Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1906, Page 5

Æskan - 01.11.1906, Page 5
Æ S K A N 13 Huliðsheimar, kvæðabálkur, saga í ljóðum. Norska skáldið Arni Garborg orti, Bjarni Jónsson frá Vogi þýddi. Frumritið er snildarverk, þýðingin fyrirtak. Allur frágangur góður. — Unglingar, sem lesið liafa þjóðsögurnar, munu talsvert vel geta skilið þetta af- hragðs kvæði. Oliver Twist, skáldsaga eftir Dickens, þýtt heíir Páll E. Olason. Þessarar ágætu sögu var minnst hér í blaðinu áður en hún var komin út á íslenzku, og lofað að geta um þýðinguna, þá er útkomin væri. Er þýðingin góð og hókin hin eigulegasta.— Sagan segir frá fátækum dreng sem ratar í margar raunir og verður fyrir miklum freistingum, og tálsnör- um vondra manna, en fær horgið sak- leysi sínu og kemst á endanum til vegs og virðingar. — Æskan mælir með hókinni hið bezta. — * ★ * Það er gleðilegl, að svo margar á- gælar bækur hafa nú komið út, (sjá bókafregnina í fyrri blöðum Æskunnar), en sorglegt er líka hitt að margir hafa verið gintir til þess að kaupa og lesa ómerkilegar reyfarasögur, sem að eins spilla máli og hugsunarhreinleik les- endanna. Það er óttalegur leyndar- dómur, sem enginn skilur í, að nokk- ur skynherandi maður skuli vilja eiga og lesa slíkan hroða. En leyndardóm- ur er það ekki að slikar sögur eru kynlegir þjófar, sem stela peningum og tíma lesendanna, og það sem enn er þyngra, ræna oft og einatt göfugum hugsunum og fögrum tilfmningum, smekkvísi og dómgreind unglinga, er glæpast á þeim. Fr. Fr. (Pýdd úr dönsku). Á höfðingjasetrinu, eins og all- staðar i þelta mund, voru allir önn- um kafnir. 1 eldhúsinu var bakað og brasað, í viðhafnarherberginu skrejdl jólatré. Það voru liðnar nokkrar stund- ir fram yfir miðdag', svo eigi mátti hruðla með timann, þess vegna gætli hver sinna verka, en lét náungann bera umhyggju fyrir sér. Því var það, að enginn hafði gætt að lilla drengnum, sem gægðist inn um gættina á dyrunum, í von um að einhver miskunnsamur sæi sig. Hann beið og beið, en svo margur sem um gekk, þáhöfðu allir nóg með sig og gættu ekki að litla, fallega drengnum, með fjöruga andlitið og götugu fötin. Þarna stóð hann með leirkrukkuna tóma i hendinni, sem nú óefað varð að berast heim lil liinnar fátæku móður í sama ástandi og hún hengdi hann á hand- legg honum um morguninn. Einungis að hann kæmi þó, gamli góði höfðinginn, sem við síðasta prófið

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.