Nýtt land - 26.09.1941, Síða 3

Nýtt land - 26.09.1941, Síða 3
Föstudaginn 26. september 1941. NÝTT LAND nýja stefnu, og er þaö nú svo kunn- ugt, að það þarf ekki aö relíja. ítesss ,má þó geta, aö meö því var ráðinn hinn „hægri akstur'* o'g tekiö hið „hægra bros“, er Fram- sóknarflokkurinn hefur tekið og borið síðan 1937. Eg gat skilið, að Eysteinn fór .sem honum fór í þessu máli. Eg lief áður tekið það fram, að er hann vék Jakobi Möller frá starfi 1934 án þess að taka þar nokkuö upp í staðinn, hlaut stefna hans og stjórn á bankamálunum að vera .sjónhending blinds manns. Hann rak sig beinlínis á það eins og bjálka, sem kom mitt á milli blindra augnanna, að þetta varð- aði Landsbankann fyrst og fremst, og honum varð um það eins og ó- vænt höfuðhögg. Það var ekki nema mannlegft, að þetta hefði sín áhrif. Svo hafði hann þegar nokkra æfingu í því að ganga frá fyrri ætlunum og stefnum, eins og hafði sýnt sig í launamálinu. Eg fyrir mitt leyti hefði, eins og kom- ið var, getað fyrirgefið Eysteini sem manni þetta hvorttveggja. En ■ofan á þetta endurtók sig ævin- týrið frá Skildi i stórkostlegri stíl, og um það varð mér svo mikið, að eg gekk úr flokknum þess vegna og þurfti meira en tvö ár til þess að ná mér eftir það. En eftir þessi tvö ár fann eg þá skýringu á fyrirbærinu, að eg gat hvort- tveggja í senn, fyrirgefið sjálfum mér það, að hafa borið trúnaðar- traust til Eysteins Jónssonar seni' þess manns, er koma skyldi i is- lenzkum stjórnmálum, og sætt mig við Eystein eins og hann var og er. — í umræðunum á Alþingi um Kveldúlfsmálið tókst Eysteinn á hendur það hlutverk að gera grein fyrir og verja hina nýju aðstöðu, er Framsóknarflokkurinn hafði tekið. Nú varð margt að túlka á allt ánnan veg en gert hafði verið af Eysteini og öðrum mánuði áð- ur, eignir voru á annan hátt fram taldar og virtar, skuldir sömuleið- is, en einkum varð að fella af og taka upp á nýjan leik, er allt við- horfið til þessa máls og annarra var rætt, enda er slíkt ekki undar- legt, þar sem straumhvörf voru að gerast í starfi, stefnu og sögu flokksins. Eg held, að mér hafi ekki orðið svo ntjög um þá kú- vendingu, sem Eysteinn og með honum flokkurinn tók í þessu máli. Þau tíðkast nú svo mjög hin breiðu spjótin. En það, sem mér var ofraun, var þetta: Ræða sú, sem Eysteinn hélt við þetta tæki- færi, er tvímælalaust hin rökvís- asta, bezt samda og bezt flutta ræða, sem hann hefur nokkru sinni haldið. Eg var með sjálfum mér viss um, að hann talaði um hin verulegustu atriðin gegn betri vit- und og sannfæringu. Þetta var mér ofraun, þar sem sá mSður átti í hlut, sem eg treysti bezt í Fram- sóknarflokknum. Eg hefði ef til yill þolað þetta, ef hann hefði stamað eða einhver merki hefðu sést þess, aö samvizkan stæði of- urlítið í honum. Eg hirði ekki að þessu sinni að rekja stjórnmálasögu Eysteins og Framóknarflokksins, eftir að sótt var inn á brautina til hægri hand- ar, eða vera með nokkrar hugleið- ingar út af því, að Eysteinn varð þá að deila riki sínu til helminga með Jakobi Möller, er hann hafði rekið úr starfi fyrir dugleysi í upp- hafi ráðherradóms síns. En áður en eg segi írá þeim atburðum, er sættu mig við Eystein að nýju, vil eg ségja írá ofturlitlu atviki, er kom fyrir litlu áður. Það var á aðal- fundi KRON 1939. Þar kom geng- ismálið til umræðu. Sú umræða hófst með þvi, að samherjar mín- ir í fundinum „hlupu á sig“ í mál- inu, en mér fannst Eysteinn vilja beita augljósum falsrökum i þeirri trú, að hann væri að tala við aula. Mig langaði að leiða félaga mina af villuvegi, en klekkja um leið ofurlítið á Eysteini fyrir blekk- ingar hans. En eg réð ekkert við það, af því að mig brast skapstill- ingu. Áverkinn frá 1937 tók sig upp, eg þoldi ekki við, og var sem vitfirrtur af sársauka. Eysteinn gamnaði sér af þvi, hvernig fyrir mér fór. En svo kom lækningin á hinn óvæntasta hátt síðar um vorið. Þetta byrjaði á framboðsfundi í Byggðarholti í Lóni í Austur- Skaftafellssýslu. Eysteinn hafði komið þarna í sýsluna til að hjálpa lambinu sinu, Páli Þorsteinssyni á Knappavöllum, frambjóðanda Framsóknarflokksins. Hann hélt, að það kynni ekki að jarma, svo að kjósendur skildu. f fundarbyrjun veitti kvenfélag- ið í Lóninu fundarmönnum kaffi. Eysteinn var eitthvað eftir sig eft- ir ferð og fund daginn áður og bað um mjólk í staðinn fyrir kaffi. Hann fékk, að eg held þriggja pela flösku, og lék sér að henni um daginn. í fundarlok var aftur drukkið kaffi, en þá var það „svart". Tveim dögum síðar vorum við Eysteinn samnátta á Geithellum. Þar var okkur fyrst borið kaffi, og drakk Eysteinn það mjólkur- laust. Síðar var okkur borið sykr- að skyr með rjóma. En er Eysteini var réttur rjóminn, ýtti hann frá sér með báðum höndum og bað um undanrennu. Þessu til skýring- ar sagði hann frá því, að hann hefði drukkið úr pottflösku af rjóma í Byggðarholti í þeirri góðu trú, að það væri venjuleg nýmjólk í sveitinni. Nú skildi eg allt. Það, sem mér hat'ði fundist óþolandi óhlutvendni i málfærstu hjá Eysteini og i af- stöðu hans til mála var af sama toga spunnið og þegár hann drakk rjómann i Byggðarholti. Það skipt- ir litlu máli, hvort það hafa verið þrír pelar eða pottur, en líklegast er að hið fyrra sé réttara og hafi þetta miklast Eysteini eftir á. En að hann skyldi taka misgrip á ný- mjólk og rjóma var augljóst tákn þess, að hann gat brostið skyn á hið allra einfaldasta og augljós- asta, þrátt fyrir óvenjulegan skýr- leik um margt það, er hversdags- legum mönnum er torskilið, og má vel vera, að sá skýrleiki sé uppbót fyrir hið frumstæða skyn, er hann brestur. Því verður mönnum það eðlilega á, að gera honum rangt til og ætlazt um margt til meira af honum en hann er maður til. Þrátt fyrir allt það, sem kringum Eystein er orðið í stjórnmálunum, og jafnvel þrátt fyrir allt, sem hann héfur sjálfur sagt og gert, er hann í raun og veru hinn heiðar- legasti og bezti maður, sem eigi vill segja og gera annað en það, er hann hyggur rétt og gott. í stjórn- artíð sinni hefur honum orðið það nokkuð oft á, að drekka rjóma í misgripum. En það er alls ekki vegna þess, að hann hafi ætlazt til þess, aö það yrði til þess að aðr- ir yrðu að drekka kaffið svart. Á hinu leikur mér grunur, að stjórnbragða- (eða refbragða-) mertnirnir í flokki hans hafi skil- ið veilurnar í „gáfum“ Eysteins löngu á undan mér og fært sér það í nyt fyrir flokkinn í sinn sérstaka hátt. Skýrleika Eysteins í máli, list hans í málfylgju, og augljósan vilja hans til góðs hefur átt að nota eins og framhlið í húsi, fagra fyrir almenningssjónum. En á því heintili innan dyra þykir það ein- mitt góður hæfileiki, að drekka rjóma í misgripum fyrir mjólk, og að almenningur drekki kaffið svart, af því að ekki sé annað til. Vikuna eftir að við Eysteinn vorurn saninátta á Geithellum, sá eg hann alltaf öðru hvoru með kjósendum hans. Eg sannfærðist með hverjum degi betur um það, að þessi nýi skilningur minn á hon- um var réttur. Eg hef engan þing- mann séð umgangast kjósendur sína á elskulegri hátt. Eg sá ekkert í því, sem mér sýndist vera fals, og reyndar ekki svo mikið af þess- um sérstöku mistökum, sem að framan hefur verið frá sagt, en íyrst augu mín höfðu opnazt, sá eg vitanlega, að þau gátu komið fyrir. Og mér fór sem Frökkum, sem segja: að skilja allt er að fyr- irgefa allt. Eg hafði ætlað að mæta á fundum í kjördæmi hans og gera þar upp við hann ýms mál. En það rann af mér allur móður við skiln- inginn. ’ Vogrek á Éjöriim viiliiiK'iiiiNkiiiiiiiir. P NN hefur villimennska þýzku nazistastjórnarinnar og leigu- liðs hennar vakið á sér sérstaka athygli með hefndarverkunum í Noregi. Fyrir tryggð norsku al- þýðunnar við land sitt og allt það, er norsku þjóðinni er dýrmætast, hefur ógnarstjórn þýzku nazist- anna, með aðstoð föðurlandssvik- ara, þegar líflátið a. m. k. þrja norska verkalýðsleiðtoga og varp- að fjölda manna í fangelsi. Þessir ógnaratburðir vekja liryllingu og andstyggð i brjóstum allra góðra íslendinga. Vér beygjunr höfuð vor í djúpri og innilegri samúð með norsku frændþjóðinni, sem berst nú fyrir lifi sínu, frelsi og sæmd við hin erfiðustu skilyrði. Vér dáumst að karlmennsku og þreki liinnar frelsisunnandi norsku þjóðar, sem berst gegn blóðþyrst- um herskörum villidýrslegrar of- Nú er þetta ekki skrifað til þess að gera upp gömul mál, né heldur til þess fyrst og fremst að gera sálgreiningu á Eysteini Jónssyni,- eða kenna mönnum það, að fyrir- gefa honum. Heldur er það ritaö vegna þess, sem nú er fyrir dyrum, þó að mönnum þyki ef til vill dreg- m nokkuð löng nót að því. Eins og inönum er kunnugt, eru dýrtíðarmálin í hinu mesta öng- þveiti. í vor endaði þingið með þvi að gefa stjórninni botnlausar heim- ildir til endajausra álagna á lands- fólkið — til þess að „lækka dýr- tíðina". Þegar til hefur átt að taka, hefur stjórnin vitanlega ekkert get- að gert til „lækkunar dýrtíðinni" á þenna hátt, og nú er hún í öngum sínum i þann veginn að kalla þing- ið saman til nýrrar ráðleysu. Þetta öngþveiti stafar að mjög verulegti leyti af þvi, að Eysteinn Jónsson hefur í ráðherratíð sinni, og eink- um hin síðustu ár, alltaf verið að drekka rjóma í misgripum fyrir nýmjólk, svo að fólkið hefur orðið að drekka kaffið svart. Það vill svo til, að þau mál, sem mestu ráða um „dýrtíðina", varða flest á einn eða annan veg ráöuneyti hans, og hann hefur á flestum þeirra hald- ið líkt og þeim málum, sem lýst er hér að framan. Þó hefur svo vilj- að til um sumt, að hann hefur stungið fyrir sig fótum og stymp- azt við á óeðlilegan hátt, er hann liefur um seinan séð, að annars myndi allt falla i þenna þrásótta farveg. Þá hefur hann ætlað að stöðva strauminn í íallinu fram af brúninni. Nú þarf enginn um það að efast, að flokkur Eysteins vill að hann drekki áfram rjómann í misgrip- um fyrir nýmjólk, hvað sem það kann að kosta hann og aðra. Svo er nú komið, að flokkurinn heldur slíkt raunar guðlega ráðstöfun, sem eigi megi hagga, aö fólkið drekki kaffið svart af þvílíkum sökum. Þetta er bæði af því, að sumum valdamestu mönnum flokksins hefur lærzt það, að lifa á misfellunum og spillingunni, og svo er þessi háttur að komast í vana fyrir flokknum. En þrátt fyrir allt er það trú mínv að loks sé að því komið, að þó að freista eigi Eysteins enn með sykruðu skyri og rjórna, muni hann ýta frá sér báðum hönd- um og biðja nú urn undanrennu. Eg trúi því staðfastlega, að hans náttúrlega heilbrigði muni bjóða honum það með þvíliku valdi, að undan þvi verði ekki komizt. Eg trúi því, að það leiði ekki aðeins til þess, að Eysteini verði fyrir- gefið, af þvi að hann verði skil- inn, heldur verði það upphaf að betri líðan hans og betri heilsu. Ef til vill er þessi trú'min eins og svo oft vill verða um mannlega trú, sprottin upp af of mikilli trú minin á mönnunum og af ósk minni. Eg óska nefnilega Eysteini alls hins bezta, síðan viö urðurn samnátta á Geithellum og eg skildi hann. A. S. beldisstefnu, án þess að bugast af hefndum eða hótunum. En samtímis því, sem þessar og þvílikar ógnir ganga yfir norsku þjóðina og þó einkum framvarð- ailið hennar í hinni sósíalistisku verkalýðshreyfingu, berast oss á öldum ljósvakans frá útbreiðslu- stöðvum siðleysingjanna i Berlín, raddir af vörum rnanna eins og finnska sósíal-demokratans Tann- ers, er túlka hina sviksamlegu og ógeðslegu hernaðarárás þýzku nazistanna á sovétríkin sem frelsis- lraráttu Evrópuþjóðanna gegn kommúnismanum (í reyndinni sósíalismanum og lýðræði og frelsi). Með þessu afsakar Tanner það, að hann berst nú við hlið nazismans undir forustu Adolfs Hitlers gegn rússnesku þjóðinni. Á sama tíma og stríðsbræður Tanners varpa hverri þjóðinni á fætur annarri undir blóðugan ógn- arhramm nazismans og svipta þá menn lífi, sem hvorki vilja lúta stjórn villimennskunnar né svikja lífsskoðun sína og föðurland, bá- súnar hann um frelsisbaráttu Hitl- ers í hávaöasömum kór með föð- urlandssvikurum hinna sárþjáðu og undirokuðu Evrópulanda. Svo langt er þessi gamli sósíal-demo- krati leiddur frá lífsskoðunum heilbrigðra alþýðusamtaka, að hann ekki einungis berst við hlið blóðugustu kúgunarafla nútímans, helur reynir einnig með haturs- fullum fordæmingarorðum um Rússa, sterkustu frjálsu þjóðina á meginlandinu, að veita hinum sið- lausu öflum siðferðilegan styrk í glæpsamlegri árás þeirra á Rúss- land. Og til slíkrar þjónustu býð- ur hann sig, eftir að Bretar, Rúss- ar og allar aðrar þjóðir veraldar eru búnar aö læra það af dýr- keyptri reynslu, að orðum nazista er aldrei hægt að treysta, að þeir eru í öllum viðskiptum á lægra siðferðisstigi en villtir stigamanna- t’lokkar fortiðarinnar. En ávarp Tanners, sem þýzka útvarpið birti hátíðlega, sem eins- konar siðferðisvottorð fyrir stríði siðleysingjanna gegn Rússum, gef- ur nokkurt efni til umhugsunar um ýmsa þá gömlu leiðtoga í heimi lýðræðisins, sem á reynslunnar stund hafa brugðist trúnaði við lifstrú þjóða sinna og fólki og gengið á hönd ofbeldis, þess óvin- ar alls mannkyns, sem Roosevelt forseti Bandaríkjanna sagði um í síðustu ræðu sinni: „Óvinur okkar, sem reynir að ná yfirráðum í heiminum, er óvin- ur allra laga, alls siðferðis, allrar mannúðar og allra trúarbragða. Við segjum við þeSs heimsyfir- drottnara: Þið eruð að leitast við að steypa börnum okkar og barna- börnum í þrældóm.“ Bandamenn þessa heimsóvinar, sem svikið hafa trúnað verkalýðs- samtakanna,. og frelsisbaráttu þjóðanna á örlagaríkri hættustund geta aldrei aftur vænzt trúnaðar fólksins. Þeir eru orðnir vogrek á fjörum villimennskunnar, táknandi fyrir þau sollnu mein, er lagt hafa heilar þjóðir að velli í núverandi átÖkuni um framtíð þjóðanna. Það er eins og margir þessara vandræðamanná hafi aldrei átt aðra hugsjón en þá, að koma sjálf- um sér vel fyrir með aðstoö fólks- ins, síðan hafi þeir byrjaö að halda niður brekkuna og láta æ betur að hinum drottnandi stefnum. A slík- um flótta undan félögum sínum og fortíð hljóta slikir menn að l’inna til nokkurs sársauka innra með sér, meðan þeir eru sér þess enn meðvitandi, að þeir eru að svíkja stefnu félaga sinna. Ekki er óliklegt, að slíkur sársauki valdi því, að oft leita þessir menn að einhverri afsökun fyrir sinnaskipt- unum og kvaldir af meðvitundinni urn svikin viö gamla samstarfs- menn vekja þeir upp grýlur sér til hlífðar og afsökunar. Grýla Tann- ers er kommúnisminn. Það er hann, sem á að réttlæta öll svikin við finnsku verkalýðshreyfinguna og meira en það. Kommúnisminn á einnig að réttlæta það, að Tann- er velur sér samstöðu með þýzka nazismanum og hyggst undir merki hans að gera finnsku þjóð- ina frjálsa og örugga!! Það er lærdómsríkt fyrir oss ís- lendinga aö bera menn eins og Tanner og aðra uppgjafaleiðtoga verkalýðsins, senr orðnir eru bandamenn nazismans, saman við hetjur norsku alþýðusamtakanna, sem fremur en að afsala sér heiðri sínum, fórna lífinu í baráttunni við hið siðlausa ofbeldi nazista. Frelsi og sæmd þjóðar þeirra um langa framtíð er þeim meira virði en líf- ið sjálft. Þess vegna skal þaö fremur lagt í sölurnar en að mis- nota það i þjónustu við ofbeldi framandi hersveita, er ógna frelsi föðurlandsins. Af nöfnum þeirra Viggo Hansteen og Vikström, sem líflátnir hafa verið vegna trú- mennsku við skyldur sínar og hug- sjónir, mun ávallt stafa miklum ljóma á veg norsku þjóðarinnar um alla framtíð. Minning þeirra mun ennfremur um ókomnar aldir styrkja frelsisbaráttu allra undir- okaðra þjóða, einmitt af því að þeir kusu fremur að láta lífið en réttinn til þess að þjóna málstað þjóðar sinnar. En hinir, sem á yí- irstandandi örlagatimum, er bar- áttan stendur um líf eða dauða, menningu eða siðleysi, frelsi eða kúgun, leigja sig undir áraburð ofbeldisstefnunnar og afsaka þá þjónustu með nazistiskum blekk- inguni, munu frjálsar þjóðir fram- tíðarinnar varpa í yztu myrkur ei- lífrar fyrirlitningar og smánar. — Það má ef til vill afsaka Tanner hinn finnska með því, að aðstaða hans í átökum Þjóðverja og Rússa er næsta örðug og honum sé varn- að' sjálfræðis i landi sínu, vegna ofrikis nazista. En karlmennsku- leg er afstaða hans samt ekki, og það er þegar ljóst orðið, að naz- istar munu nota afstöðu hans til þjónustu við stríðsmarkmið sín. Það eu glæsileg örlög, fagurt vitni um goðborna tign mannsins, að deyja fyrir sannfæringu sína og sæmd, en hitt eru hræðileg ör- lög, sorglegt vitni um ítök Satans í mannlífinu, er menn kaupa sér lif úr hendi óvinarins með afsali allra þeirra dyggða, sem réttur manna til að heita synir föðurlands síns byggist á. Slíkir menn sleppa ekki við dauðadóm lögmálsins. En norsku hetjurnar, sem villimennsk- an hefur dæmt til fangelsis og dauða 'munu lifa meðan frjálst mannkyn er til á jörðunni. Ungir íslendingar! Hvora met- ið þið meira: hetjurnar, sem falla með sæmd, eða hina, sem kaupa sér lif og stundargengi með því að svíkja sæmd og hagsmuni bræðra sinna, er þjást undir blóðhrammi ofbeldisins ? Úr svari ykkar má lesa fram- tiöarörlög íslenzku þjóðarinar. Á. Á. Aths. ■p KKI vill ritstj. Nýs lands nema “ um sumt taka undir þessa ádeilu Á. A. á Tanner. Fyrst er það af þvi, að ævinlega er vafa- samt, að deila á annarra þjóða menn fyrir ávörp, sem þeir kunna að gera við önnur viðhorf en við okkur blasa, og það ávörp, sem ekki er að treysta að okkur séu rétt flutt. Þetta er jafn rangt og trúa betur óþekktum leiðtogum við óþekkt skilyrði en sjálfs sín hugs- un og nálægra granna. Það er með öðrum orðum jafnrangt að deila á persónu og persónulega afstöðu Mr. Oliver Lodge og fullyrða að: „annar eins maður og Oliver Lodge fer ekki irteð neina lýgi.“ Það er heldur ekki hægt að tala um Tanner sem einhverja and- stæðu Hansteens og Vikströms. Hann eins og þeir berst gegn því ofbeldi, sem þjóð hans og hennar mál hefur átt að beita, og hann mun skilja það ofbeldi eins og þeir. Ofbeldi nazisma og kommúnisma er eitt og hið sama, þegar á varn- arlitlar smáþjóðir er ráðizt blóð- ugum vopnum, til þess eins að bæta hugsanlega hernaðaraöstöðu, og raunar skilur þá ekki kommún- ista og nazista annað en nafnið eitt

x

Nýtt land

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land
https://timarit.is/publication/387

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.