Bjarmi - 01.07.2002, Page 21
An unga fólksins
er kirkjan bæói
gömul og hrörleg!
Fyrir nokkrum árum kom hingaó til lands
þýskt æskulýðsfélag og tók þátt í tjaldmóti
ÆSKR rétt utan vió Akureyri. Slagoróió á
stuttermabolunum sem þjóóverjarnir
klæddust var harla gott. Á bolunum stóó
eitthvaó á þessa leió: Án okkar verður
kirkjan hrörleg og gömul. Og hversu satt
er þetta ekki? Kirkja sem gerir ekki sitt
allra besta til aó laóa að og þráir aó taka
þátt í lífi unglinga veróur innan fárra ára
oróin hrörleg og gömul.
En hvernig náum við til unglinga í dag?
Hverjir eru möguleikar kirkjunnar á að
verða að hluti af lífi unglingsins? í ferming-
arfræóslunni fær kirkjan undravert tækifæri
til aó ná til yfir 90% íslenskra ungmenna og
virkja þá í starfi hennar. Þetta er óheyrilega
dýrmætt forskot á aóra sem keppa um
tómstundirnar í lífi unglinganna.
Tónlistarskólar, félagsmióstöóvar og
íþróttafélög tækju því eflaust fegins hendi
ef yfir 90% allra unglinga í 8. bekk myndu
vera hjá þeim einu sinni í viku í heilan vetur
°g þar að auki gert að mæta á samveru-
stund að jafnaði tíu sinnum yfir veturinn.
bessi félög myndu gera hvaó sem í þeirra
valdi stæði til aó sannfæra unglinganna um
ágæti eigin starfsemi.
En við hvað gerum við? Við gerum þeim
skylt aó mæta í messu sem er ef til vill langt
ffá þeirra hugmyndum um skemmtun. Þaó
er líka umhugsunarvert af hverju félagsmið-
stöóvarfá ekki organista til að leika á dans-
leikjum hjá sér? Eóa af hverju orgel- og
kóra-tónlist er bara spiluó reglulega á
tveimur af um 13 útvarpsstöðvum á ís-
landi? Getur verið að ungu fólki finnist
önnur tónlist vera skemmtilegri?
í 150. Davíðssálmi stendur: „Lofið Guð í
helgidómi hans“ og að við eigum að lofa
hann með ýmsum hljóðfærum, lúðrum,
hörpum, gígjum, strengleik og bumbum.
Nánast öll hljóðfæri sem þekkt voru á þess-
um tíma eru nefnd og jafnframt er talað
um aó við eigum að lofa hann með gleði-
dansi! Þaó er því mikilvægt að hægt sé að
gleðjast í Guðs húsi, rétt eins og þar á aó
vera hægt að finna grióarstað fýrir íhugun,
sorgarúrlausn og allar aðrar tilfinningar
mannsins.
Guðni Már Haróarson
Við megum og eigum aó nota sem flest
hljóðfæri og dansa gleðidans og koma til
móts við unga fólkið meó sama boðskap-
inn en í búningi sem höfóar til þeirra. Vissu-
lega hafa söfnuðirnir verið að bregðast
sterkt við þessu hin síðari ár en mun betur
má ef duga skal. Það eina sem stoppar okk-
ur í þessu er hugmyndaflugið, þjóðlaga-,
rokk-, afró- og kvikmyndatónlist, Taizé-,
U2-, gospel-, kántrý-, rapp- og djassmessur
og svona mætti lengi telja.
21