Æskan - 01.09.1974, Page 29
Ferðin til sólarinnar
Kínverskt ævintýri
r yrir langa löngu vlssi Chuang fólklð að það værl
* sól á himninum, að hún risi í austri og að engin
vera á jörðinni gæti lifað án hennar. En á þessum tíma
fengu Chuangarnir ekkert sólarljós.
Á þeim dögum var staðurinn sem þeir bjuggu á um-
vafinn algeru myrkri jafnt nótt sem dag og gjörsneyddur
sól og hita. Þar var fjöldi villidýra — tigrisdýra, hlébarða,
úlfa og annarra óargardýra — sem gerðu þeim mikinn
usla. Hvemig gátu þau drepið dýrin í öðru eins myrkri?
Svo það var ákveðið að senda fólk til sólarinnar til að
biðja um aðstoð.
Mikii ólga varð meðal fólksins þegar það frétti þetta.
Allir hrópuðu upp og heimtuðu að fara.
Sextugur maður tók sig út úr hópnum:
..Ég skal fara. Ég er að eldast. Ég get ekki unnlð á
ökrunum. En ég get farið I þessa ferð. Ég get gengið."
Sterkbyggður maður á bezta aldri brauzt í gegnum
þvöguna:
..Þú getur ekki farið," sagði hann við gamla manninn.
..Ég er sterkur, og af þvi að ég get gengið 160 li á dag
kemst ég fyrr til sólarinnar."
Fleira hraust ungt fólk fyigdl fast á hæia honum og
allir sögðust vera rétti maðurinn fyrir ferðalagið og lof-
uðu að fara fram og til baka á eins skömmum tíma og
unnt væri.
Þegar þarna var komið sögu, hóf tíu ára drengur upp
raust sína:
..Ég held að ekkert ykkar sé hæft til fararinnar. Þið
virðist öll gleyma að sólin er langt, langt [ burtu frá
okkur. Það er ekki hægt að ná henni á fjörutíu eða
fimrntiu árum. Það tekur örugglega níutíu ár að komast
þ^ngað. Ég er ungur. Það llggur í augum uppl að ég er
rétti maðurinn til að fara í þessa ferð.“
Hann hafði vart lokið máli sínu þegar urðu heitar
omræður.
..Það er margt til [ því, sem hann seglr."
..Hann er sterkur og heilbrigður."
-Við skulum senda hann.“
-Hann er vel greindur."
Tvftug, ófrísk kona, sem hét Maleh bað um orðlð. Hún
veifaði höndunum fyrir ofan höfuðið og hrópaðl:
-Þegið þið öll sarnanl"
Allir þögnuðu.
Hún hélt áfram máll slnu:
-Drengurinn hafði rétt fyrlr sér þegar hann sagðl að
sólin sé langt frá okkur. Ég hugsa að það sé ekki einu
sinni hægt að komast þangað á níutíu árum. Látið mig
fara. í fyrsta lagl er ég sterk og hvorki há fjöll né ó-
argadýr draga úr mér kjarkinn. Auk þess er ég með
barni. Ef ég næ ekki takmarkinu mun barnið mitt gera
það.“
Allir sýndu samþykki sitt við þessi orð. Þannig var
það ákveðið að Maleh færi til sólarinnar og kveikti bál
til merkis þegar hún væri komin á leiðarenda.
Hún lagði af stað [ austurátt. Eftir átta mánuði eða
þar um bil fæddi hún fagurt barn. Hún tók barn sitt með
sér. Hún gekk og gekk þar til á sjötugasta ári, að hún
var of örmagna tll að dragnast lengra áfram. Hún settist
að hjá bændafólki og sagði barnl sfnu að halda áfram.
Á þessum sjötíu árum höfðu móðir og barn klifið tug-
þúsundir hárra fjalla, vaðié tugþúsundir stórfljóta og
rekizt á tugþúsundir eiturslangna og villidýra. Þau höfðu
reynt alls kyns þrautir og erfiðleika, og höfðu jafnvel oft
hætt lífi sínu. En þau höfðu samt slopplð heil á húfi. Þau
voru bæði nógu sterk til að klífa fjöllin og nógu snjöll
til að sleppa frá nöðrunum og villidýrunum.
Á leiðinni höfðu Maleh og barn hennar hitt fjölda fólks,
sem vildi ólmt hjálpa þeim, þegar það fréttl að þau
voru að fara til sólarinnar. Fólkið sýndi þeim leiðir yfir
fjöllin, ferjaði þau yfir árnar, gaf þeim föt og skó og
gerði mat fyrir þau.
En hvað með fólkið heima?
Árla á hverjum morgni eftir brottför Maleh litu þau
áköf til austurs til að sjá hvort eldmerkið brynnl á himn-
inum. Árin liðu hvert af öðru. Nú voru sjötíu ár síðan
Maleh lagði af stað og engin merkl um eldinn, sem
þau höfðu vonað að hún myndi tendra. Allt gekk Binn
vanagang. Engin sói, engin hlýja, og alls staðar voru
tfgrisdýr, hlébarðar og úlfar á veiðum. Aliir héldu að
Maleh hefði dáið á leiðinnl. Allir hættu að vona.
Á síðasta degi nltugasta og níunda árslns 6áu hinlr
vonlitiu verðir mikinn eld brenna á austurhlmninum og
lita hann blóðrauðan. Næstum samstundis reis gióandi
sól og varpaði guilnum geislum sínum yfir landið. Tígris-
dýrin, hlébarðarnir og úlfarnlr, sem höfðu áreitt Chuang
fólkið frá ómunatíð, þurrkuðust út.
Allt frá þelm degi hafa Chuang bændurnir farið tll
starfa á ökrunum við sólarupprás og ekki komið heim
fyrr en um sólsetur. Þetta gera þelr til að heiðra Maleh
og son hennar, sem féngu sólina tll að sklna.
27