Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1998, Page 11

Heima er bezt - 01.11.1998, Page 11
mér og öðrum háseta að fara yfir í Kolbrúnu og hirða allt sem nýtilegt væri og hönd á festi. Við fórum yfir og um skipið, m.a. ofan í káetu. Við gátum litlu sem engu bjarg- að, helst var það eitthvað af hlífðarfotum. Við skárum böndin af grunnnót á bátadekki. Er ég fór síðast út úr stýrishúsi Kolbrúnar, greip ég með mér smá kompás og talstöðina, sem þar var, reif ég úr sambandi og hafði með mér frá borði. Þegar Kolbrún sökk flaut nótin upp og það var eina verðmætið sem bjargaðist. Við vorum suðaustur af Horni er áreksturinn varð, og því fórum við til Hólmavíkur með mannskapinn. Svo voru haldin sjópróf hjá sýslumanninum á Hólma- vík og allt tók þetta umstang okkur heila viku. Sitt af hverju Á þessum tíma, árið 1947, er Hvalfjarðarsíldin svo- nefnda, kom hér , öllum að óvörum og fyllti hinn langa fjörð, stansaði fremur stutt og hvarf svo jafn óvænt og hún kom, var ég á m/b Böðvari frá Akranesi með Ragnari Friðrikssyni og á Svaninum, svona til skiptis, en báða þessa báta átti Haraldur Böðvarsson. Við fórum margar ferðir í Hvalfjörðinn og vorum fljótir að fylla bátana, það er að segja ef við vorum svo heppnir að sleppa við að sprengja nótina eða rífa hana í tætlur. Síldina, er við veiddum, fórum við ýmist með til Reykjavíkur eða lönduðum henni í skip sem sigldi með hana til útlanda. í Reykjavík lönduðum við síldinni við gömlu tré- bryggjurnar á bíla, er óku henni upp í gömlu mulnings- vélargryfjuna norðan við Sjó- mannaskólann. Þar var henni sturtað fram af háu steinbökkun- um, sem komnir voru eftir efnið sem sprengt hafði verið þar, mulið og flutt burt til uppfyllingar í göt- ur og aðra staði er þurfti að fylla upp. Svo mikill landburður var af Hvalfjarðarsíld að fljótt fylltist hið mikla pláss sem þarna var fyrir hendi og það svo, að grúturinn flóði um nágrennið og niður á næstu götur við skólann. 1947 voru ekki stórvirkar síldar- bræðslur hér né geymsluþrær og geymar svo að þarna varð síldin að dúsa með sinni hvimleiðu lykt, uns hennar tími kom í bræðslunni. Auðvitað var þessi lykt kölluð peningalykt, sem hún og sannar- lega var, fyrir alla, sem að henni komu. Það má með sanni segja að hér mokuðum við upp síld og peningum. Á þessum tíma, var maður á léttasta skeiði, fullur bjart- sýni, búinn að stofna heimili og var því bæði með opin augu og eyru fyrir öllu, sem gæti létt manni lífsbaráttuna og brauðstritið og gefið manni færi á að lengja viðdvöl á heimilinu, en stytt fjarverustundirnar. Já, maður leit í kringum sig og skoðaði málin. Eg hafði í laumi, átt mér draum um að eignast vörubíl, sem maður gæti komist með í vegavinnu á sumrin. Hér var á þessum árum, ljón á vegi. Það þurfti nefnilega leyfi einhverrar nefndar hjá hinu opinbera, til að kaupa slíkt verkfæri. Auðvitað var sú nefnd, er hér átti hlut að máli, ekki frekar en aðrar slíkar, opinberar nefndir þess tíma, aðgengilegar almenningi, nei síður en svo. Hvað var nú til ráða. Jú, eitt sinn er verið var að landa úr báti okkar, niður á tré- bryggju, sá ég smugu til að skjótast smástund frá. Auð- vitað var maður í slorgallanum og glitrandi eins og sjálft silfur hafsins. En hvað um það, ég var Strandamaður og það vildi svo til að þingmaður okkar Strandamanna, Her- mann Jónasson, bjó ekki langt frá. Eg sá ekki að það yrði neinum til óþæginda þótt ég hyrfi smástund. Ekki orð um það meira að sinni, drífa sig bara af stað. Oðar en varði stóð ég við glansandi hurðina hjá heið- urshjónunum Hermanni Jónassyni og frú. Eg geri tilraun til þess að finna einhvers staðar svo stóran og hreinan blett á galla mínum að ég geti þurrkað hreistrið af gómi löngutangar hægri handar, að ég geti ýtt lauslega á gljá- fægðan dyrabjölluhnappinn án þess að ata hann út. Ég ýti og heyri gling, gló, hurðin opnast og þingmannsfrúin býður góðan dag. Ég geri slíkt hið sama og spyr hvort Hermann sé við og hvort hann gæti eytt nokkrum orðum Heima er bezt 407

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.