Nýtt land - 24.04.1939, Blaðsíða 1
ÚTGEFANDI:
Sameiningarflokkur
alþýðu — Sósíalista-
flokkurinn.
Víkingsprent h. f.
NYTTLAND
%
RITSTJÓRI
Arnór Sigurjónsson
Holtsgötu 31
Sími 1208.
AFGREIÐSLA
Ansturstræti 12
Simi 218 4
II. ARG.
REYKJAVÍK, MANUDAGINN 24. APRÍL 1939.
16. TBL.
BÆKUR;
Bæfeur Máls o§
menníngar 1939.
Nýlega er út komin önnur bók
Máls og menningar á þessu ári,
Austan-vindar og vestan, saga
eftir Pearl Buck, þýdd af Gísla
Ásmundssyni. Þessi saga lýsir
þeim aldahvörfum, sem verða í
lífi konunnar í Kína, þegar vest-
ræn menning flæðir yfir landið.
Það er saga af konu, sem hefur
fengið hið vandaðasta uppeldi
kínversku yfirstéttarinnar í alda-
gömlum siðum, og giftist síðan
manni, sem fengið hefur vestræna
mentun, kynnist smám saman
skoðanahætti hans og verður að
taka upp þá siði og hætti, sem
eru í samræmi við hans uppeldi og
menntun. Þetta veldur margskon-
ar árekstrum við ætt og umhverfi,
og er því lýst með frábærum næm
leik og hófsemi.
Islenzkun sögunnar er ágæt, mál-
ið nákvæmt, ljóst og viðfelldið.
Sagan er því bæði fróðleg til lest-
urs, og í alla staði hin ánægjuleg-
asta.
Það verður því ekki annað séð
en að Mál og menning verði mjög
heppið með bækur sínar á þessu
ári. Sögubækur félagsins eru báð-
ar komhar út, báðar ágætar og
^vo ólíkar sem austrið vestrinu. 1
haust kemur svo úrval úr kvæðum
St. G. St. og á Sigurður Norðdal
að annast úrvalið. Þetta á að
verða mikil bók, um 400 bls., og
þarf ekki að efa, að hún verður
mörgum kærkomin, og mun Norð-
dal fylgja höfundi kvæðanna vel
úr hlaði. Þá koma líka Rauðir
pennar eins og verið hefur á
hverju ári, síðan félagið tók til
starfa. Og svo að lokum sú bókin,
sem flestum félagsmönnum mun
mest forvitni á að vita, hvemig
tekst, rit um íbúðir og heimilis-
prýði. En til þessa rits á að vanda
bæði að efni og frágangi, og verð-
ur það hið þarflegasta rit, ef vel
tekst.
Gert er ráð fyrir að ársbækur
félagsins verði alls 90—100 arkir
að stærð, þegar litla tímaritið er
með talið, og fá félagsmenn þær
fyrir 10 krónur, og verður slíkt
að teljast góð bókakaup eins og
bókaval félagsins virðist ætla að
takast í ár.
Sigurður Róbertsson:
Lagt upp í langa
fcrd
Þetta eru smásögur og er höf-
undurinn byrjandi. Hann segir
laglega frá, en hefur ekki borið
mikið efni að í þessar sögur, nema
helzt söguna um Atla. Er þar
kominn húskarlinn úr Njálu. Þar
er lýst baráttu manns, sem er
þrælbarinn en ræður yfir miklum
vaskleik, fyrir því að geta lifað
lífinu í samræmi við upplag sitt
og hæfileika. Þetta er saga allra
alda og er hér vel sögð.
Ekki verður talið að enn sé
fullséð ,hvers vænta má af höf-
undinum. En oft hefur góður rit-
höfundur farið verr af stað, er
hann lagði upp í sína löngu ferð.
Umræðnr nm vantranst á þjóðstjórn-
ina heijást kl. 2 e. h. i dag
Frumvarp ííl hcgníngarlagal verdur ebhí á dagskrá
Sameíníngarflob'kur alþýðu — Sósíalístaflobkurinn — hefur boríð fram van-
traust á rikísstjórnína. Svo mættí þykja sjálfsagt, að umræður um það færu fram
i útvarpínu og fór flokkurínn fram á það. En um þetta hefur veríð synjað og er
því meírí ástæða tíl að menn hlýðí á umræðurnar á þíngínu sjálfu af pöllunum.
Umræðurnar um vantraustíð hefíast kl. 2 í dag.
Það hefur vakíð athyglí þíngmanna, að frv. tít nýrra hegningarlaga er ekkí
á dagskrá í dag'. Þykir slíkt benda tíl þess, að þjóðstjórnín hafi á síðustu stundu
hætt víð að knýía það fram áður en þíngínu verður frestáð.
Pýzkir skriðdrekar á hersýningu.
Lltlð nn Sxl
lí f I e n f: Stormahfé effír orðsendíngu Roose^
velfs. Rússar, Brelar og Frakkar gera hernað-
arbandalag, Balkanríkin á báðum áffum. Bref*
ar flyfja ^ull fíl Ameríku. ífalskur her kyrr á
Spání, Roosevelf mínnísf íslands.
Innlenf: Þíóðsfjórnín hefur orðíð að senda
þíngíð heím. Seff hegníngarlög, sem ekkí eíga
sínn fíka. Mæðiveíkínefnd falíð að sfjórna
vörnum gegn garnaveíkínní.
Eftír orðsendíngu Roose-
velts.
Síðastliðna viku virtisl scm
. glímuskjálfli .slórveldanna í'æn
heldur rénandi. Persónuleg
orðsending Roosevelts til Ilitl-
ers og Mussolini virðist hai’a til
þcss orðið, að fasistaþjóðunum
hefur þótt vissara að hafa held-
ur kyrrara um sig í bili og
byrgja inni reiðina. Enn hafa
valdhafar þeirra engu svarað
Roosevelt. Blöð' þeirra létu i
fyrstu dólgslega, en er frá leið
var helzt um það talað, að brátt
mundi orðsending forsétans
gleymd og skoðuð sem hverl
annar ónýt.ur pappír. Þó hefur
það síð'asi frétzt, að þyzka
stjórnin hefiir snúið sér beint
til ýmissa smærri ríkja, sem
tekin eru upp í boðskap Roose-
velts og skorað á þau að segja
til þess, hvort þau áliti, að þeim
sé ógnað af Þýzkalandi. Vonazt
þýzka stjórnin til, að |)au ríki
þori ekki að svara öðru víri en
neitandi og mun y>á nota svör-
in til þess að afgreiða áskorun
Roosevelts sem tilefnislausa
markleysu.
Hernaðarbandalag Rússa,
Breta og Frakka.
En jafnframt þessu hafa
Bretar haldið áfram að fesla
samtök sem flestra Evrópu-
l'jóða gegn árásarríkjunum. A
föstudagskvöld var frá því
skýrt ojiinberlega í London, að
viðræðurnar milli Sovét-Rúss-
lands og Bretlands og Frakk-
lands gangi nú mjög að óskum.
Iíali stjórn Sovét-Rússlands
lagt fram tillögur, sem talið sé
víst að gengið verði að og
mundi það þá þýða, að Ráð-
stjórnarrlkin skuldbindi sig til
að ])eita öllum herafla sínum á-
saml Bretlandi og Frakklandi
til að koma í veg fyrir frekari
árásir í álfunni. Pykja þessar
fréttir mikil tíðindi í London
og hvarvetna um heim.
En jafnframt J)essu beYast
þær fréttir frá Bietlandi, að
þar sé nú í ráði að innleiða al-
menna hérskyldu. Hefur sijórn
Frakka lagt fram við brezlcu
stjórnina mjög eindregnar ósk-
ir um þetta.
Balkan.
Hinsvcgar liefur reynzf erf-
itl að sameina Balkanþjóðirn-
ar gegn fasistarikjunum. Búlg-
aria þykist eiga um sárt að
binda siðan eftir stvrjöldina
miklu, en þá fengu nágrannar
Búlgariu öll þrætulönd milli
Búlgaríu og grannlandanna.
Hefur Búlgaríu nú verið boðin
einhver leiðrétting þeirra
mála fyrir það að taka nú upp
sameiginlega afstöðu lil deilu-
mála í álfunni með grannþjóð-
um sínum. En búizt er við, að
Búlgarir muni vilja gerast all
kröfuharðir og fá mikil lönd
frá grönnum sínum öllum, Rú-
menum, Júgoslövum og
Grikkjum. En svo mikill þjóða-
blendingur er í landamærahér-
uðum |)essara þjóða, að lönd-
um er mjög vanddeill milli
þeirra og er það viðkvæmt mál,
er verður naumast leysl á fá-
um dögum. En það, sem Búlg-
ari skiptir allra mestu er að fá
aðgang að Egeahafi er á ko«tn-
að Grikkja, er minnstu skiptir
um vináttu Búlgara. Hinsvegar
er Júgoslavía i úlfsgini, þar
sem ítalir ráða nú siglingu i
Adríahaf og um leið öllum
siglingum að ströndum lands-
ins. En landamæri á Júgoslav-
ia að ítalíu á tveimur stöðum
síðan Albanía var hernumin og
auk þess Þvzkalandi. Ungverja-
land og Búlgariu. Er því jafn-
vel við því búizt, ef ekki takazt
samningar við Búlgari, að Júgó
slavar muni neyðast til banda-
lags við fasistaríkin og síðan til
fullrar uppgjafar, hvenær, sem
þeim ríkjum þvkir tími til
kominn. En nú eru Júgoslavíu
fyrir fylgi við íasistarikin, að
sumra sögn boðin aukin lönd á
kostnað Grikkja og Rúmena.
En víst er að ef Júgoslavía verð
ur hnndbendi fasistaríkjanna
cr Rúmeníu ennþá hættara, og
kemst hún þá ekki hjá að velja
milli Rússa og fasistanna. Hins-
vegar þykir nú nokkurnveginn
fullráðið, að Tyrkir muni ganga
til bandalags við Breta og
Bússa og telja má víst, að
I
Þorbergur Þorleífsson I
alþingísmadur
Þorbergur Þorleifsson al-
þingismaður á Hólum andaðizt
að heimili sínu í gærmorgun.
Kenndi hann í fyrra sumar
krankleika í maga og leitaðl
sér í haust lækninga hingað til
Reykjavíkur. Var gerður á
honum uppskurður á Landspít-
alanum. Kom þá í ljós að hann
þjáðist af krabhameini og var
sjúkdómurinn þá þegar kom-
inn á það stig, að ekki varð við
gert. Þorbergur komst þó á
fætur eftir uppskurðinn og bar
sig eins og hann hefði fengið
hata og væri brátt heill heilsu.
Fór liann þá heim og beið þar
andláts síns.
Þorbergur var fæddur 18.
júní 1890, og því tæpra 49 ára,
er hann lézt. Hann er fæ.ddur
á Hólum í Hornafirði og hefur
átt þar heima allan sinn aldur
Skólamenntun sótti hann í
Flensborgarskólann og gagn-
fræðaskólann á Akureyri.
Þorbergur var elztur af 10
systldnum. Sjaldgæft er að svo
stór hópur systkina sé eins
jafn að mennileik og þau svst-
kri frá Hólum. Bera þau það
m"ð sér, að í heimilinu hefur
verið sönn hæverska, kultur.
En svo sýndist sem Þorbergur
væri það tréð, scm mest hefði
staðið áveðra. Hann mun
snemma hafa litið á það sem
frumburðarskyldu, að standa
fremst, þar sem á reyndi.
Fg kynntist Þorbergi fyrst
af nemanda mínum, sem átti
mj'ig erfitt. Hann hafði stund-
um verið á Hólum, þegar hann.
gaf hvergi annars staðar verið.
Hann mat Þorberg umfram
alla aðra menn.
Síðan kynntist ég Þorbergi
1933 og aftur, er hann varð
þingmaður A. Skaftfellinga eft-
ir föður sinn 1934. Hann var á-
hugamaður um framfarir,
frjálshuga og bjartsýnn. Hann
skildi mál miklu betur en hann
gerði grein fyrir þeim. Um af-
sldpti hans af þingmálum var
mér kunnast um hlutdeild hans
í logum um loðdýrarækt. Hann
átti mestan hlut í þeim lögum
allra þingmanna. Var og loð-
dýTarækt eitt hans mesta
áhugamál og trúði hann því, að
þar væri um að ræða mikinn
framtíðaratvinnuveg fyrir ís-
lendinga. Hann var vinsæll
þingmaður og þó enn vinsælli
maður. Engum datt í hug,- ið
hann tæki nokkru sinni aðra
afstöðu til nokkurs máls en þá,
er hann hugði réttasta.
Grikkir verði einnig þeim meg-
in.
Ófríðarboðar
Þó að nokkru heldur séu nú
líkur fyrir friði, en um næst-
liðna helgi, er enn tvennt, sem
ber því ljóslega vitni, að ekki
þykir friðurinn ömggur. Ann-
að er það, að Bretar flytja nú
gull vestur til Ameríku til
geymslu í stórum stíl og er það
vissulega örýggisráðstöfun
gegn yfirvofandi ófriðarhættu.
Hitt er að Franco frestar æ
meir og meir sigurför sinni inn
i Madrid, en fram til þess að
sú sigurför er farin, telja Italir
sér heimilt að hafa herlið á
Spáni samkv. samningum við
Breta. En ítölsku hersveitirnar
á Spáni era sumar norður við
landamæri Frakklands en aðr-
ar suður við Gibraltai' og ógna
þannig bæði Frökkum og Bret-
um.
Roosevelt mínníst íslands.
Það vakti nokkra eftirtekt
hér á landi, að Roosevelt
nefndi ekki ísland i orðsend-
ingu sinni hinni miklu til Hitl-
ers og Mussolinis En á þriðju-
daginn var því lýst yfir í Was-
hington, að það sé ekki af
neinum sérstökum ástæðum,
aS íslandi liafi verið sleppt og
sé ástæðulaust að nokkur kvíði
vakni vegna þess, að það hafi
ekki verið talið. Það eitt hafi
ráðið, að ísland hafi að áliti
Roosevelts og ráðgjafa hans
verið svo fjarri ófriðarhættu-
svæðum megnlandsins, að það
væri ekki svo sjáanlegt va^ri i
neinni yfirvofandi ófriðar-
hættu. Roosevelt hefur og lvst
því vfir, að Bandaríkin beri
liina mestu vinsemd í garð ís-
lands og íslenzku þjóðarinnar
og heri hag hennar fyrir
brjósti.
En meðal annarra orða:
Mundi það ekki hafa verið
landráð, ef „kommúnistar”
skyldu hafa hent Roosevelt á.
að ísland sé einmitt á „ófriðar-
hættusvæðunum” og kal'.að
fram þessa vfirlýsingu?
„Þjóðstjórnín''
„Þjóðstjórnin” lang\-ofandi
tók sæti á þriðjudaginn. Svo
segir Spegillinn frá, að henni
muni áðrir stólar henta en rök-
stólar. Víst er, að það ákvað
hún fyrst af öllu að senda þing-
ið heim. Á það i þessari viku,
sem nú er að byrja, að taka sér
frest til hausts. Ekki. mun þó
rétt að skilja þetta svo, að
stjórnin muni ætla að fara að
hætti einræðisstjórna að láta
þingmenn sitja heima nema
einn til tvo daga á ári til við-
hafnar höfðingjanum. Heldur
mun hitt, að ekki hafi verið að
fullu gengið frá málefnagrund-
vellinum fyrir „þjóðstjórnina”,
er hún settist, þó að lcngi hefðu
samningarnir staðið. Á nú enn
að „semja” til hausts. En til
marks um það, að samkomulag
muni enn ekki fengið um
' grundvöllinn, og líkur séu til
að það iaist cða finnist ekki, er
að nú er farið að kalla stjóm-
ina „samstjórn” hjá þeim í
Tímanum. Mun slíkt Þykja
jafnmildð réttnefni og að kalla
þá stjórn „þjóðstjóm”, sem
fámenn klíka svindlara og
pólitískra spilamanna setur á
laggir bak við þjóðina og móti
vilja hennar.
Framh. á 4. síðu.