu trúar-
brögð heims stæðu nú andspænis hver
öóru á nýjan hátt og aó það myndi
leióa til blóóugra átaka ef menn sam-
einuðust ekki í nýrri alheimstrú. I fýrra
atrióinu hafði hann á réttu að standa.
Atök á forsendum trúarbragóa hafa
aukist og enginn þarf aó vera spámað-
ur til að sjá afleiðingar þess — sem
meðal annars birtist í því að kristnir
píslarvottar hafa aldrei verið fleiri en
síðustu ár. Margt fólk á Vesturlöndum
er tilbúió að kaupa sér frið og fórna
Israel. En er á Ifður verður kaupverðió
hátt og frióurinn skammvinnur.
3) Við megum aldrei gleyma því að
múslimar eru fólk sem Jesús elskar og
dó til þess aó frelsa. Barátta okkar er
ekki við hold og blóó — manneskjur —
heldur við andaverur vonskunnar í
himingeimnum. Þess vegna þurfum viö
aó íklæðast hertygjum Guós sem m.a.
er aó vera skóuó fúsleik til að boóa ná-
unganum fagnaóarerindió, hvort sem
hann er að nafninu til kristinn eóa
múslimi.
Vió megum ekki einfalda hlutina um of.
Ekki eru allir kristnir í kringum okkur og
ekki eru allir múslimar hryóuverkamenn.
Margir múslimar eru komnir til Vesturlanda
á flótta frá múslímskum ríkjum þar sem
spilling og ógnarstjórn ríkir. Jesús vill að við
tökum vel á móti þeim. Við skulum vona að
þeir sjái hjá okkur líf og trú sem þeir fá
löngun til að eignast. Við getum mætt and-
stöóu, ekki aðeins frá múslimum heldur
einnig Vesturlandabúum sem hafa yfirgefið
grundvöll kristindómsins. Kristinn Arabi
sagði eitt sinn við mig orð sem ég gleymi
ekki: „Islam væri kannski ekki til í dag ef
kirkjan á tímum Múhameðs hefói verið lif-
andi kristniboðskirkja.“ Lifandi kirkja og
kristindómur sem boðar og mótar um-
Séó yfir Betlehem ofan úr fæðingarkirkjunni.
hverfi sitt þarf ekkert aó óttast. Sigurinn er
ekki háóur styrkleika okkar eða andstæó-
inganna. Sigurinn var unninn meó kross-
dauóa og upprisu Jesú. Það sem vió sjáum
núna er lítill hluti af stærri mynd sem við
höfum alltafvitaó aö myndi birtast, mynd
sem segir okkur að Jesús kemur — hann
kemur skjótt. Enn er náðartími sem vió
erum kölluó til aó nota til að boóa öllum
mönnum, nær og fjær, fagnaóarerindið.
7