Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1906, Page 8

Æskan - 01.11.1906, Page 8
16 Æ S K A N var það ekki vegna krákanna, sem það hafði verið hengt þarna, hélt hundurinn í sama biii og hann gó af öllum kröftum og gerði svo mikið háreysti sem unt var, en það dugði ekki, krákurnar komu eftir sem áður eftir eigin vild. Hans fór að smákíma að þessari sjón, því í rauninni var hann kátur piltur, sem hafði gamau af því, sem broslegt var — en svo fór svefninn aftur að ásækja hann. Það hljómaði sem vöggusöngur eitthvað fyrir eyrum hans, Það var þá lagið við sálminn: »Eitt barn er fætt í Betlehem«. Þetta hljómaði sem fagur söngur í eyru lion- um frá kirkjunni. Það var sem ein- hver hvíslaði í eyru honum: »Við eig- um að hafa jólatré, stórt jólatré, með gullstjörnu í toppnum og föðursystir mín og írænkurnar —!« Hann sá líka lilla stúlku, og að líkindum hefir það verið hún, sem livíslaði einhverj- um fögrum draum í eyru hans. Hvað dreymdi hann þá? Það var margt og mikið og alt líf og fjör, því endirinn á draumnum varð, að spáin rættist, sem einu sinni hafði verið spáð um hann, og það var gömul kona í grend- inni, sem hafði spáð því um hann, þegar hann við prófið slóð sig svo vel í að útþýða ritningargreinina úr kenslubókinni: »Haun talar sem væri hann bók, og hann endar óefað með því að verða prestur«. — En heyrið þið nú! Endinn á draumnum var, að það hringdi til jólasöngs í kirkjunni og hann var sjálfur presturinn! Hann vaknaði við klukknahljóminn — en áður en við förum lengra, viljum við víkja ofurlítið frá aðalefninu og snöggv- ast koma að höfðingjasetrinu. Þar var búið að kveikja á stóra jólatrénu; ungir og gamlir héldust í hendur og dönsuðu kring um það og frá vörum allra hljómaði sálmurinn: »Eitt barn er fætt í Betlehem«. Hve ljómaði þá stjarnan í toppnum móti börnunum. (Framh.). Israelsbörn. (Skrítla). Lítil stúlka las í bibliusögunum: »Þá gengu ísraelsbörn yfir liafið rauða«, þá segir hún við bróður sinn: »Það var mikið að foreldrar þeirra skyldu líða þeim að ösla svona í sjónum«. »Já, það yrði eitthvað sagt við okkur!« sagði drengurinn og stundi. „lEskan" kemur út mánaðarlega, og auk þess jólablað, skrautprentað með myndum (100 bls.). Kostar 1 kr. og 20 aura árgangurinn. Borgist 1. júní ár hvert. Sölulaun */5, gefin af minst 8 eintökum. Guðm. Gamalielsson bókbindari, Ilafuar- stræti lti. Reykjavík, annast útsendingu blaðsins og alla afgreiðslu, tekur móti borgun og kvittav fyrir o. s. frv. Prentsm. Gutenberg.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.