Heima er bezt - 01.11.1998, Qupperneq 30
hestar hafa bjargað. En eitt vitum
við, að fjöldi manna hafa í vondu
veðri, villst af réttri leið og orðið úti,
ýmist vegna kulda og vosbúðar eða
hrapað til dauða.
Kjarkur Krumma var með ein-
dæmum. I einni póstferð á leið norð-
ur, varð póstlestin að fara nokkuð
vestar en venjulega og lendir þar í
dalverpi á leiðinni að Arngerðareyri.
Fyrir nokkrum dögum höfðu gengið
blotar, svo allar ár og lækir runnu í
vexti, fram milli skara. Jóhannes rak
pósthestana, en Krummi var sem
venjulega á undan. Hann stansar
þegar hann kemur að ánni, sem rann
uppbólgin milli skara. Jóhannes taldi
ána ófæra með öllu og var ánægður
þegar Krummi stansaði. En það var
ekki lengi. Krummi sneri niður með
ánni, og spottakorni neðar skellti
hann sér út í með krapið hátt á síður.
Allir hestarnir fylgdu á eftir og síð-
ast Jóhannes, sem var ríðandi. En
svo djúpt var þarna að Jóhannes
klofblotnaði og þar sem frost var
mikið, varð hann sem stokkur og
komst ekki af baki fyrr en honum
var til þess hjálpað á Arngerðareyri.
Stundum kom það fyrir að Jóhann-
es kom að á, sem ekki var árennileg
en sýndist hún fær. Þá var stundum
ekki hægt að koma Krumma út í.
Hann var alveg viss um hvað var
fært og hvað ekki.
Við getum líka tekið forustusauði,
sem fyrr á árum voru allvíða til, á
meðan búfé var beitt. Ósjaldan
björguðu þessi forustusauðir fénu
öllu í hús.
Þeir, sem áttu góða hunda, gátu
sent þá til að leita kinda ef vantaði,
þegar inn var látið, og þá oftast kom-
ið myrkur. Hundurinn fann það sem
vantaði, þó maðurinn gæti það ekki.
Samjöfnuður milli hests, hunds og
sauðs annars vegar og mannsins hins
vegar, er manninum yfirleitt ekki
hagstæður. Stundum er sagt að dýrin
séu skynlaus. Þetta er rangt. Þau vita
í fleiri tilfellum meira og betur en
maðurinn og hafa bjargað mörgum
manninum úr yfirvofandi háska.
$3®
Kötturinn Grettir og hundurinn Lappi, sem oftast eru hestu vinir, en að
þessu sinni hafa þeir orðið eitthvað ósammála.
MYNDBROT
Ljósmyndir:
Þórunn Arna-
dóttir,
(amma Aðal-
bjargar),
Seli, Grímsnesi.
Aðalbjörg
Skúladóttir, 3ja
ára. tilbúin að
þeysa eitthvað
lit i heiminn, en
Móra er eitt-
hvað að hugsa
sig um, varð-
andi hvert
halda skuli.
Þessi kind var
ótrúlega þolin-
móð við krakk-
ana, og oft sett-
ust þau á bak
henni.
Myndin er tekin
1994.
•£;"j
426 Heima er bezt