Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1906, Side 6

Æskan - 01.11.1906, Side 6
14 Æ S K A N í skólanum haí'ði klappað á koll hon- um og gefið honum spegilfagran silf- urdal, vegna þess að hann liafði verið sá, sem bezt hafði kunnað — en eng- inn kom. En hvað var þó þetta, sem tindraði fyrir auga lians, þegar hin hurðin opnaðist? Epli og sætabrauð, gull og fánar — nú hvarf það aftur, liurðin lokaðist og hann mátti hverfa frá án þess noklcuð að verða ágengt. Hann fór burt í hryggu skapi, í þessu augnabliki fann hann hve bágt hann átti, við hugsunina að eiga að fara heim í kalt herhergi, þar sem ekkjan og hann áttu að halda jól, en fátæktin dúka borðið. Hér, þar sem svo mikið var til, var ekki ein Iiræða, sem virti hann þess að gæta að hon- um eða láta honum i té eitl vinar- hót. Hann áleit sig vera einan, yfir- gefin og umkomulausan. »Hvað heitir þú ?« Þessi orð með barnsrödd töluð komu honum aftur í samt horf. Það var lílil slúlka, sem stóð í dyrunum, sem vissu út að trjá- göngunum, er lágu við farinn veg. Hún var á að gizka 7 ára, hafði ljóm- andi falleg I>lá augu, sem sendu geisla frá sér af jólagleðinni, sem bjó í hinu lilla hjai'ta hennar, rjóðar kinnar og glóbjart hár, sem mundi hafa á þessu augnabliki ljómað sem gull i augum drengsins, ef hann að eins hefði haft hug til að líta á hana. Hún héll á- fram spurningu sinni: »Hvað heitir þú?« Hann hlaut þá að svara og opna munninn. Hans hét hann, sonur Kristínar, sem hjó í nýlendunni fyrir vestan bæinn. »Yið eigum að hafa jólatré, stórt jólatré með gullstjörnu uppi í toppn- um. Föðursystir mín kemur og báð- ar frænkurnar«, hrópaði barnið af gleði. Hann gat ímyndað sér þetta en lalaði ekki um það. Hann var enn þá ekki orðinn svo mikill heimspek- ingur að hann i einu hendingskasti gæti samfagnað henni. Það var eigi meira en svo, að hann gæti varist gráti i þessu augnabliki. Litla stúlkan hafði það vist á til- finningunni að það væri ekki alls- kostar eins og það ætti að vera með drenginn, þvi hún hugsaði sig oi'ur- litið um og spurði síðan: »Áttu þá ekki líka að hafa jólatré heima hjá móður þinni í nýlendunni?« Nú þoldi drengurinn ekki lengur mátið en fór að háskæla, sneri sér við og fór með tómt ílátið ofan eftir trjá- göngunum, en þurkaði tárin af aug- um sér við og við með treyjuerminni. Litla stúlkan stóð forviða og þegj- andi þangað lil hún segir: »Aíi minn gelur þér óefað jólatré, ég skal biðja hann um það, þegar hann kemurheim; núna er hann úli að ríða«. Þetta sagði hún hátt, en drenghnokkinn heyrði ekkert af þessu sem von var. Hún stóð kyr í dyrunum meðan lnin gat eygt drenginn í trjágöngunum, og fyrst þegar að hann sneri út á al- faraveginn, fór hún í brott. Svo þeg- ar lnin stuttu á eftir fór að leika sér

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.