Nýtt land

Issue

Nýtt land - 30.08.1938, Page 2

Nýtt land - 30.08.1938, Page 2
NÝTT LAND FJóttinn rekinn. Frh. af 1. siðu. manntötrið bara undan í lítil- mennsku sinni og reynir að krafsa yfir bæði getsakirnar og flóttann frá þeim og vinnur það eitt við, að verða enn berari að ómennskunni. Hinsvegar reynir Jónas enn að bera það blákalt fram, að þeir Alfons og Sigdór séu flokkssvikarar. En ekki er liann samkvæmur sjálfum sér í því heldur. í Alþbl. 20. þ. m. kallar bann þá „svikara úr Al- þýðuflokknum frá í vetur“. í Alþbl. 26. þ. m. tekur liann það fram, að ekkert bafi verið at- hugavert við framkomu þeirra í kosningunum í vetur, heldur bara nú, því að „Alþýðuflokks- félagið þar (þ.e. á Norðfirði), sem telur um 100 manns, er sá aðili, sem ræður í pólitík flokks- ins í bæjarmálum. Það sam- þykkti í vetur samfylkingu við kommúnista, en hefur nú sam- þykkt að hafa hreinan flokks- lista“. Við þetta er nú samt það að atliuga, að samkvæmt lögum Alþýðusambands íslands, sem eru um leið lög Alþýðuflokks- ins, er það ekki Alþýðuflokks- félagið á Norðfirði, sem á að ráða pólitik flokksins í bæjar- málum ])ar, heldur fulltrúaráð lians á staðnum*. „Þessi regla * Þetla gengur ljóst fram af 15. gr. laganna, sem hljóðar svo: í hverju kjördæmi, sem bandsfélög eru í, mynda full- trúar félaganna þeir sem nefnd- ir ern í 12. gr. (þ. e. kjörgengir fulltrúar á samb.þing) fulltrúa- ráð. Fulltrúaráðin setja sér sjálf reglur uin verkaskipting og annast milli þinga þau mál, sem sérstaklega snerta livert kjördæmi um sig. Hvert full- trúaráð ákveður fyrir sitt kjör- dæmi, hverjir skuli vera fram- bjóðendur til kosninga í opin- berar stöður. hefur gilt í Alþýðuflokknum“, svo að noluð séu orð Jónasar sjálfs gegn honum. En í þetta sinn hefur Skjaldborgin ein- hverra hluta vegna ekki viljað fara að lögum og ráðandi venju, og er það henni líkt, að segja það lög og reglur, sem lienni hentar í hvert skipti.** Allt skraf Jónasar um flokks- svik Alfons og Sigdórs er því bæði sjálfu sér ósamkvæmt og byggt á falsrökum. Fellur það því niður dautt og ómerkt, eins j og fúkyrði manns, sem veit ekki, livað hann er að segja. Ef frekari vitna þyrfti við um, hvað það hefur verið fjarri, að Skjaldborgin liafi látið það gilda sem reglu, að flokksfélög- in réðu pólitík flokksins á hverjum stað, þykir rétt að minna á, að flokksfélagið í Reykjavík var rekið úr Alþýðu- flokknum af Skjaldborginni fyrir það, að það vildi ráða því, hvernig það kysi sér formann! I sambandi við þetta atriði lætur Jónas þess getið, að Héð- inn Valdimarssyni hafi verið vikið úr flokknum fyrir brot á flokksaga. Skjaldborgin hefur áður reynt að halda þessu fram, en með falsrökum einum áþekkum þeim, er Jónas liefur nú borið fram og rekin hafa verið. Hitt er hinsvegar tví- mælalaust, að St. J. St. gerðist brotlegur við flokksagann í bæjarstjórnarkosningunum í vetur, og það svo, að fullkom- in brottreksturssök var. Skjald- borgin gerði liann að „forseta" fyrir vikið! ** Annars er það eftirtelctar- vert, að Jónas getur þess, hve margt manna sé í Alþýðuflokks- félaginu á Norðfirði, en ekki um hitt, hversu fjölmennur fundur hafi ráðið uppstilling- unni. Það skyldi þó líklega ekki vera, að eitthvað væri óhreint við það líka? I Alþbl. 20. þ. m. segir Jón- as: „Alfons liafði ákveðið — og beinlínis sagt það þ. á. m. við Harald Guðmundsson — að hann mundi aldrei verða á lista með kommúnistum við þessar kosningar“. Jónasi hefur sýnzt rétt að breyta framburði sínum um þetta atriði einsog fleiri, og talar í Alþbl. 26. þ. m. bara óá- kveðið um „þá menn, sem bún- ir voru að lýsa því yfir, að þeir mundu ekki í trássi við vilja l'lokks sins, Alþýðuflokkinn, verða á lista með kommúnist- um“. Nú er þelta ekki mjög ranghermt ef þessi orð stæðu í réttu ljósi, en Jónas reynir að láta falla á þau það villuljós, að Alþýðuflokkurinn sé sama og Skjaldborgin, og þannig túlkuð eru þau algerlega rang- liermi. Annars mun vaka fyrir Jónasi hér líkt og annarsstaðar, að reyna að klóra yfir bæði fyrri ranghermi og viðurkenn- ingu sína á því, að liann liafi ranghermt. Það er þessi venja hans og ástríða að nudda skít í öll sín brot, og telur hann sér víst trú um, að þau sjáist þá ekki. I Alþbl. 20. þ. m. gerði hinn pólitíski framkvæmdarstjóri Jónas Guðmundsson í nafni Al- þýðuflokksins alveg ótvíræða kröfu til þægðar og fylgis Al- fons Pálmasonar við Slcjald- borgina, vegna þess að Alþýðu- flokkurinn liefði eitt sinn tekið hann „upp á arma sína, þegar liagir hans voru síður en svo góðir“. í Alþbl. 26. þ. m. segir sami Jónas, að Alfons liafi ver- ið íhaldsmaður, er hann tók við forstjórn P. A. N. og fyrstu ár- in þar á eftir. „Eru það þvi al- veg helber ósannindi, er Nýtt land gefur það í skyn, að Al- þýðuflokkurinn hafi krafizt nokkurra sérstakrar skoðunar af Alfonsi Pálmasyni“. Þetta mundi nú vera kallað að svara út í hött, ef ekki leyndist í því ofurlítill sannleiksneisti, og er sá neisti ekki til að bæta mál- stað Jónasar. Þetta er rétt: Al- Jiýðuflokkurinn gerði ekki þess- ar kröfur, þegar Alfons var að byrja með P. A. N. Heldur gerði .Tónas þær 20. þ. m. fyrfr Skjaldborgina í nafni Alþýðu- flokksins. Það sýnir meðal ann- ars mun Alþýðuflokksins og Skjaldborgarinnar, að Alþýðu- flokkurinn gerír ekki svona kröfur, heldur gerir Skjald- borgin þær í nafni Alþýðu- flokksins — með sama rétti og „andskotinn falsar guðs steðja og setur hans nafn og innsigli á svikinn málm“. Finnst mönnum það annars ekki býsna sárt sjálfsspott hjá Jónasi eftir allar missagnirnar og ofaníátið, þegar hann segir: í Alþbl. 26. þ. m.: „Saga máls- ins er að, öllu leyti rétt sögð af mér“! g I Alþbl. 20. þ. m. segir Jónas: „Önnur nöfn (en Alfons og Sig- dór) .... er ekki ástæða til að minnast á, þau eru svo þýðing- arlitil í baráttunni“. í Alþbl. 26. þ. m. finnst honum þó ástæða til að skrifa sérstakan pistil um hvern þeirra Björn Ingvarsson, Vigfús Guttormsson, Pál Sig- urðsson og Jón Sigurðsson. Ekki virðist hann þó beinlinis leggja sig fram til að gera sæmd þeirra sem mesta, og ekki er það, sem liann segir, að neinu hafandi, nema helzt um Björn Ingvarsson. En bót er það í máli, að búast má við, að liann breyti sínum umsögnum næst. Tvennt getur .Tónas leiðrétt hjá Nýju landi í skrifi sínu 26. þ.m. Annað cr, að Sigdór Breklc- an hafi ekki verið 15 ár í „hæj- arstjórn“ heldur hreppsstjóm og bæjarstjórn á Norðfirði, og er það að vísu bitamunur en ekld fjár. En líkt Jónasi er að HitavaiÞmá! T ÍKLEGT mætti þykja, að flestir Reykvíkingar óski þess, að hitaveitumál bæjarins verði sem bezt leyst. En ekki er gott að sjá það af því, hvernig ineð það mál er farið af vald- Köfum bæjarins óg þeim öðr- um, er um það ræða á opinber- um vettvangi. Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefir eins og kunnugt er meiri- hlutavald í bæjarstjórn Reykja- víkur, virðist helzt hafa gert sér það að metnaðarmáli, að leysa málið án samvmnu við aðra flokka. Tillögum annara flokka um atliugun á því, hvaðaii ó- dýrast og hagkvæmast muni vera að leiða heitt valn til bæj- arins, hefir verið tekið með megnustu fyrirlitningu. í velur íor borgarstjóri utan til þess að leila eftir erlendu láni fyrir hitaveituna, og’ gætti þess þá vandlega að láta andófsflokkana i bæjarstjórninni ekkert vita um sitt erindi fyrirfram. Þvi var likast sem árangur farar- innar æíti fyrst að vera til fram- dráttar fyrir Sjálfstæðisflokk- inn við bæjarstjórnarkosningar, er i liönd fóru, og aðeins þar Rayliavíkar. næst til hagsbóta fyrir bæjarfé- lagið. En svo fór með sjóferð þá sem kunnugt er orðið, að sjaldan hefir meiri hrakför ver- ið farin, sem maklegt var, ef á það eitt er litið, hvérnig til var stofnað. En ef til vill hefir verið of um hælzt af andstæðingun- um. í vor fór borgarstjóri aftur utan, og var þá um allt belur að heiman búinn og engin leynd á um för hans. Þó kom hann enn bónleiður heim um lántökuna, en fengið hafði hann staðfest- ingu sænsks verkfræðings T. Nordenssons á því, að hitaveita frá Reykjum mundi vera mjög arðvænt fyrirtæki fyrir Reykja- víkl * Alls engin ástæða er til að ætla annað en áætlanir T. Nor- denssons séu trúverðuglega gerðar og með það eitt fyrir augum að komast að réttri nið- urstöðu um það, sem tekið er til athugunar. Ifið sama má og segja um áætlanir íslenzku verkfræðinganna, er staðið hafa í þjónustu bæjarins. En þvi miður eru þær allar aðeins um eina lausn málsins. Og vitan- lega eru þær eldcert nema gögn, sem fram eru lögð í mólinu. Er því ekki aðeins lieimilt þeim, er ábyrgð eiga að bera á fram- kvæmd hitaveitumálsins, að taka þær til athugunar og gagn- rýni, heldur er þeim beinlínis skyi t að gera það. Þessvegna er varla hægt að hugsa sér öllu uxalegri framkomu í opinber- um málum, en þegar meiri hluti bæjarstjórnar mætir slíkri gagnrýni á þann hátt, er kom fram í „rökstuddri^ dagskrá“ samþykktri á bæjarstjórnar- fundi 18. ág. s. 1.: „Þar sem .skýrsla sænska verkfræðingsins Tom Nordens- sons sýnir, að liitavcita frá Reykjum sé hið glæsilegasta fyrirtæki og fullyrðing vara- bæjarfulltrúa Sigurðar Jónas- sonar um að skýrslan sýni hið gagnstæða, er sánnleikanum al- gyerlega ósamkvæm, þá visar bæjarstjórnin tillögu varabæj- arfulltrúans*) frá sem ósæmi- legri, þar sem hún er til þess löguð að spilla fyrir hitaveitu- málinu á óviðurkvæmilegan hátt.“ *) Sú tillaga var um fyllri athugun málsins. Það hætir ekki um, þegar málgagn bæjarstjórnarmeiri- hlutans, Mbl„ fer að árétta þessa heimskulegu samþykkt með því 23. ág. s. 1. að telja gagnrýni Sigurðar og annara á áætlun- unum ómerka fyrir það eitt, að þeir séu ekki sérfræðingar í þessum málum og liafi ekki vit á þeim, og dæma sjðan alla slíka gagrirýni „fjándskap við hitaveituna“. Þessa ádeilu á Sjálfstæðis- flokkinn ber Nýtt land ekki fram fyrir það, að blaðið vilji fjandskapast við flokkinn í þcssu máli, heldur vill það tala við liann í hreinskilni um það. Blaðið vill ganga hreint og' beint til viðurkenningar um, að það Jítur svo á, að vegna aðstöðu sinnar sem meirihlutaflokkur í bæjarstjórn Reykjavíkur beri Sjálfstæðisflokknum forysta í þessu máli. En það vill jafn- framt taka fram, að það er mikill misskilningur, ef flokk- urinn álítur hlut sinn minni, þó hann hafi samvinnu um það við aðra flokka. Éinmitt á þann liátt getur hlutur hans orðið mestur og verður þó hlutur hinna flokkanna betri um leið. En skilyrði fyrir slíku er, að öll gagrirýni sé hispurslaust fram gera úr því langt mál og mikið veður. Hitt er það, að Sigdór hafi aldrei verið forseti bæjar- stjórnar. Er það verulegra at- riði og þykir Nýju landi mjög leilt að liafa skýrt þar skakkt frá. En ekki vill blaðið taka upp þann liátt Jónasar að láta sig bresta manndóm til að viður- kenna lireinlega sínar villur og missagnir, heldur skulu þær viðurkenndar hreint og ótvírætt. Um liinn þáttinn í grein Jón- asar, fúkyrði til ritstjóra Nýs- lands, verður fátt sagt í þessari grein, þar sem sá þáttur kemur kosningum á Norðfirði ekki við. Þykir betur við eiga að svara heldur því, er svara vert þykir, í smáletursklausum smám saman, ef um rýmist í blaðinu. Uin þann þátt skal þess þó getið, að einnig þar kastar Jónas steini sér um megn, og eru tilburðir lians við þá grýtingu spaugilegir en ekki hættulegir og enti síður banvænir þeim er hann liyggzt að grýta. En liollara hefði verið fyrir sjálfan liann að láta þann leik vera. Af, sem áður var. Meiri hluti Reykjavíkurbréfs Mbl. sl. smmudag er uppprentun úr Alþbl. kryddað meS smáklaus- um úr Ndbl. Eftir því sem fyrr hefur veriS, mætti búast viS, a’ð þessar uppprentanir væru gerðar til mótmæla eða viSvörunar. En svo er ekki. Allt þaS, sem Mbl. prentar í þetta sinn upp úr Alþbl. gerir þa‘S aö sinum orðum og er- hjartanlega sammála og þakklátt Alþbl. fyrir góðar upplýsingar og -staðfestingar á gömlum og nýjum staðhæfingum' Mbl. sjálfs. Þeir eru sýnilega farnir að jgpra hiÖ nýja íhalds A B C víÖar en á Noröfiröi. borin og henni sé svarað með fullri virðingu og réttum rök- um. Víst er það þakkarvert, að við höfum þó nokkurn veginn mál- frelsi hér á íslandi og hefir því lillaga og gagnrýni Sigurðar Jónassonar komið fyrir sjónir almennings í Reykjavík þó að bæjarstjórriin vildi vísa henni frá „sem ósæmilegri“. Gagnrýni Sigurðar*) er röggsamlega fram borin, og hefir lienni enn eklti verið svarað svo að noldc- urt gagn sé í. Það stoðar ekkert að segja, að Sigurður sé ekki sérfræðingur í þessu miáli, því að mörg atriði þess eru þann veg, að enga sérfræði þarf til að skilja þau, heldur bara dálítið af skynsamlegu viti. Þó virðist svo, að Sigurður hafi leiðzt út i öfgar í sinni gagnrýni, og að þar kenni meiri kappgirni en sanngirni. Við áætlanir, sem gerðar eru um hitaveituna frá Reykjum, vill Sigurður, að sluðzt sé við þá reynzlu, sem fengin er.af liita- veitu frá Þvottalaugunum. Þetta er eltki nema rétt og sjálfsagt. Hitaveitan frá Þvotlalaugunum *) N.dbl. 21. og 26. þ. m.

x

Nýtt land

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt land
https://timarit.is/publication/387

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.